Feykir - 11.05.2022, Blaðsíða 12
Skólahreysti 2022
sögn Línu íþróttakennara sem
af miklum metnaði hefur byggt
upp menningu og metnað í
tengslum við skólahreysti,“
segir á varmahlidarskoli.is.
Í sömu keppni náði Árskóli
öðru sætinu og Gr.sk. austan
Vatna og Húnavallaskóli end-
uðu í 5. og 6. sæti.
Auk Varmahlíðarskóla verð-
ur Grunnskóli Húnaþings
vestra með í úrslitakeppn-
inni þar sem hann er einn af
fimm uppbótaskólum sem
tilkynntir voru sl. föstudag og
bætast í hóp sigurliðanna sjö
úr riðlakeppninni verða því
tólf lið sem keppa til úrslita
21. maí. /PF
Varmahlíðarskóli sigurvegari 6. riðils
Varmahlíðarskóli sigraði í 6. riðli
undankeppni Skólahreysti sem
fram fór í síðustu viku og er því
búinn að tryggja sér sæti í
úrslitum sem fram fara í
Laugardalshöll 21. maí.
Grunnskóli Húnaþings vestra
verður einnig með sem
uppbótaskóli.
Á heimasíðu skólans segir
að í upphafi keppni hafi strax
orðið ljóst að Varmahlíðarskóli
ætlaði sér sigur en hann var
efstur í tveimur af fjórum
einstaklingsgreinum áður en
kom að hinni æsispennandi
hraðaþraut sem vannst með
yfirburðum. Þetta er sjötta árið
í röð sem Varmahlíðarskóli
tryggir sér þátttöku í úrslitum.
Alls átta sinnum hefur hann
komist í úrslit af þeim tólf
skiptum sem skólinn hefur
tekið þátt.
„Við erum afar stolt af
árangri okkar krakka sem hafa
lagt mikið á sig á æfingum
vetrarins, undir öruggri leið-
Fulltrúar Varmahlíðarskóla: Bríet Bergdís Stefánsdóttir, Ronja Guðrún Kristjánsdóttir,
Arndís Katla Óskarsdóttir, Sigurlína Hrönn Einarsdóttir, Trausti Ingólfsson, Hákon
Kolka Gíslason og Ísak Agnarsson.
MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI
Fuglar á Norðurlandi vestra
Engin fuglaflensuhræ
fundist á svæðinu
Fyrir skömmu fór fram talning
á helsingjum í Skagafirði og
Húnavatnssýslunum á vegum
Náttúrustofu Norðurlands
vestra og fundust nálægt 45
þúsund fuglar. Að sögn Einars
Þorleifssonar, náttúrufræðings
hjá NNV, heppnaðist talningin
afar vel en helsingjarnir gera
hér stuttan stans á leið sinni til
norðaustur Grænlands.
„Grænlands-helsingjastofninn
er fremur lítill stofn sem er með
vetrarstöðvar í Skotlandi,
aðallega á viskí-eyjunni Islay.
Menn höfðu nokkrar áhyggjur
af að fuglarnir hefðu farið illa í
vetur af fuglaflensu en það var
ekki raunin. Raunar hef ég ekki
fundið nein hræ fugla af
fuglaflensu þrátt fyrir að hafa
skoðað tugi þúsunda gæsa, álfta
og anda í vor. Fáeinir sjaldgæfir
flækingsfuglar hafa fundist
þessa vikuna og í þeirri síðustu,
Ljóshöfðaönd á Áshildarholts-
vatni, hringdúfa í Vatnsdal og
alaskagæs við Skagaströnd,“
segir Einar.. /PF
Helsingjar fá ekki alltaf blíðar móttökur hjá íslenska vorinu en þessi mynd er tekin í
síðustu viku í Skagafirði. MYND: PF
12 18/2022
Í sveitarstjórn sitja fulltrúar
sem íbúar hafa kosið til að
standa vörð um hagsmuni
sína og taka ákvarðanir
fyrir þeirra hönd. Það
hefur verið gríðarlega
lærdómsríkt að hafa fengið
traust til þess að sitja í
sveitarstjórn sveitarfélagsins
Skagafjarðar síðastliðin
fjögur ár. Eiginlega eins og
að vera í námi með vinnu,
því að kvöld og helgar fara
í að setja sig inn í ákveðin
málefni eða eiga samtöl
við íbúa um hvað má gera
öðruvísi eða betur.
Börnin mín hafa stundum
yppt öxlum þegar ég sit yfir
lestri á grásleppu- eða fráveitu-
frumvarpi sem eru kannski
ekki efst á áhugalistanum en
það er nauðsynlegt að setja
sig inn í margvísleg málefni
sem kjörinn fulltrúi, öðruvísi
er ekki hægt að taka upplýst-
ar ákvarðanir. Ábyrgðin
er mikil og er það skylda
sveitarstjórnarfólks að leitast
við að taka afstöðu til mála út
frá heildarhagsmunum allra
íbúa.
