Feykir - 11.05.2022, Blaðsíða 6
6 18/2022
Nú styttist í kosningar sem
haldnar verða laugardaginn
14. maí næstkomandi. Yfir
kjósendur hvolfast stefnuskrár
og loforð frambjóðenda um
hvernig þeir vilji vinna að
því að gera samfélagið okkar
enn betra. Mikill samhljómur
er í þeim loforðum og allir
vilja leggja sitt af mörkum
fyrir hið nýja sveitarfélag. En
hvað einkennir góð samfélög?
Hvernig má byggja upp
samfélag sem hlúir að öllum
þeim þáttum sem íbúar telja
mikilvæga?
Hagsæld og velferð íbúa
samfélags verður ekki einungis
byggð á rekstrarlegum for-
sendum, útsvari eða úthlutun-
um jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Góð samfélög byggja upp
lífsgæði íbúa á sem breiðustum
grunni. Þau byggja ofan á það
sem vel hefur verið gert og
leggja vinnu í að byggja upp og
laga það sem bæta má. Vinna
að því að gæði samfélagsins
skiptist sem jafnast á milli íbúa
þess og að allir fái tækifæri til
að taka þátt í uppbyggingu
samfélagsins. Flétta þarf
saman þarfir allra íbúanna og
uppfylla þær lagalegu skyldur
sem sveitarfélögum er gert
að uppfylla. Þetta er hlutverk
hinnar nýju sveitarstjórnar en
hún gerir það ekki án íbúanna.
Velferð allra íbúa samfélagsins
þarf að vera hornsteinn í
uppbyggingu nýs sveitarfélags.
Undirbúa þarf jarðveginn vel
svo að atvinna, landbúnaður,
skólastarf, heilbrigðisþjónusta,
félagsþjónusta, nýsköpun, fyrir-
tækjarekstur, ferðamennska
og afþreying hvers konar geti
blómstrað.
Byggja þarf upp innviði og
þjónustu sem laðar að nýja íbúa
og fær unga fólkið okkar til að
snúa heim að loknu námi og
stækka og auðga samfélagið
okkar.
Miklir möguleikar felast í
uppbyggingu á Húnavallasvæð-
inu, þessa möguleika þarf að
kortleggja. Finna þarf fjárfesta
sem hafa burði og þekkingu til
að halda áfram uppbyggingu
og eru tilbúnir að nýta sér
þær miklu endurbætur sem
gerðar hafa verið á húsnæðinu
á síðustu árum. Slík starfsemi
felur í sér verulega fjölgun starfa
á svæðinu og eykur umsvif
ferðaþjónustunnar hér á svæð-
inu til framtíðar. Hugmyndir um
umhverfisakademíu falla vel að
slíkri starfsemi.
X2022 | Jón Gíslason og Berglind Hlín Baldursdóttir H-listanum í Austur-Húnavatnssýslu
Nýtt og betra samfélag
Í stefnuskrá H-listans er
að finna önnur áhersluatriði
sem listinn vill vinna að næsta
kjörtímabil.
Sameining Húnavatnshrepps
og Blönduósbæjar er nú, eftir
margra ára undirbúning,
orðin að veruleika. Pólitísku
framboðin hafa farið mikinn
með móttöku þingmanna,
ráðherra og haldið úti kosn-
ingaskrifstofum. Keppt hefur
verið um að tilkynna loforð
stjórnmálaflokkanna um
verkefni á svæðinu sem búið
væri að koma í höfn að þeirra
tilstuðlan. Þarna er um að
ræða að lagning á bundnu
slitlagi á Blönduósflugvelli
sé komin á samgönguáætlun
en einnig að ráðherra sé
kominn með heimild til að
ganga til samninga um kaup
ríkisins á skrifstofuhúsnæði
Blönduósbæjar. Þetta eru að
sjálfsögðu góðar fréttir en
rétt að árétta að þessi verkefni
ásamt þeim fjármunum
sem fengist hafa loforð fyrir
í Umhverfisakademíu á
Húnavöllum eru allt hluti af því
sem undirbúningsnefnd um
sameiningu sveitarfélaganna
hefur barist fyrir í sinni vinnu
allt frá því að fyrri samein-
ingarvinnan hófst.
H-listinn er ópólitískt fram-
boð og hefur því ekki tekið
þátt í heimboðun þingmanna
eða ráðherra nú í aðdraganda
kosninganna. Engu að síður
er H-listinn tilbúinn að vinna
að málefnum nýs sveitarfélags
með öllum stjórnmálaflokkum
á kjörtímabilinu og vonar að
þeir verði eins duglegir og nú
að mæta á svæðið eftir kosn-
ingar.
Nú ríður á að vanda til verka
og byggja upp samfélag sem
allir geta verið ánægðir með og
að það uppfylli þær kröfur að
vera gott samfélag. H-listinn
mun gera allt sem í hans valdi
stendur til að svo geti orðið.
Við óskum því eftir stuðningi
ykkar á kjördag.
Setjið X við H.
