Feykir - 11.05.2022, Page 4
Dómsmálaráðherra hefur, með
vilyrði fjármálaráðherra,
ákveðið að ganga til viðræðna
við Blönduósbæ um kaup á
stjórnsýsluhúsnæði bæjarins að
Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi. Á
heimasíðu Stjórnarráðsins segir
að með kaupum á fasteigninni
verði hægt að bæta nýtingu og
auka hagræði í rekstri en ríkið á
fyrir 1. og 3. hæð hússins sem er
nýtt undir starfsemi sýslu-
mannsins á Norðurlandi vestra
og lögreglunnar.
Ennfremur kemur fram að
með sameiningu Blönduós-
bæjar og Húnavatnshrepps
hafi verið lagt upp með að
skrifstofur hins sameinaða
sveitarfélags yrðu á nýjum
stað.
„Um langa tíð hefur verið
sóst eftir eflingu sýslumanns-
embættisins og innheimtu-
miðstöðvarinnar hér á
Ríkið eignast stjórnsýsluhúsnæði Blönduósbæjar
„Auðveldar okkur vinnuna,“ segir
Guðmundur Haukur um kaupin
Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Blönduósbæjar, og Jón
Gunnarsson, dómsmálaráðherra. MYND AÐSEND
Blönduósi og eru þetta því
verulega ánægjulegar fréttir
fyrir okkur,“ segir Guð-
mundur Haukur Jakobsson,
forseti sveitarstjórnar Blöndu-
ósbæjar. „Ekki bara það að við
sjáum fram á aukningu starfa á
vegum hins opinbera heldur
byggir þetta líka undir það
sem við höfum unnið að í
sameiningarviðræðum sveit-
arfélaganna, Blönduósbæjar
og Húnavatnshrepps, með að
ráðhúsi verði fundinn nýr
staður á Blönduósi fyrir nýtt
sameinað sveitarfélag.“
Guðmundur segir það
ánægjulegt þegar áfram miðar
í því sem unnið hefur verið að.
„Þetta skref dómsmála-
ráðherra mun auðvelda okkur
vinnuna við að koma ráðhúsi á
nýjan stað við upphaf nýs
sveitarfélags, þar sem áhersla
verði lögð á að koma stjórn-
sýslunni og velferðarsviðinu
undir sama þak.“
Í tilkynningu dómsmála-
ráðuneytisins kemur fram að
kaup ríkisins á húsnæðinu falli
vel að áformum dómsmála-
ráðherra um að styrkja starf-
semi sýslumanna undir einni
þjónustustofnun þannig að
úr verði nútímalegar stjórn-
sýslustöðvar ríkis í heima-
byggð, sem veita framúrskar-
andi þjónustu, óháð
staðsetningu borgarans eða
stjórnsýslustöðvarinnar.
„Með breyttu skipulagi
verður hægara um vik að fela
starfsstöðvum ný verkefni hins
opinbera sem snúa að þjónustu
við almenning á landinu öllu.
Samhliða er tækifæri til að
bæta starfsaðstöðu lögregl-
unnar á Blönduósi,“ segir á
stjornarradid.is. /PF
Það var nóg að gera hjá Ölmu
Möller landlækni sl. föstudag
en þá heimsótti hún bæði
Blönduósbæ og Húnaþing
vestra sem gerðust aðilar að
Heilsueflandi samfélagi.
Á Hvammstanga skrifuðu
hún og Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir sveitarstjóri
undir samning um innleið-
ingu Heilsueflandi samfélags
í Húnaþingi vestra en á
Blönduósi var það Valdimar
O. Hermannsson sveitarstjóri
sem skrifaði undir fyrir hönd
sveitarfélagsins.
Með samningnum skuld-
binda Húnaþing vestra og
Blönduós sig til að innleiða
markmið Heilsueflandi sam-
félags í sveitarfélögunum í
samræmi við samninginn.
Fram kemur í frétt á vef
Húnaþings vestra að „...með
undirskrift samnings um
Heilsueflandi samfélag ein-
setja sveitarfélög sér að vinna
markvisst lýðheilsustarf, í
samræmi við markmið og
leiðarljós Heilsueflandi
samfélags með stuðningi frá
Embætti landlæknis og
öðrum sem að starfinu koma.
