Feykir


Feykir - 30.03.2022, Side 1

Feykir - 30.03.2022, Side 1
Það viðrar vel á landinu þessa dagana og vor í lofti. Farfuglar láta nú sjá sig hver af öðrum og m.a.s. lóan búin að gera vart við sig í Skagafirðinum líkt og tjaldurinn sem farinn er að kroppa í fjörunni. Vestan Héraðsvatna, á sléttum Vall- holtsbæjanna, hafði þessi myndarlegi hópur álfta gert sig heimakominn sl. sunnudag er tíðindamaður Feykis var á ferðinni. Álftin er stærsti varpfugl landsins og eini innlendi svanurinn, eins og segir á Fuglavefnum, auðþekkjanleg frá öðrum íslenskum fuglum á stærð, lit og löngum hálsi. Hún er félagslynd, venjulega í hópum nema á varptíma en þá verja hjónin óðal. Flugfjaðrirnar fella þær síðsumars, eru þá ófleygar um tíma og er þá sagt að þær séu „í sárum“. „Álftin er grasbítur, sem lifir mest á vatnagróðri eins og störum, fergini, mara og nykrum. Fer einnig í tún og á grunnsævi og í sjávarlónum er marhálmur, lónajurt og grænþörungar aðalfæðan. Hálfkafa oft til að ná til botns í dýpra vatni,“ segir á fuglavefur. is. Hlýnandi veður í kortunum Veðurstofan var í sumarskapi í gær, spáði hægri suðlægri átt og léttskýjuðu í dag og hita næstu daga yfir frostmarki þó enn megi búast við nokkuð hressi- legu næturfrosti. Skv. veðurhorfum á landinu næstu daga verður suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og sums staðar dálítil rigning eða slydda, en lengst af þurrt fyrir austan á morgun. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að deginum. Á föstudag: Hæg suðaustlæg átt og dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að mestu A-lands. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst. Á laugardag: Norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil él fyrir norðan, en rigning með köflum syðra. Hiti víða 1 til 6 stig. Á sunnudag: Gengur í sunnanátt með rigningu og hlýnandi veðri. /PF 13 TBL 30. mars 2022 42. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS. 10 BLS. 8 BLS. 6–7 Feykir spjallar við Nafabóndann Hörð Sigurjónsson „Það er gaman að vera hér og hitta félagana“ Sigurlaug Dóra kíkti á uppsetn- ingu 10. bekkjar Árskóla Frábær leikhús- skemmtun á Shrek! Bjóðum alhliða lagnahreinsun á sérútbúnum bíl Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum. Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar á sandföngum, fitu- og olíugildrum. Holræsa- og stífluþjónusta Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958. Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is Ásdís Ýr Arnardóttir heldur um áskorendapennann þessa vikuna Af Facebook og öðrum þráðum! Farfuglar streyma til landsins Álftabreiður á sléttum vestur- bakka Héraðsvatna í Vallhólmi „Alltaf er nú svanasöngurinn skemmtilegri en álftagargið,“ hefur maður heyrt að „kerlingin“ hafi sagt. En samkvæmt því sem Guðrún Kvaran ritar á Vísindavefinn er orðið svanasöngur notað um síðasta verk listamanns, tónskálds, rithöfundar eða ljóðskálds, og oft hans besta verk. Sú merking er rakin til fornrar grískrar frásagnar um að svanurinn syngi þegar hann er að dauða kominn. MYND: PF 31 TBL 19. ágúst 2020 40. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS . 