FLE blaðið - 01.01.2022, Síða 16
16 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
PENINGAR, RAFMYNTIR OG FRAMTÍÐARSÝN
Ef horft er til þess hvað peningar eru þá eru peningar gjald-
miðill sem notaðir eru í viðskiptum milli fólks, til endurgreiðslu
skulda og einnig sem mælieining á virði.
Grundvöllur gjaldmiðla er traust, meðal annars á nothæfi þeirra
en án slíks trausts væru þeir sjaldan nokkurs virði. Til þess að
gjaldmiðill sé að fullu nothæfur er nauðsynlegt, auk trausts á
honum, að hann sé vel þekktur, að það sé auðvelt að skipta
honum upp í smærri einingar, að hann sé léttur í flutningi og
meðförum, að hann eyðileggist ekki hratt við notkun og síðast
en ekki síst að gjaldmiðillinn sé ekki auðveldlega falsaður.
Gjaldmiðlar hafa verið samofnir sögu mannkyns um langt skeið
og hafa þeir þróast samhliða því, úr málmmyntum yfir í bréf-
peninga, innistæður á bankareikningum og rafræna greiðslu-
miðlun. Nútímategundir gjaldmiðla eru oftast tengdir ákveðn-
um ríkjum eða svæðum og eru oft kallaðir “fiat money” eða
fótalaust fé en það eru þeir gjaldmiðlar sem ekki standa á gull-
fæti og byggja á trausti. Nokkrir áratugir eru nú síðan síðasti
gjaldmiðillinn hætti að standa á gullfæti, en gullfótur er þegar
peningar byggja á ígildi virði þeirra í gulli í gullgeymslu útgef-
anda seðilsins.
Einhverjir spá því að rafmyntir séu framtíðin eða að minnsta
kosti rafmyntir útgefnar af seðlabönkum. Enn er því óljóst hver
framtíð rafmynta er í dag og sérstaklega núverandi rafmynta.
Rafmyntir hafa í för með sér ótal tækifæri en einnig krefjast
þær mikilla breytinga. Í dag eru rafmyntir í langflestum tilfell-
um ekki tengdar ákveðnum ríkjum eða löndum heldur eru þær
byggðar upp á alnetinu og eru því álitnar alþjóðlegar. Helsta
rafmyntin og sú sem flestir þekkja í dag er rafmyntin Bitcoin,
en myntin hefur verið á sjónarsviðinu frá árinu 2008. Önnur
stærsta myntin heitir Etherum en samanlagt markaðsvirði
Bitcoin og Etherum var nú í byrjun janúar 2021 um 1.200 millj-
arðar bandaríkjadollara.
Samkvæmt talningu Investopedia voru 8.000 rafmyntir til í des-
ember 2021. Það sem helst einkennir hverja rafmynt frá öðrum
rafmyntum er tæknin sem býr að baki, en sú tækni er í hraðri
og sífelldri þróun. Spurningunni sem stundum er varpað fram
er hvaða rafmyntir það eru sem myndu standa eftir ef til hruns
kæmi en þessari þróun er oft líkt við það sem átti sér stað eftir
hraða þróun internetfyrirtækja í Bandaríkjunum árið 2000, þess
sem oft er vísað til sem netbólunnar (e. dotcom bubble), þegar
aðeins nokkur internetfyrirtæki lifðu af samþjöppun á markaði
RAFMYNTIR OG REIKNINGSSKIL
Elín Hanna Pétursdóttir, endurskoðandi hjá Eimskip og
Signý Magnúsdóttir, endurskoðandi hjá Deloitte
Rafmyntir veita ekki
þeim sem á þeim halda
samningsbundinn rétt til
að móttaka handbært fé.
Þær hafa ekki lagalega
viðurkenningu sem mynt
og af þeirri ástæðu er
lánveitandinn ekki
skyldugur til þess að
taka á móti þeim við
greiðslu skuldar