FLE blaðið - 01.01.2022, Side 14
14 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
Þar sem hagnaður hefur orðið af rekstri samkvæmt ársupp-
gjöri 2021 eru stjórnir einkahlutafélaga og hlutafélaga að meta
hvort leggja eigi fram tillögu um arðgreiðslu. Arðgreiðslur
eru þýðingarmiklar fyrir hluthafa sem hafa fjárfest í viðkom-
andi félagi en það er í ýmis horn að líta við slíkar ákvarðanir.
Hlutafélagaformið er aldargamalt en þrátt fyrir aldur og fyrri
reynslu af framkvæmd arðgreiðslna þá eru ófá álitaefnin sem
reynt hefur á í úrskurða- og dómaframkvæmd. Engan ætti þó
að undra því við framkvæmd arðgreiðslu þarf að fylgja form-
reglum hlutafélagalöggjafarinnar, skattareglum og meta reikn-
ingshaldsleg álitaefni. Tilefni þessarar greinar er þó ekki að
fara yfir öll formsatriðin, enda er það efni í heila bók, heldur
staldra sérstaklega við hugtakið „frjálsir sjóðir“.
Samkvæmt 99. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög (hfl.) og 74.
gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög (ehfl.) er einungis
heimilt að úthluta sem arði (a) hagnaði samkvæmt síðasta
samþykkta ársreikningi, (b) yfirfærðum hagnaði frá fyrri árum
og (c) frjálsum sjóðum eftir að dregið hefur verið frá tap sem
ekki hefur verið jafnað og það fé sem skal lagt í varasjóð eða
til annarra þarfa.
Þessi ákvæði segja ýmislegt, en gefa þau upp með nákvæm-
um hætti hvaða efnahags- eða rekstrarliða líta beri til við arð-
greiðslu? Almennt liggur skýrt fyrir hver sé hagnaður sam-
kvæmt síðasta samþykkta ársreikningi en í því sambandi nægir
að horfa til niðurstöðu rekstrarreiknings. Yfirfærður hagnaður
fyrri ára er ekki jafnaugljós í ársreikningnum en slíkur hagn-
aður hefur verið færður í efnahagsreikning og myndar, ásamt
öðrum liðum, óráðstafað eigið fé félagsins. Hvað varðar frjálsa
sjóði þá hefur það hugtak ekki verið skilgreint sérstaklega.
Hlutafélagalöggjöfin og ársreikningalögin skilgreina nokkra
lögbundna sjóði en þá sjóði má þá augljóslega ekki nýta til
arðgreiðslna. Til lögbundinna sjóða telst hlutafé, varasjóð-
ur, endurmatsreikningur og ýmsar gangvirðisbreytingar. Enn
fremur telst yfirverðsreikningur til bundinna sjóða sbr. úrskurði
yfirskattanefndar1 m.a. með vísan til eldri hlutafélagalaga nr.
32/1978 þar sem fram kom að leggja skyldi í varasjóð það fé
sem hefði verið greitt fyrir hluti umfram nafnverð við stofnun
eða hækkun hlutafjár (nú yfirverðsreikningur).
Með gagnályktun má ætla að „frjálsir sjóðir“ séu allir aðrir sjóð-
ir en bundnir sjóðir samkvæmt lögum eða samþykktum félags.
HVAÐ ERU FRJÁLSIR SJÓÐIR
HLUTAFÉLAGA?
Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður og meðeigandi hjá Deloitte Legal ehf.
Ólögmæt arðsúthlutun
getur haft í för með sér
alvarlegar skattalegar
afleiðingar fyrir hluthafa
auk skaðabótaábyrgðar
stjórnar, hluthafa eða þeirra
sem sáu um framkvæmd
rangra reikningsskila
1. Úrskurðir yfirskattanefndar í málum nr. 165/2013, nr. 268/2013, og nr. 228/2014.