Feykir


Feykir - 30.03.2022, Blaðsíða 6

Feykir - 30.03.2022, Blaðsíða 6
Áfram er haldið með heimsóknir á Nafirnar á Króknum en þar hafa frístundabændur lengi verið með kindurnar sínar og notið náttúru og mannlífs sem þar ríkir. Þó margir þeirra hafi verið þar í langan tíma með sinn búskap er einnig hægt að finna einhverja sem teljast til nýseta og er Hörður Sigurjónsson einn af þeim. Misserin er enn hægt að telja á fingrum annarrar handar frá því hann fékk sér kindur og líkt og aðrir Nafabændur líkar honum vel að snúast í kringum féð og taka þátt í skemmtilegu mannlífi. Þó Hörður sé nýliði á Nöfunum er ekki hægt að segja að hann sé alger nýgræðingur í fjárrækt- inni þar sem hann ólst upp á stóru fjárbúi í Ytri-Hlíð í Vopnafirði og var sjálfur bóndi á tímabili. Nafabændur | Hörður Sigurjónsson „Það er gaman að vera hér og hitta félagana“ Það er gott lag á hópnum hjá Herði. MYNDIR: PF UMSJÓN Páll Friðriksson Árið 2002 flutti Hörður á Sauðárkrók með fjölskyldu sína og þá voru hestarnir brúkaðir og segir hann að, eins og margir, hafi hann átt of marga hesta þá sem oftar. „En síðast- liðið sumar seldi ég minn síðasta hest. Á engan núna. Var búinn að eiga hross í rúmt 51 ár þegar ég seldi meri sem ég átti í ágúst. Það er léttara að vera með kindurnar, þær hafa ekki farið eins illa með mig, hafa ekki ennþá náð að beinbrjóta mig eins mikið og hestarnir,“ segir hann hlæjandi. Ekki það að neinar sögur séu rifjaðar upp af óhappaferðum hesta- mennskunnar. En eins og áður sagði er Hörður tiltölulega nýbyrjaður búskap á Nöfunum en haust- ið 2019 fékk hann sér kindur. „Þá keypti ég átta gimbrar, forystusauðinn og hrút, var með tíu fyrsta árið. Sótti sex gimbrar í Gunnarsstaði og sauðinn og svo hrút í Hjarðarás og tvær gimbrar. Síðan hef ég keypt annars staðar frá, m.a. frá Máfahlíð á Snæfellsnesi og Garði í Þistilfirði.“ Hörður segir tuttugu hausa vera í húsunum í dag, sauður og tveir hrútar meðtaldir, sem er meira en lagt var með upp í fyrstu. Hann bendir á að hægt sé að breyta því snarlega ef hópurinn skilar ekki ásættan- legum afurðum. Hörður vill meina að 15 til 16 kindur væri nóg bæði upp á hey og annað að gera en túnið sem fylgir húsinu er lítið og takmarkað sem af því kemur. „Maður er að þessu sér til gamans og þá þarf maður að hafa gaman af þessu,“ segir hann. Í eitthvað er að líta Þó skrítið sé að orða það þannig þá kom þessi rollu- búskapur ekki til af góðu því Hörður lenti í því árið 2017 að detta út af vinnumarkaði og segir hann það ekki hafa verið gott. „Ég er ekki alinn upp í því að gera ekki neitt og þetta var djöfullegur tími að gera ekki neitt. Ég er alinn upp á sauðfjárbúi og er rollukall í hausnum á mér þannig að mér datt þetta í hug, var heppinn og fékk hús og hef bara gaman af þessu. Ég geri eins mikið úr þessu og ég get, fer tvisvar á dag og gef. Mér var sagt þegar ég byrjaði að ég ætti að setja rúllu út og fara uppeftir á viku fresti en ég sagðist ekki vera nærri því svo vitlaus, þó ég væri tæpur,“ segir hann og skellir upp úr. En hvað skyldi vera svona skemmtilegast við þetta? „Það er að sjá kindurnar fóðrast og dafna og svo náttúrulega að fá nýjar og sjá hvað þetta gerir í afurðum og annað. Svo þarf að vinsa það besta úr og hitt fer hina leiðina, handa bóndanum að éta,“ segir hann og bætir við hlæjandi: „Eins og á honum sést.“ Hörður er greinilega mikill ræktunarmaður í sér enda segir hann þennan áhuga alltaf hafa blundað í sér. „Maður er alinn upp við þetta og gat ekki komist hjá því að eitthvað af þessu færi í hausinn á manni.“ Hvernig er svo lífið á Nöfunum? „Mér finnst það fínt. Það er gaman að vera hérna og hitta félagana. Hörður við gegningar en hann fer tvisvar á dag til að gefa. Hrúturinn er afslappaður á þessum árstíma. 6 13/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.