6–7 BLS. 4 Olíutankarnir á Króknum teknir niður Nýttir sem meltu- geymar á Vestfjörðum BLS. 10 Hrafnhildur Viðars hefur opnað sérhæfða naglasnyrti- stofu á Sauðárkróki Game of Nails Hera Birgisdóttir læknir segir frá degi í lífi brottflutts Saknar íslenska viðhorfsins „þetta reddast“ Bjóðum alhliða lagnahreinsun á sérútbúnum bíl Losum stífl r úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, reg vatns- og skólplögnum. Hreinsum trjárætur ú lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar á sandföngum, fit - og olíugildrum. Holræsa- og stífluþjónusta Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958. Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Meirapróf - Vinnuvélanámskeið Ökunám - Endurmenntun Birgir Örn Hreinsson Ökukennari S: 892-1790 bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400 www.facebook.com/velavalehf www.facebook.com/velavalehf & 453 88 88 velaval@velaval.is Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Stórprent í toppgæðum Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum Veðrið hefur leikið við landsmenn undanfarna daga með hita upp á 20 stig og jafnvel meira og að sjálfsögðu stillu norðanlands sem er ávísun á næturdögg. Á mánu- dagsmorgun mátti sjá hvernig áfallið baðaði umhverfið a.m.k. í og við Sauðárkrók. Á Borgarsand- inum höfðu maurköngulær spunnið breiðu af fallegum vefjum svokölluðum vetrarkvíða sem Ingólfur Sveinsson, sá er tók meðfylgjandi mynd, segir sjaldgæfa sjón. Matthías Alfreðsson, skordýrafræð- ingur hjá NÍ segir vetrarkvíða vera náttúrufyrirbrigði sem voðköngulær eru þekktar fyrir að spinna og leggist eins og silki yfir gróður. Blökkuló (Erigone arctica) er dæmi um tegund sem skilur eftir sig slíka þræði. Á vef Náttúrufræðistofnunar Ís- lands kemur fram að maurkönguló sé tiltölulega sjaldgæf en fundin í öllum landshlutum, e.t.v. algengari um norðanvert landið en á landinu sunnanverðu, á miðhálendinu í Fróðárdal við Hvítárvatn. Maurkönguló finnst í runnum og trjám, einnig í klettum og skriðum, ekki eins hænd að vatni og frænka hennar sveipköngulóin (Larinioides cornutus). Vefurinn er hjóllaga, tengdur milli greina inni í runnum eða utan í þeim eða á milli steina. Hér á landi hafa maurköngulær fundist kynþroska í júlí og ágúst. Almennt Maurkönguló er lítt áberandi þar sem lítið er af henni og hún dylst vel í kjörlendi sínu. Auk þess er vefurinn fíngerður og óáberandi, varla nema um hálfur metri í þvermál ef aðstæður leyfa. Maurkönguló er mjög lík sveip- könguló, þó heldur minni, og er stundum vissara að aðgæta kynfæri til að aðgreina þessar frænkur með vissu. Oftast er afturbolur þó dekkri á maurkönguló og ekki ljós rönd aftur eftir honum miðjum. Miðbakið er að mestu dökkt en ljóst þverbelti sker dökka flekkinn í tvo hluta rétt framan miðju á kvendýrum. Þetta getur þó verið breytilegt. Neðan á afturbol eru tveir svigalaga ljósir blettir eins og á sveipkönguló, og fætur eru sömuleiðis rauðleitir eða rauðgulir með dökkum beltum. Í heiminum eru þekktar um 44.000 tegundir köngulóa, á Íslandi 91 tegund auk slæðinga. /PF Könguló n sveipar melgresið silki Áfall næturinnar í só argei lum árdagsins Þessa skemmtilegu mynd tók Ingólfur Sveinsson sl. mánudagsmorgun af maurkönguló sem hafði strengt vef milli melgresisstráa. Sagði hann vefina hafa verið fjölmarga á svæðinu og sagði slíka breiðu vefja sem baðaðir eru næturdögginni kallaða vetrarkvíða. Sáust þeir vel í morgunsárinu áður en döggin hvarf með hækkandi sól. MYND: INGÓLFUR SVEINSSON .f . / l l f l l l l.i VÉLAVAL VARMAHLÍÐ

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.