Nesfréttir - 01.12.2022, Blaðsíða 20
20 Nesfrétt ir
Þegar jól og áramót nálgast lítum við gjarnan yfir farin veg og
minnumst liðinna stunda. Það skiptast á skin og skúrir, ánægjulegar
stundir og sorgarstundir. Við höfum þurft að kveðja nokkra af vinum
okkar og þátttakendum í félagsstarfinu sem látist hafa á árinu eða flutt
í aðra búsetu. Það er með virðingu og söknuði sem við kveðjum og
minnumst þessara vina okkar.
Félags og tómstundastarfið tekur alltaf breytingum á þessum
árstíma og tengist þá jólunum og öllu sem þeim fylgir. Stutt er
síðan farið var í jólahlaðborð í Skíðaskálanum í Hveradölum þar
sem boðið var upp á mjög svo fallega og góða jólastemningu. Um
mánaðamótin, eða á síðasta þriðjudegi nóvembermánaðar var stund
eldri borgara safnaðarheimili kirkjunnar þar sem yfir 30 manns mættu
á kótilettuhátíð. Alla mánudaga og miðvikudaga í desember var boðið
upp á jólaföndur í salnum á Skólabraut og miðvikudaginn 7. desember
fengum við góða heimsókn. Margrét Kjartansdóttir kom og sagði frá
dvöl sinni á Indlandi og sýndi myndir frá lífinu þar. Ákaflega fróðleg og
skemmtilegt erindi. Margrét var með sýningu og sölu á indverskum
sjölum til jólagjafa. Bæði félagsvist og jólabingóið var mjög vel sótt og
allir vinningshafar ánægðir. Þegar þessar línur eru skrifaðar þá eigum
við eftir að fara í sameiginlega jóla-ljósaferð með félagsmiðstöð eldri
borgara á Aflagranda, en þá ætlum við að keyra með rútu um bæði
borgina, og bæinn okkar og skoða ljósadýrðina. Að þeirri skoðun lokinni
verður borðað í Ráðagerði, nýja veitingastaðnum úti við Gróttu og er
þegar uppselt í þessa ferð.
Söngur og súkkulaði
Á hverju ári endum við hefðbundna dagskrá félagsstarfsins fyrir jól
með opnu húsi í salnum á Skólabraut 3-5. Að þessu sinni verður það
mánudaginn 19. desember frá kl. 14.00 – 17.00. Boðið verður upp á
heitt súkkulaði og rjóma ásamt ýmsu góðgæti, jólaglögg, smákökum
og fleiru. Þá fáum við til okkar nemendur Tónlistarskóla Seltjarnarnes
sem spila nokkur jólalög. Söngstjórinn okkar hann Bjarmi hefur verið
að æfa með okkur jólalögin síðustu föstudaga og ætlar hann að mæta
og spila undir fjöldasöng. Einnig fáum við til okkar góðan gest sem
flytur hugvekju.
Hvetjum ykkur til samstarfs og áhrifa í félagsstarfinu á nýju ári.
Vinnum saman að góðum hugmyndum.
Starfsfólk félags og tómstundastarfs óskar ykkur öllum gleðilegra jóla
og þakkar samveru og góðar stundir á liðnum árum.
FÉLAGS- OG TÓMSTUNDASTARF
ELDRI BÆJARBÚA
Vinna er hafin við endurgerð forvarnastefnu
Seltjarnarnesbæjar og hefur starfshópur verið settur á
laggirnar sem hefur þegar hafið störf. Hann er skipaður
sjö fulltrúum:
• 1 fulltrúi frá Leikskóla Seltjarnarness
• 2 fulltrúar frá Grunnskóla Seltjarnarness
(starfsmaður og nemandi á unglingastigi)
• 1 fulltrúi frá félagsmiðstöðinni Selinu
• 1 fulltrúi frá íþróttafélaginu Gróttu
• 1 fulltrúi frá félagi eldri borgara á Seltjarnarnesi
• Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ljóst er að mikil vinna er framundan því margir samfélagslegir þættir
hafa breyst frá því forvarnastefnan var síðast endurskoðuð. Við skipan
hópsins var lögð áhersla á að heyra raddir fulltrúa helstu stofnana og
félaga sem sinna málefnum er varða lýðheilsu og forvarnir hjá hinum ýmsu
aldurshópum á Seltjarnarnesi.
Raddir allra heyrist
Raddir allra eru mikilvægar og áhugavert er að heyra rödd eldri
nemenda grunnskólans um hvernig þeir vilja móta og stuðla að betri
lýðheilsu og forvörnum í sínum aldurshópi og hvernig þeir telja best að
ná til aldurshópsins. Einnig er nýnæmi að fulltrúi félags eldri borgara á
Seltjarnarnesi eigi fulltrúa í starfshópnum, en aukin áhersla hefur verið
undanfarin ár á að efla forvarnir og lýðheilsu eldri bæjarbúa. Fyrsti fundur
starfshópsins hefur þegar verið haldinn, en þar var rætt um markmið og
leiðir og hlutverk hvers og eins til að fylgja eftir þeim áætlunum sem stefnt
verður að.
Næstu skref
Samráðshópur um áfengis- og vímuefnavarnir hefur verið endurvakinn
og kallaður saman til skrafs og ráðagerðar um hvað við getum gert betur í
málefnum ungmenna í tengslum við forvarnastarf. Í hópnum eiga sæti allir
þeir aðilar sem koma á einhvern hátt að forvarna- og frístundastarfi innan
bæjarfélagsins, til að mynda fulltrúar skóla, foreldrafélaga, íþróttafélags,
kirkju, golfklúbbs, barnaverndar, félagsþjónustu o.fl. Auk þess á lögreglan
fulltrúa í hópnum. Þegar fyrstu drög að nýrri forvarnastefnu liggja fyrir verða
þau send til umsagnar á hina ýmsu hagsmunaðila á Seltjarnarnesi, meðal
annars fulltrúa þessa samráðshóps.
Verkefnastjóri forvarna- og frístundastarfs
Samþykkt bæjarstjórnar liggur fyrir um að setja í fjárhagsáætlun næsta árs
starf verkefnastjóra forvarna- og frístundastarfs og mun viðkomandi takast
á við nýjar áskoranir í anda nýrrar forvarnastefnu. Hann mun hafa aðsetur
í Selinu og auk þess að sinna almennum forvörnum og frístundastarfi mun
hann sjá um málefni ungmenna á aldrinum 16-18 ára.
Foreldrar eru ein mikilvægasta fyrirmynd barna sinna. Mikilvægt er að
þeir tali við börn sín um áfengi og önnur vímuefni og taki skýra afstöðu
gegn því að þau prófi eða noti slík efni. Ábyrgð uppeldisstofnana eins og
skóla og íþróttafélags á að sinna forvörnum er mikil og þær eiga að styðja
við hlutverk foreldranna með almenna lýðheilsu barna og ungmenna að
leiðarljósi. Við erum öll forvarnir og verðum að standa saman.
Hildigunnur Gunnarsdóttir,
formaður fjölskyldunefndar
Forvarnastefnan
endurgerð
Hildigunnur
Gunnarsdóttir.
Verslaðu með hjartanu!
www.systrasamlagid.is