Jón Gíslason og
Berglind Hlín Baldursdóttir
Höfundar skipa tvö efstu
sætin á H-lista fyrir
sveitarstjórnarkosningar
14. maí næstkomandi.
Það dýrmætasta sem við
eigum er góð heilsa. Hér á
orðatiltækið ,,enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur“
einstaklega vel við. Að vera
hluti af heild, hvort sem það
er á vinnustað eða í félags- og
tómstundastarfi, tel ég afar
mikilvægt, því öll viljum við
eiga samleið með öðrum í
gegnum lífið.
Nú á tímum er aukin umræða
um mikilvægi andlegrar heilsu
og áhrif hennar á líkamlega
heilsu einstaklings. Við full-
trúar ByggðaListans teljum
mikilvægt að sveitarfélagið
sé leiðandi í því að halda
vel utan um starfsfólk sitt
og skapa aðstæður þar sem
einstaklingar geti komið
skoðunum sínum á framfæri
og fengið áheyrn, komið
skoðunum sínum á framfæri
og handleiðslu/ráðgjöf ef
þörf þykir. Við teljum að
samfélagið okkar geti verið
leiðandi í því að skapa góðar
aðstæður fyrir starfsfólk með
markvissu lýðheilsustarfi. Bætt
heilsa og vellíðan stuðlar að
betra starfsumhverfi og gerir
störfin eftirsóknarverðari.
Sveitarfélagið Skagafjörður
gerðist heilsueflandi samfélag
árið 2019 og teljum við tæki-
færi leynast í því að skipa
teymi sem veitir starfsfólki
okkar ráðgjöf og stuðning. Þar
yrði horft til bæði líkamlegrar,
andlegrar og félagslegrar
vellíðunar starfsfólks. Við
þurfum að ná utan um fólkið
okkar sem oft á tíðum vinnur
undir miklu álagi. Þessi vinna
verður sérstaklega mikilvæg
á næstu misserum, þar sem
útlit er fyrir að langtímaáhrif
Covid-19 verði síst minni en af
faraldrinum sjálfum.
Lífaldur fer hækkandi og
er það fagnaðarefni. Mikilvægt
er að sveitarfélög komi vel að
þjónustu við eldri borgara þar
sem þau hafa jú plægt akurinn
fyrir okkur sem tökum við
góðu búi samfélagsins. Að
mæta þessum hóp með
þjónustu um allt hérað í
formi fæðis- og aksturs-
þjónustu og að allir hafi jöfn
tækifæri til að taka þátt í
félags- og tómstundastarfi
óháð búsetu eða aldri, finnst
okkur grundvallaratriði í
nútíma samfélagi. Við full-
trúar ByggðaListans teljum
mikilvægt að mæta einstakl-
ingum eftir þörfum og skapa
aðstæður þar sem allir geta
blómstrað í leik og starfi.
Þau okkar sem ekki búa
við hamlanir af einhverju
tagi verða oft óþarflega lítið
X2022 | Jóhanna Ey Harðardóttir L-lista ByggðaListans í Skagafirði
Hvernig eflum við mannauðinn?
vör við það sem betur mætti
fara í okkar samfélagi svo
allir meðlimir þess hafi jafnt
aðgengi að því sem við tökum
oft á tíðum sem sjálfsögðum
hlut. Eins og til dæmis að
komast leiðar sinnar við
hversdagslega iðju og sinna
félags- og tómstundastarfi. Að
lenda skyndilega í því að þurfa
að berjast fyrir tilvist sinni eða
fjölskyldumeðlims er eitthvað
sem enginn er undirbúinn
fyrir. Það er því til skammar að
skert aðgengi hreyfihamlaðra
að stofnunum og eignum
sveitarfélagsins komi í veg
fyrir fulla þátttöku þeirra í
samfélaginu, auk þess sem
einstaklingar og aðstandendur
þurfa ítrekað að þrýsta á
að viðunandi aðgengi sé til
staðar í leik- og grunnskólum.
Við fulltrúar ByggðaListans
viljum að framkvæmd verði
úttekt á aðgengi í stofn-
unum og öðru húsnæði á
vegum sveitarfélagsins og í
framhaldinu sett markviss
áætlun til úrbóta. Við viljum
að sú úttekt miðist ekki
einungis við aðgengi að bygg-
ingum, heldur gangi einnig
út frá því að allir hafi kost á
jöfnu aðgengi að félags- og
tómstundastarfi við aðstæður
sem eru í takt við 21. öldina.
Í Skagafirði er mannauð-
urinn mikill og krafturinn úr
umhverfinu engu líkur. Við
teljum Skagafjörð hafa allt til
brunns að bera í því að vera
framúrskarandi er kemur að
lýðheilsu og ánægju starfsfólks
og íbúa. Með því að hlusta á
þarfir og sjónarmið íbúa og
starfsfólks sveitarfélagsins
getum við skapað framúr-
skarandi starfsaðstæður og
gert sveitarfélagið okkar eftir-
sóknarvert til búsetu.
Jóhanna Ey Harðardóttir
Höfundur skipar 1.
sæti ByggðaLista fyrir
sveitarstjórnarkosningar
14. maí næstkomandi.