FLE blaðið - 01.01.2022, Side 10
10 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
ÁHRIF ÁHÆTTU VEGNA LOFTSLAGS-
BREYTINGA Á REIKNINGSSKIL
Jóhann I.C. Solomon, löggiltur endurskoðandi hjá KPMG ehf.
Svanhildur Skúladóttir, reikningsskilasérfræðingur hjá KPMG ehf.
Fyrirtæki, sem og opinberir aðilar, þurfa
því að huga að áhrifum áhættu vegna
loftslagsbreytinga á reikningsskil sín og
gera viðeigandi ráðstafanir sem fyrst.
INNGANGUR
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að umræða um loftslags-
breytingar hefur aukist til muna síðustu árin, aðallega í tengsl-
um við náttúruhamfarir og aðgerðir þjóða heims til að koma
böndum á hlýnun jarðar af mannavöldum.
En það sem hefur verið minna áberandi í opinberri umræðu
eru möguleg áhrif áhættu vegna loftslagsbreytinga á reiknings-
skil. Augljós dæmi í þessu sambandi eru þegar náttúruham-
farir, til dæmis flóð eða skógareldar, eyðileggja eignir og raska
starfsemi, sem hafa umsvifalaust áhrif á gerð og framsetningu
reikningsskila þeirra aðila sem í hlut eiga. En áhrifin á reikn-
ingsskil geta einnig verið vegna annarra atburða sem eru ekki
eins augljós en tengjast engu að síður loftslagsbreytingum,
svo sem vegna breytinga á regluverki, tækni, kauphegðun við-
skiptavina, stefnumótun og viðskiptamódeli fyrirtækja, skilmál-
um fjármálagerninga og kröfum fjárfesta og eftirlitsaðila.
Einnig ber að hafa í huga að loftslagsbreytingar þurfa ekki endi-
lega að hafa í för með sér eingöngu neikvæð áhrif á efnahags-
lega starfsemi. Í loftslagsbreytingum felast einnig tækifæri fyrir
þá sem þróa og bjóða lausnir við loftslagsvanda. Slíkir aðilar
geta laðað til sín fjármagn með útgáfu hlutabréfa og skulda-
bréfa, aflað fjármuna og aukið tekjur með sölu umhverfisvænna
lausna til viðskiptavina. Öll þessi viðskipti hafa áhrif á reiknings-
skil þeirra.
MISMUNANDI ÁHRIF
Áhrif áhættu vegna loftslagsbreytinga á reikningsskil kunna að
verða mismikil eftir því í hvaða atvinnugreinum fyrirtæki starfa.
Eðli máls samkvæmt má búast við því að mestu áhrifin verði
hjá fyrirtækjum sem reka mengandi starfsemi. Hins vegar eru
fyrirtæki sem starfa í öðrum atvinnugreinum ekki laus allra
mála því áhrifin geta einnig komið fram í atvinnugreinum þar
sem þeirra er síst að vænta. Sem dæmi má nefna fjármálafyr-
irtæki, þar sem áhrifin geta meðal annars komið fram í gegn-
um útlán til fyrirtækja, í kröfum fjárfesta um upplýsingagjöf og
breytingar á regluverki. Í þessu sambandi má nefna að Basel-
nefndin um bankaeftirlit gaf í apríl 2021 út tvær skýrslur sem
fjalla annars vegar um hvernig áhætta vegna loftslagsbreytinga
getur haft áhrif á banka og bankakerfi og hins vegar hvaða
aðferðir bankar geta notað til að mæla fjárhagslega áhættu sem
tengist loftslagsbreytingum. Basel-nefndin mun í framhaldinu
meta hvort breyta þurfi stöðlum um bankaeftirlit vegna þessa.