FLE blaðið - 01.01.2022, Page 29
29FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
Við þekkjum flestöll að hafa staðið við afgreiðsluborð á kaffihúsi
og velt því okkur hvort við ættum að fá kaffi í pappamáli eða
bolla. Til að svara þessari spurningu þurfum við að hugsa hvar
við ætlum að drekka kaffibollann ljúfa. Auðvitað er lang minnsta
áhættan á að hella kaffinu niður ef sest er við borð á meðan við
njótum drykkjarins. Um leið og við erum komin af stað með kaffi í
pappamáli stóreykst hættan á að hella niður kaffinu en hættan er
auðvitað mismikil eftir því hvað við gerum á meðan við erum með
kaffibollann í hendinni. Það er tiltölulega áhættulítið að labba á
jafnsléttu með bollann en fæst okkar ákveða að fara á hoppudýnu
eða trampolín með kaffimál í hendinni einfaldlega vegna þess að
þá stóraukast líkurnar á að hella bollanum niður, jafnvel á óþægi-
lega staði eða á fötin okkar.
Ég er ein af þeim sem stunda áhættuhegðun með sneisafullt
götumál alla daga og það hefur ýmislegt gengið á í minni götu-
máls kaffidrykkju seinustu vikurnar. Einn laugardagsmorgun var
ég á leið út á land með vinkonu minni og auðvitað var ég með
sneisafullt götumál í þartilgerðu hólfi milli framsætanna. Við
vorum varla komnar af stað þegar hvítur Dacia Duster stopp-
ar óvænt fyrir framan mig þannig að ég þurfti að snarhemla.
Pappamálið góða hoppar upp úr hólfinu og á hliðina yfir alla inn-
réttinguna og hvíta teppið á bílnum auk þess sem síminn minn
flaut í kaffipolli í bollahólfinu. Upphófst mikil viðgerðastarfsemi,
bæði þurfti að redda nýjum kaffibolla og þrífa bílinn en umsjónar-
maður bifreiðamála á heimilinu var ekkert sérstaklega hress með
stöðuna þegar bíllinn skilaði sér heim.
Eftir þetta ákvað ég að gera það sem ég er alltaf að segja börn-
unum mínum að gera, það er að læra af reynslunni og fór að iðka
það að vera með lok á pappamálinu en það er ansi góð eftirlits-
aðgerð þegar stunduð er ýmis konar áhættuhegðun með kaffi í
pappamáli. Næsta laugardagsmorgun var stefnan tekin á göngu
og auðvitað þurfi ég að taka með mér sneisafullt pappamál í bíl
vinkonu minnar. Þar sem ég sat afturí var ekki hólf fyrir götu-
mál og mér fannst besta hugmynd í heimi að setja pappamálið
á boxið milli framsætanna og segja engum frá því! Þarna setti
ég pappamálið á stað þar sem mikil hætta væri á að það færi
á hliðina og það hefði verið gáfulegt að upplýsa samferðamenn
mína um áhættuna, sem ég gerði ekki. Það næsta sem gerist var
að farþeginn í framsætinu rekur olnbogann í pappamálið og inni-
haldið fer út um allan bíl, og á mig. Þarna var áhættan sem fólst
í staðsetningunni, og óupplýstum samferðamönnum, að eftirlits-
aðgerðin sem lokið á pappamálinu er, hélt engu.
Þetta óhapp varð þó ekki til þess að ég færi að breyta mínum
háttum, enn drekk ég mitt kaffi mestmegnis on the go í pappa-
máli en þó með loki. Eitt af því sem eykur áhættu, og taka þarf
inn í áhættumat hverju sinni, er hraði en hann verður alltaf til þess
að áhætta eykst. Þetta veit ég mætavel en stundum á ég það nú
samt til að vera á mikilli hraðferð og drekka kaffi úr pappamáli.
Það var einmitt það sem ég ákvað að gera um daginn þegar ég
var á leiðinni á fund að hitta fólk sem ég kem til með að vinna
með og var að hitta í fyrsta skipti, sem sagt dálítið mikilvægur
fundur. Ég dríf mig af stað í lyftuna með pappamál í annarri, minn-
isbók í hinni, bíllyklana í þriðju og þarf aðeins að beita lagni til að
ýta á takkann í lyftunni og þá kemur í ljós að lokið á pappamálinu
er ónýtt og hrekkur af þannig að innhaldið fer út um allt en mest
á hvítu skyrtuna mína og jakkann. Ónýtt lok á pappamáli er í raun
óvirk eftirlitsaðgerð og ég mætti á fundinn í hnepptum jakka, út af
stórum brúnum bletti, og með kaffiblauta ermi.
En er ég hætt að drekka kaffi úr pappamáli eftir allar þessar hrak-
farir á stuttum tíma? Nei, en ég er að hugsa um að fá mér götu-
mál með skrúfuloki, þá hlýt ég að vera góð.
Höfundur er innri endurskoðandi Kviku banka og þessi grein er
byggð á sönnum atburðum.
Anna Sif Jónsdóttir
LATTELEPJANDI ÁHÆTTUMAT
Anna Sif Jónsdóttir, innri endurskoðandi Kviku
Um leið og við erum komin af stað með kaffi
í pappamáli stóreykst hættan á að hella niður
kaffinu en hættan er auðvitað mismikil eftir
því hvað við gerum á meðan við erum með
kaffibollann í hendinni