Við höfum stuðlað að
Við hjá VG og óháðum
höfum einmitt horft á heildar-
hagsmuni íbúa og höfum meðal
annars stuðlað að verulegri
hækkun hvatapeninga og
styttingu vinnuvikunnar sem
tilraunaverkefnis á leikskólum
Skagafjarðar en sú tillaga VG
og óháðra var samþykkt af
sveitarstjórn í febrúar 2019
áður en stytting vinnuvikunnar
varð kjarabundin og er almenn
ánægja með útfærsluna. Við
höfum hvatt til þátttöku í
heilsueflandi samfélagi en sú
innleiðing var á málefnaskrá
okkar fyrir síðasta kjörtímabil.
Við komum því að í útboði
matar fyrir leik- og grunnskóla
á Sauðárkróki að eldað yrði
úr hreinni afurðum og sem
mest úr heimabyggð. Þannig
minnkum við kolefnisspor og
styrkjum eigin innviði. Við
höfum lagt áherslu á aukið
gagnsæi í stjórnsýslunni þó þar
þurfi enn að gera mikið betur.
Við höfum stuðlað að auknu
samráði við íbúa og lagt áherslu
á að úrvinnsla íbúafunda sé
sýnileg. Það er nauðsynlegt
að auðvelt sé að fylgjast bæði
með ákvarðanatöku fulltrúa
og þeim verkefnum sem unnið
er að hverju sinni. Þess vegna
viljum við sýnilegt mælaborð
á heimasíðu sveitarfélagsins
þar sem íbúar geta fylgst með
framvindu verkefna, kostnaði
við þau og hvernig úrvinnslu
íbúafunda er háttað. Slíkt
mælaborð myndi sannarlega
vera bæði aðhald fyrir þá
sem um peningana halda sem
og upplýsandi fyrir þá sem
peningana greiða.
Við höfum staðið gegn
Hlutverk minnihluta er
m.a. að sýna aðhald, spyrja
gagnrýninna spurninga og
leggja til aðrar lausnir en
X2022 | Álfhildur Leifsdóttir V-lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og óháðra í Skagafirði
Við viljum samtalið
þær sem einblínt er á. Það
höfum við gert t.d. með
því að óska margsinnis
eftir óháðri úttekt á lengd
jarðstrengs við fyrirhugaða
lagningu Blöndulínu 3 sem
og að leggja áherslu á að
slík framkvæmd sé gerð í
sem mestri sátt við íbúa. Við
höfum ekki samþykkt hækkun
álagninga fasteignagjalda
eða hækkun fæðisgjalda í
leik- og grunnskólum. Við
höfum staðið á móti hækkun
leikskólagjalda, enda eru
leikskólagjöld sveitarfélagsins
orðin með þeim hæstu á
landinu. Við samþykktum ekki
hækkun á leigu í félagslegum
íbúðum og viljum að leiguverð
á íbúðum í eigu sveitarfélagsins
taki mið af staðsetningu og
ástandi en ekki sé eingöngu eitt
leiguverð á fermetra. Við erum
eini listinn sem hefur staðið
gegn þessum hækkunum.
Við höfum aldrei samþykkt
meðferð Byggðarsafnsins
sem enn er geymt í kössum í
geymslurými að miklu leyti.
Við viljum ekki virkjanaáform
í Jökulsánum heldur vernda
sérstöðu þeirra. Við erum
eini listinn sem styður áform
Rammaáætlunar 3 um að setja
Jökulárnar í vernd og tökum
ekki undir áform meirihluta
um að halda Jökulsánum í
biðflokki.
Við viljum stefna á að
Samfélagið gerir kröfu um
stóraukið gagnsæi, opna
stjórnsýslu, heiðarleika og
vönduð vinnubrögð. Það er
sjálfsagt og eðlilegt að bregðast
við þeirri kröfu með t.d. skýrari
verkferlum í stjórnsýslunni,
greinargóðum fundargerðum,
með opnu bókhaldi og með
auknu samráði við íbúa og
íbúakosningum. VG og óháð
vilja að lögbundinni þjónustu
sé sinnt vel um allt hérað og að
við göngum lengra í valkvæðri
þjónustu sem skapar jöfnuð
og raunverulega heilsueflandi
og fjölskylduvænt samfélag.
Við heyrum mikið af skorti á
samtali við íbúa og starfsfólk
sveitarfélagsins.
Við viljum samtalið.
Álfhildur Leifsdóttir
Skipar 1. sæti á lista
VG og óháðra í Skagafirði