FLE blaðið - 01.01.2022, Síða 17
17FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
Rafmyntir hafa sætt talsverðri gagnrýni gagnvart þeirri aðferð
sem er notuð til að búa hana til. Eins og fram kemur að ofan
þá er rafmynt búin til með eins konar rafrænum námugrefti þar
sem stórar tölvur eyða verulegri orku við að leysa stærðfræði-
leg vandamál. Þegar þeim hefur tekist að leysa þau þá hafa þau
búið til rafmynt. Sú rafmynt er umbun námumannanna. Helsti
gallinn við þessa aðferð er að hér er verið að nota dýrar tölvur
og mikið rafmagn sem hefur í raun engan sjálfstæðan tilgang.
Að mati margra er þetta hrein sóun þar sem framleiðsla á hefð-
bundnum peningum eins og við þekkjum þá í dag þarfnast ekki
slíkrar orku. Víst þarf pappír, blek og prentvélar til að prenta
seðlana en mikið af peningnum heimsins í dag eru innistæður
á bankareikningum, í reynd eiginleg rafmynt, þótt hún sé ekki
sé byggð á sömu tækni (bálkakeðjum, sjá nánar hér að neðan).
Hvernig rafmyntaheiminum tekst að takast á við þær áskoranir
sem eru til staðar varðandi vinnslu rafmyntanna er óljóst. Fyrir
utan þær áskoranir er einnig að mörgum stjórnsýslu- og hag-
stjórnarlegum atriðum að huga þegar horft er til þess ef raf-
myntir myndu taka yfir sem gjaldmiðlar heimsins. Það myndi
torvelda peningaprentun og útiloka myntsláttuhagnað ríkja,
stjórnun vaxtastigs og aðra hagstjórn. Nauðsynlegt er að ríki
heimsins og stjórnvöld þeirra hafi þetta í huga. Framtíðarsýn
rafmyntaheimsins snýst um svokölluð dreifistýrð fjármál (e.
decentralized finance) en hugmyndafræði þeirra byggir á að
það séu engir milliliðir í greiðslumiðlun og fjármögnun en í
nútímanum er það hlutverk banka og fjármálastofnanna.
FJÁRFESTINGAR SKRÁÐRA FYRIRTÆKJA Í RAFMYNTUM
Nokkur stór alþjóðleg fyrirtæki hafa á síðastliðnum árum fjár-
fest í rafmyntum eins og Bitcoin og Etherum en hér fyrir neðan
má sjá töflu yfir þau fimm félög sem mest eiga af bitcoin:
Félagið MicroStrategy Inc. er félag á sviði viðskiptagreindar
og er skráð á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum. Félagið á
121.044 Bitcoin sem er tæplega 0,6% af öllum þeim Bitcoin
sem til eru. Félagið hefur lagt mikla áherslu á fjárfestingar í
Bitcoin í fjárfestingastefnu sinni og hefur það m.a. farið í hluta-
fjárútboð til að fjármagna þær fjárfestingar. Í efnahagsreikningi
félagsins fyrir þriðja ársfjórðung má sjá að fjárfesting í stafræn-
um eignum telur rétt rúmlega 80% af heildareignum þess.
Mikilvægum áfanga var náð í desember 2021 þegar viðskipti
hófust í fyrsta sinn með verðbréfasjóð með eign í Bitcoin í
kauphöllinni í New York.
BÁLKAKEÐJUTÆKNI
Rafmyntir byggja iðulega á svokallaðri bálkakeðjutækni (e.
blockchain technology). Sú tækni er jafnvel merkilegri en raf-
myntin sjálf. En hvernig þá? Bálkakeðjur virka eins og sífellt
vaxandi rafrænar færslubækur. Hver bálkur í keðjunni geymir
dulrituð gögn um viðskipti eða aðrar upplýsingar. Bálkakeðjan
heldur utan um allar færslur, hve mikið er til og hver á hvað og
heldur áfram að bæta við sig eftir því sem tíminn líður. Þetta
er tækni sem byggir á flókinni stærðfræði og dulkóðun. Það er
enginn miðlægur aðili sem heldur utan um og viðheldur bálka-
keðjunum. Tæknin byggir á svokölluðu jafningjaneti. Í raun og
veru virkar bálkakeðjutæknin þannig að hún tekur veraldarvef-
inn einu skrefinu lengra, þannig að veraldarvefurinn snýst ekki
lengur eingöngu um að skiptast á upplýsingum heldur því að
skiptast á virði.
Eitt lykilatriði bálkakeðjanna er að það sem er vistað á bálka-
keðjunni verður þar að eilífu og er ekki hægt að afmá. Allir
bálkar í keðjunni eru tengdir og eldri bálkarnir hafa að geyma
upplýsingar fyrir þá bálka sem á eftir koma og er því hægt að
segja að nánast sé ómögulegt að breyta bálkakeðjunni.
Bálkakeðjutækni hefur reynst vel og hefur það í för með sér
að hægt er að framselja rafmynt frá einum aðila til annars