Nesfréttir - 01.12.2022, Page 19

Nesfréttir - 01.12.2022, Page 19
Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir, skartgripahönnuður og eigandi fyrirtækisins Aurum, er ættuð frá Ísafirði og ólst hún þar upp. Þar æfði hún skíði í mörg ár og var það hennar helsta áhugamál og ástríða. Þegar Guðbjörg var 17 ára gömul tók hún þá ákvörðun að fara sem skiptinemi út til Bandaríkjanna. Hún þurfti að senda frá sér umsókn og þar kom fram að hún væri að æfa og keppa á skíðum þar sem hún vildi helst fara til fjölskyldu sem væri með sama áhugamál og hún. Það var svo fjölskylda sem staðsett var á Bainbridge Island, eyja fyrir utan Seattle, sem var að leita að skiptinema sem valdi hana. Ástæðan fyrir valinu var einmitt sú að þessi fjölskylda var mikið á skíðum og faðirinn Peter O´Connor var einnig að kenna á skíðum í Crystal Montain. Þegar Guðbjörg fer svo í ferðalagið sitt til Bainbridge Island tók á móti henni mjög hlý og góð fjölskylda. Strax og hún kom byrjaði hún að fara á hverri helgi með Peter O´Connor og fjölskyldu upp í fjall, þá bæði til að æfa og einnig til að keppa á skíðum. Kynntist sínu framtíðar-starfi Þegar Guðbjörg byrjaði svo í skólanum á Bainbridge Island þá voru hinir ýmsu val áfangar í boði. Einn þeirra var gullsmíði. Hún ákvað að velja þann áfanga, ásamt nokkrum öðrum sem henni fannst áhugaverðir, en eftir að hafa kynnst gullsmíðinni var ekki aftur snúið og hún fann neistann. Hún kom svo aftur heim til Íslands eftir árs dvöl í Bandaríkjunum og byrjaði að stunda 4 ára nám við gullsmíðaskólanum í Danmörku og í framhaldi af því nám í skartgripa hönnun í Danmörku. Það má taka það fram að eiginmaður Guðbjargar Karl Jóhann, fór út til Peter O´Conner og fjölskyldu í hálft ár eftir að Guðbjörg kom heim og kynntist því fjölskyldunni vel. Peter O´Connor fellur frá Það var svo fyrir þremur árum að Peter O´Connor lést. Hann var virtur arkitekt á eyjunni og voru margir sem þekktu hans verk vel. Hann teiknaði hin ýmsu merku hús þar, ásamt víðar, og m.a. leikhúsið á eyjunni. Eftir að Peter fellur frá var ákveðið að endurbyggja leikhúsið og er eitt herbergið í leikhúsinu tileinkað honum. Það var því leitað til hinna ýmsu aðila um fjárhagslegan stuðning við endurbyggingu leikhússins og verður það tilbúið í lok árs 2023. Það var einnig leitað til Guðbjargar og Karls um stuðning. Þau segja strax já, en Guðbjörg vildi gera þetta ennþá eftirminnilegra og persónulegra og eftir smá umhugsun þá fékk hún þá hugmynd að smíða veglegar silfur nælur (sem einnig er hægt að bera sem hálsmen), skartgripurinn er innblásinn af verkum Peters, hefur skírskotun í hans verk og persónuleika. Hann sagði „Each project is a puzzle. If the details don´t work the project falls apart. The quality of it is in the details“. Hugmyndin var að gera takmarkað magn af Nælunni 50 stykki sem færu í að fjármagna herbergið hans Peters. Nælurnar 50 seldust upp um leið og þær fóru í sölu. Viðburður og viðhöfn Afhending skartsins fór fram við sérstaka athöfn í nóvember sl. Þar sem allir komu saman sem keypt höfðu næluna og fengu hana afhenta. Guðbjörg sagði þar frá hönnunarferlinu og boðið var upp á íslenska drykki. Þau sem stóðu á bakvið söfnunina tóku ekki annað í mál en Guðbjörg og Karl kæmu út og yrðu viðstödd, sem þau gerðu. Að koma til baka, gista í sama herbergi og þegar þau voru 17 og 19 ára, dvelja með fjölskyldunni, kallaði fram margar góðar minningar. Það má til gaman geta að kennari Guðbjargar sem kenndi henni Gullsmíðaáfangan árið 1987, var viðstödd viðburðinn. Gott að geta gefið tilbaka Fjármögnun fyrir þessu glæsilega Leikhúsi á Bainbridge Island er langt komin og og eru Guðbjörg og Karl mjög stolt og ánægð að hafa verið partur af þessu fallega verkefni og geta þar af leiðandi gefið til baka. Bæði í málefnið, til O´Connor fjölskyldunnar og gefa þakklæti tilbaka þar sem Guðbjörg tók sín fyrstu skref sem gullsmiður. Guðbjörg og Karl eiga og reka skartgripaverslunina Aurum, Bankastræti 4. Nesfrétt ir 19 Það er gott að geta gefið til baka Karl og Guðbjörg. Mynd tekin fyrir utan heimilið á Bainbridge Island. Grandagarði 13 Glæsibæ, 5.hæð eyesland.is Grandagarði 13 Glæsib , 5.hæð eyesland.is Þú finnur úrval af fallegum sólgleraugum í verslunum Eyesland, frá m.a. Jimmy Choo, Isabel Marant, Ray Ban og Gigi Studios. Skoðaðu úrvalið á eyesland.is Sólgeraugu í jólapakkann

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.