FLE blaðið - 01.01.2022, Qupperneq 20

FLE blaðið - 01.01.2022, Qupperneq 20
20 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022 • Eru einhver viðskipti færð fyrir utan undirliggjandi bálka- keðju rafmyntarinnar sem þarf að skoða? • Er rafmyntin geymd í veski þar sem þarf marga lykla (rafrænt form undirskrifta fyrir rafmyntir) til þess að sam- þykkja millifærslur? Ef svo er, hver heldur á þeim lykl- um sem þarf til að samþykkja millifærslur og hvernig er tenging þeirra við félagið? • Hver ber áhættuna ef að rafmyntin tapast hjá vörsluað- ilanum t.d. vegna öryggisbresta, þjófnaðar eða annarrar sviksemi? • Eru einhverjir aðrir þættir sem koma í veg fyrir það að fyrirtækið fái allan efnahagslegan ávinning og taki alla áhættu af rafmyntinni m.a. verðáhættu? Ef niðurstaða greiningarinnar er sú að vörsluaðilinn sé með yfirráð yfir rafmyntinni, færir hann rafmyntina sem eign ásamt því að færa skuld í efnahagsreikning vegna þeirrar samnings- bundnu skuldbindingar sem hann er með við félagið um að skila rafmyntinni aftur til baka. Félagið afskráir rafmyntina og færir upp nýja eign sem endurspeglar réttinn til að móttaka raf- myntina frá vörsluaðilanum. Þessi nýja eign er óefnislega eign, en getur verið hluti af öðrum flokki óefnislegra eigna en raf- myntin var upphaflega flokkuð í. í júlí 2020 gaf Evrópska reikningsskilanefndin (EFRAC) umræðuskal um reikningshaldslega meðferð á rafeigna og rafskulda út frá bæði sjónarhorni eiganda og útgefanda. Í því umræðuskjali er horft til rafmynta sem hlutmengi rafeigna. Þar er vísað til þeirrar niðurstöðu túlkunarnefndar alþjóðlega reikn- ingsskilaráðsins sem fram kemur hér að ofan varðandi reikn- ingshaldslega meðferð rafmynta. Í því samhengi er vísað til þess að þrátt fyrir að almennt séu aðilar ekki ósammála þeirri niðurstöðu þá hefur talsverður fjöldi hagsmunaaðila bent á að rafmyntir eru eignir með sérstaka eiginleika og núverandi mats- aðferðir innan IAS 38 og IAS 2 voru ekki þróaðar með rafeignir í huga. Sem dæmi, ólíkt flestum óefnislegum eignum (hugbún- aðir, hugverkaréttindum, vörumerkjum o.fl.) þá eru þær með eiginleika sem líkjast handbæru fé, viðskipti eru með sumar þeirra á virkum markaði og þær eru einnig með ákveðna eig- inlega fjárfestinga. í þessum samhengi er talið upp í umræðu- skjalinu ákveðnar áskoranir sem til staðar eru í núverandi stöðl- um og má þar m.a. nefna: • Takmarkaðar leiðbeiningar er að finna í stöðlunum þegar rafeignir eru keyptar sem fjárfesting og matskröfur IAS 38 og IAS 2 endurspegla ekki að fullu leyti efnahagsleg einkenni þessara eigna, þegar ekki er til staðar virkur markaður (engar skýrar leiðbeiningar eru til staðar um meðferð óefnislegra eigna sem félag horfir á sem fjár- festingu). • Frekari útskýringa / leiðbeininga er þörf í tengslum við það þegar flokka ber rafeign sem fjáreign. Í þeim tilfellum þar sem rafeignir eru keyptar sem fjárfesting og eru með sambærilega eiginleika og hluta- eða skuldabréf (tilkall til hagnaðarhlutdeildar, atkvæðisrétt o.fl.) er ekki að finna neina skýra umfjöllun í stöðlunum hvers vegna ekki beri að flokka þær sem fjáreignir. Mögulega þarfnast núver- andi kröfur IFRS uppfærslu í þessu samhengi. • Skilgreining á handbæru fé og ígildi handbærs fjár þarfnast skoðunar og mögulegrar uppfærslu til þess að ákveðnar tegundir rafmynta geti fallið þar undir. Hér að ofan eru aðeins rætt um hluta af því sem til umræðu er varðandi reikningsskil rafmynta/rafeigna en miðað við hraða þróun þessa heims er ljóst er að töluverð vegferð er framundan til þess að núverandi reikningsskilastaðlar verði nægjanlega skýrir varðandi meðferð rafeigna. Núverandi fyrirkomulag getur leitt til þess að meðferð á þessum eignum og skuldum tengdum þeim verði mismunandi á milli félaga. Ekki er ljóst hvernig þróunin verður varðandi breytingar á núverandi reikningsskilastöðlum en hætt- an er sú að ef ekkert verður aðhafst í að skýra betur kröf- ur staðlanna eða uppfæra ákveðnar skilgreiningar að félög fari í að þróa eigin reikningsskilareglur í samræmi við IAS 8. LOKAORÐ Heimur rafmynta er enn ungur þrátt fyrir að rafmyntin Bitcoin hafi komið fram á sjónarsviðið fyrir meira en áratug síðan og þróun þeirra mílusteina sem lagðir höfðu verið sem grundvöllur á bak við tækniþróun rafmynta hafi staðið yfir í enn lengri tíma. Mikil þróun hefur átt sér stað en mikill þroski og umbylting á mörgum sviðum á enn eftir að eiga sér stað, muni þetta fyrir- komulag á dreifstýrðum fjármálum með bálkakeðjutækni, raf- myntum, snjallsamningum, stafrænum listaverkum og fleiru verða að raunveruleika framtíðar viðskiptalífs heimsins. Ljóst er að miklir möguleikar felast í þessari auknu tækniþróun. Spurningin er hvort setja ætti ákveðna reikningsskilastaðla fyrir rafmyntir(-eignir) eða hvort núgildandi staðlar geti tekið á þeim reikningsskilalegu málefnum sem upp koma eins og þeir eru settir fram með núverandi hætti. Fylgjast þarf vel með tækni- þróuninni og taka á málunum samhliða henni. Signý Magnúsdóttir og Elín Hanna Guðbjartsdóttir

x

FLE blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.