FLE blaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 7
7FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
hefur COVID-19 ástandið því miður haft töluverð áhrif undan-
farin tvö ár en þó að útlitið í þeim málum sé því miður ekkert
sértaklega gott eins og er þá vona ég nú að það fari að lagast
með hækkandi sól.
Á síðasta stjórnarfundi var rætt talsvert um nýliðun í stéttinni
sem mætti vera meiri og fyrirkomulag löggildingarprófa í því
samhengi og finnst mér líklegt að þeirri umræðu verði haldið
áfram.
ÁHRIF NÝRRA LAGA UM
ENDURSKOÐENDUR
Hvað hefur breyst með nýjum lögum um endurskoðendur
og endurskoðun?
Það var náttúrulega ýmislegt sem breyttist með nýju lög-
unum. Til dæmis færðist umsjón gæðaeftirlits sem hafði
verið talsvert stór þáttur í starfsemi félagsins frá félaginu til
Endurskoðendaráðs. Þá var skylduaðild að félaginu felld niður
sem hefur þó enn sem komið er ekki haft mikil áhrif.
FLE – hvað verður um það og hvernig verður það?
Ég held að FLE eigi bjarta framtíð fyrir sér. Ég tel að það sé
mikilvægt að endurskoðendur á Íslandi eigi sér félag saman
sem meðal annars vinnur að hagsmuna- og framfaramálum á
starfssviði endurskoðenda og er vettvangur skoðanaskipta um
fagleg málefni stéttarinnar. Í því sambandi held ég að það sé
samt mikilvægt að við pössum upp á að félagið þróist í takt við
hagsmuni og þarfir félagsmanna, ekki síst núna þegar búið er
að fella niður skylduaðild að félaginu.
Hvað er fleira á döfinni?
Það er ýmislegt á döfinni hjá félaginu. Stjórn félagins stefnir
til dæmis að því að halda vinnufund fljótlega með formönn-
um fastanefndanna til að taka stöðuna og ræða meðal annars
hvernig væri hægt að efla nýliðun í félaginu, hverjar ættu að
vera áherslur stjórnar næsta árið og hver ætti að vera framtíðar-
sýn og meginhlutverk félagsins.
Þann 28. janúar næstkomandi verður hinn árlegi skattadag-
ur félagsins haldinn og daginn fyrir hann verður boðið upp á
áhugavert námskeið þar sem Árni Claessen endurskoðandi
mun fjalla um gæði og gagnsemi upplýsinga í ársreikningnum.
Í febrúar, mars og apríl verður boðið upp á áhugaverð morgun-
korn og í maí verður árlegur endurskoðunardagur haldinn.
Í faglegum málum er talsvert um að vera hjá félaginu. Meðal
annars hefur verið unnið í samstarfi við Reikningsskilaráð að
yfirferð á drögum Reikningsskilaráðs að leiðbeiningum um upp-
lýsingar í skýrslu stjórnar og framsetningu þeirra. Fulltrúi FLE
er í norrænum starfshópi um innleiðingu á nýjum alþjóðlegum
endurskoðunarstaðli um endurskoðun einfaldra félaga. Félagið
er með fulltrúa í vinnuhóp um ný lög um bókhald. Félagið er
búið að setja á laggirnar sérstakan vinnuhóp um sjálfbærni
skýrslur og tekur fulltrúi úr þeim vinnuhóp þátt í norrænum
vinnuhóp um málið. Þá er fyrirhugað áframhaldandi samtal við
ársreikningaskrá og ráðuneytið um tímafresti á skilum á árs-
reikningum til Ársreikningaskrár svo eitthvað sé nefnt.
Að lokum má nefna að hún Hrafnhildur skrifstofustjórinn okkar
hefur ákveðið að láta af störfum núna í sumar eftir langt og
farsælt starf hjá félaginu og er vinna hafin við að leita að eft-
irmanni hennar. Ég vil nota tækifærið hér og þakka Hrafnhildi
kærlega fyrir afar góð störf í þágu félagsins.
FLE FERÐ ERLENDIS – ER SLÍKT Á
TEIKNIBORÐINU
Félagið hefur staðið fyrir ferðum erlendis á nokkurra ára fresti.
Síðast var farið til Brussel árið 2018 sem mér vitandi heppn-
aðist mjög vel. Það er mín skoðun að svona ferðir séu mikil-
vægur liður í félagsstarfi endurskoðenda en nei því miður þá
er slík ferð ekki á teikniboðinu eins og stendur og spilar þetta
COVID-19 ástand inn í það. Vonandi mun það nú samt líða hjá
og það komi að því að við getum farið aftur saman í skemmti-
legar ferðir erlendis.
Viðtal: Herbert Baldursson og Birta Mogensen