Í markvissu lýðheilsustarfi er
bilið á milli gagna, stefna og
aðgerða brúað með því að
nota lýðheilsuvísa, gátlista og
önnur gögn til að meta
stöðuna og forgangsraða í
samræmi við þarfir hvers
samfélags. Miðlægt vefkerfi,
sem er í þróun, styður
samfélög í að halda utanum
starfið, meta framvindu
þess og miðla áfram.“ /ÓAB
Blönduós og Húnaþing vestra
Gerðust aðilar að
Heilsueflandi samfélagi
Ragnheiður Jóna og Alma Möller í góðum félagsskap barna í Húnaþingi vestra.
MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA
4 18/2022
Í Húnaþingi vestra hefur
alltaf verið gott að vera en
betur má ef duga skal. Síðustu
fimmtán ár hef ég komið
reglulega heim og haldið
góðum tengslum við mitt
fólk hér á svæðinu, hvort
sem það er með heimsókn á
Hvammstanga í foreldrahús
eða í sumarbústað í
Vesturhópinu.
Þegar ég áttaði mig á því að
ég hafði prófað flest það sem
ég hafði áhuga á í Reykjavík
og tækifærið á að koma heim
og hitta alla gömlu vinina sem
voru búnir að skila sér heim,
þá greip ég það. Samfélagið
hérna býður upp á svo margt
sem ekki er í boði annars
staðar að það er hreinlega
fallegt. Heimsóknirnar, ferð-
irnar og allt hitt á einu ári
eftir heimkomu, það er alltaf
eitthvað um að vera. Þetta er
samfélag sem ég vil búa í og ég
held að fleiri vilji koma hingað
og setjast hér að.
Hins vegar vil ég sjá
sveitarfélagið gera betur, það
eru of margir hlutir sem við
erum eftir á með. Við í N -
listanum viljum frisbígolfvöll
strax upp í Hvamm. Ef
samfélagið vill fá völlinn þá
gerum við völl! Ef fólk þarf
að hjálpast að, þá hjálpumst
við að! Þetta er afþreying
sem nýtist heimamönnum,
ferðamönnum og hægt er
að setja upp víðsvegar í
sveitarfélaginu!
Aðstöðuhúsleysið fyrir
íþróttaiðkun í fótbolta og
frjálsar íþróttir er bagalegt,
sú vinna er komin í gang
en það þarf að tryggja að
sveitarfélagið styðji við
íþróttafélögin hér svo slíkt
aðstöðuhús rísi. Íþróttafélögin
þurfa að kafa djúpt í grunn-
hugmyndafræðina hjá sér
og þar þarf fólk að hjálpast
að til að hús rísi. Þannig
þurfa íþróttafélögin að koma
með sjálfboðaliðavinnu að
borðinu eins og tíðkaðist
hér forðum daga þegar mörg
mannvirki risu. Til þess að
okkar sveitarfélag geti boðið
upp á þjónustu á hæsta stigi
þurfum við öll að hjálpast að.
Sveitarfélagið þarf þá á sama
tíma að koma með fjármagn
svo hægt verði að reisa
viðunandi aðstöðuhús svo
iðkendur hér á svæðinu hafi
sambærilega aðstöðu við sína
íþróttaiðkun og aðrir krakkar
á Íslandi.
Við höfum engan fjölnota
klefa í Íþróttamiðstöð Húna-
þings vestra fyrir fatlaða eða
aðra með sérþarfir. Hleðslu-
stöðvar fyrir rafmagnsbíla
eru komnar út um allt land
en engin sjáanleg á Hvamms-
tanga, enn eitt dæmið um
það þar sem við erum á eftir
öðrum. Dæmin eru nokkur
þar sem við erum hreinlega
á eftir og úr því þarf að bæta
svo sveitarfélagið standist
nútímakröfur þess samfélags
sem við búum í á Íslandi. Allar
framkvæmdir telja, um leið
og eitt klárast þá margfaldast
það í virði fyrir sveitarfélagið
allt. Húnaþing vestra á ekki
að vera eftirbátur annarra
sveitarfélaga á þessum sviðum
né öðrum. Því þarf ungt fólk
að hafa rödd sem tekið er
eftir í sveitarstjórnarmálum
Húnaþing vestra og ekki er
hægt að bóka bara og ýta
til hliðar, heldur þarf ungt
fólk að hafa atkvæðisrétt í
sveitarstjórn.
Setjum x við N þann 14. maí
og fáum ungt fólk til ábyrgðar!
Þorgrímur Guðni Björnsson
2. sæti N – listans í
Húnaþingi vestra
X2022 | Þorgrímur Guðni Björnsson N-lista í Húnaþingi vestra
Tækifæri til sóknar í Húnaþingi vestra