Feykir - 30.03.2022, Blaðsíða 6
Áfram er haldið með
heimsóknir á Nafirnar á
Króknum en þar hafa
frístundabændur lengi verið
með kindurnar sínar og notið
náttúru og mannlífs sem þar
ríkir. Þó margir þeirra hafi
verið þar í langan tíma með
sinn búskap er einnig hægt
að finna einhverja sem teljast
til nýseta og er Hörður
Sigurjónsson einn af þeim.
Misserin er enn hægt að telja
á fingrum annarrar handar
frá því hann fékk sér kindur
og líkt og aðrir Nafabændur
líkar honum vel að snúast í
kringum féð og taka þátt í
skemmtilegu mannlífi.
Þó Hörður sé nýliði á Nöfunum
er ekki hægt að segja að hann sé
alger nýgræðingur í fjárrækt-
inni þar sem hann ólst upp á
stóru fjárbúi í Ytri-Hlíð í
Vopnafirði og var sjálfur bóndi
á tímabili.
Nafabændur | Hörður Sigurjónsson
„Það er gaman að
vera hér og hitta félagana“
Það er gott lag á hópnum hjá Herði.
MYNDIR: PF
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Árið 2002 flutti Hörður á
Sauðárkrók með fjölskyldu sína
og þá voru hestarnir brúkaðir
og segir hann að, eins og
margir, hafi hann átt of marga
hesta þá sem oftar. „En síðast-
liðið sumar seldi ég minn
síðasta hest. Á engan núna. Var
búinn að eiga hross í rúmt 51 ár
þegar ég seldi meri sem ég átti í
ágúst. Það er léttara að vera
með kindurnar, þær hafa ekki
farið eins illa með mig, hafa
ekki ennþá náð að beinbrjóta
mig eins mikið og hestarnir,“
segir hann hlæjandi. Ekki það
að neinar sögur séu rifjaðar
upp af óhappaferðum hesta-
mennskunnar.
En eins og áður sagði er
Hörður tiltölulega nýbyrjaður
búskap á Nöfunum en haust-
ið 2019 fékk hann sér kindur.
„Þá keypti ég átta gimbrar,
forystusauðinn og hrút, var
með tíu fyrsta árið. Sótti sex
gimbrar í Gunnarsstaði og
sauðinn og svo hrút í Hjarðarás
og tvær gimbrar. Síðan hef ég
keypt annars staðar frá, m.a. frá
Máfahlíð á Snæfellsnesi og
Garði í Þistilfirði.“
Hörður segir tuttugu hausa
vera í húsunum í dag, sauður
og tveir hrútar meðtaldir, sem
er meira en lagt var með upp í
fyrstu. Hann bendir á að hægt
sé að breyta því snarlega ef
hópurinn skilar ekki ásættan-
legum afurðum. Hörður vill
meina að 15 til 16 kindur væri
nóg bæði upp á hey og annað
að gera en túnið sem fylgir
húsinu er lítið og takmarkað
sem af því kemur. „Maður er að
þessu sér til gamans og þá þarf
maður að hafa gaman af þessu,“
segir hann.
Í eitthvað er að líta
Þó skrítið sé að orða það
þannig þá kom þessi rollu-
búskapur ekki til af góðu því
Hörður lenti í því árið 2017 að
detta út af vinnumarkaði og
segir hann það ekki hafa verið
gott. „Ég er ekki alinn upp í því
að gera ekki neitt og þetta var
djöfullegur tími að gera ekki
neitt. Ég er alinn upp á
sauðfjárbúi og er rollukall í
hausnum á mér þannig að mér
datt þetta í hug, var heppinn og
fékk hús og hef bara gaman af
þessu. Ég geri eins mikið úr
þessu og ég get, fer tvisvar á dag
og gef. Mér var sagt þegar ég
byrjaði að ég ætti að setja rúllu
út og fara uppeftir á viku fresti
en ég sagðist ekki vera nærri
því svo vitlaus, þó ég væri
tæpur,“ segir hann og skellir
upp úr.
En hvað skyldi vera svona
skemmtilegast við þetta? „Það
er að sjá kindurnar fóðrast og
dafna og svo náttúrulega að fá
nýjar og sjá hvað þetta gerir í
afurðum og annað. Svo þarf að
vinsa það besta úr og hitt fer
hina leiðina, handa bóndanum
að éta,“ segir hann og bætir við
hlæjandi: „Eins og á honum
sést.“
Hörður er greinilega mikill
ræktunarmaður í sér enda
segir hann þennan áhuga alltaf
hafa blundað í sér. „Maður er
alinn upp við þetta og gat ekki
komist hjá því að eitthvað af
þessu færi í hausinn á manni.“
Hvernig er svo lífið á
Nöfunum? „Mér finnst það
fínt. Það er gaman að vera
hérna og hitta félagana.
Hörður við gegningar en hann fer tvisvar á dag til að gefa. Hrúturinn er afslappaður á þessum árstíma.
6 13/2022