FLE blaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 6
6 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
Þá er líka mjög gaman að fá að fást við krefjandi verkefni og
það er svo magnað að maður er alltaf að læra eitthvað nýtt
þó að maður sé búinn að vera lengi í bransanum. Mér finnst
ráðgjafarhluti starfsins ekki síður skemmtilegur en sjálf endur-
skoðunarvinnan, meðal annars að geta hjálpað fólki og fyrir-
tækjum að gera enn betur.
Svo er nú alltaf dálítið gaman þegar hlutirnir stemma í debet
og kredit.
Hvað er leiðinlegast við endurskoðunina?
Það er nú sem betur fer ekki mikið sem mér dettur í hug í
því sambandi. Kannski sífellt auknar kröfur til skráningar á öllu
því sem við gerum og sífellt stífara regluverk sem við þurf-
um að fara eftir í störfum okkar. Kannski líka sú staðreynd að
það er mun meiri eftirspurn eftir kröftum okkar á fyrri hluta
ársins heldur en þeim seinni sem getur kallað á töluvert álag í
vinnunni okkar þegar mest gengur á.
FORMAÐURINN HÓLMGRÍMUR
Áherslur nýkjörinnar stjórnar og starfið framundan?
Þær eru svona í mótun, meðal annars er stefnt að vinnufundi
stjórnar með formönnum fastanefndanna fljótlega til að leggja
línurnar en ég á svo sem ekki von á neinum stórfelldum
breytingum. Mér finnst þó líklegt að skerpt verði enn frekar
á hlutverki félagsins sem hagsmunafélags bæði hvað varðar
ímynd félagmanna sem og að fylgjast með og taka þátt í þeirri
umræðu og þróun sem á sér stað á alþjóðlegum vettvangi.
Eins og við vitum er mikið um að vera sem getur leitt af sér
miklar breytingar á störfum okkar og get ég t.d. nefnt vænt-
anlega gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um sjálf-
bærniskýrslur sem og yfirferð á endurskoðunartilskipuninni og
síðast en ekki síst væntanlegur staðall um endurskoðun lítilla
félaga frá staðlaráðinu. Það er mikilvægt að við fylgjumst náið
með og upplýsum félagsmenn og aðra hagsmunaaðila um
framvindu mála. Einnig get ég nefnt áframhaldandi samtal við
Ársreikningaskrá og ráðuneytið um skilafresti ársreikninga til
Ársreikningaskrár, sem og að viðhalda góðum samskiptum við
alla aðila sem tengjast störfum endurskoðenda.
Þá finnst mér líklegt að áfram verði lögð áhersla á gott fram-
boð af endurmenntun og í því samhengi að bjóða áfram upp á
streymi og eftir atvikum upptökur frá námskeiðum og fundum
félagsins ef það hentar.
Einnig held ég að það verði áfram lögð áhersla á félagslega
þáttinn í starfsemi félagsins. Ég held að hann sé mikilvægur og
þó að ég sé á því að það sé mikill kostur að bjóða upp á streymi
frá fundum og námskeiðum á vegum félagsins held ég að það
sé mikilvægt að við hættum ekki að hittast í raunheimum. Hér
Hólmgrímur í góðum félagsskap á Haustráðstefnu FLE 2021