Feykir - 11.05.2022, Blaðsíða 11
Á dögunum var úthlutað úr
Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða fyrir árið
2022 og nemur rúmlega 548
milljónum króna en hæsti
einstaki styrkurinn er 55
milljónir kr. sem Fossabrekkur í
Rangárþingi ytra fær. Sex
verkefni á Norðurlandi vestra
fengu styrk upp á rúmlega
90 milljónir.
Framkvæmdasjóðurinn
fjármagnar framkvæmdir á
ferðamannastöðum og ferða-
mannaleiðum í eigu eða um-
sjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Mikill árangur hefur náðst í
starfi sjóðsins í að bæta innviði
um land allt og auka getu
svæðanna til að taka á móti
ferðamönnum, segir á vef
Stjórnarráðsins. „Styrkirnir
fara til verkefna hringinn í
kringum landið, stórra sem
smárra, sem öll skipta máli.
Uppbyggingin er grundvölluð á
heildarsýn fyrir hvern lands-
hluta og áfangastaðaáætlanir.
Styrkur úr sjóðnum stuðlar að
bættri upplifun og aðgengi
ferðamanna, bættu öryggi og
við styðjum við viðkvæma
náttúru landsins. Með þessu
stuðlum við að sjálfbærni
þeirra og tryggjum framtíð
þeirra sem áfangastaða um
ókomna tíð,“ segir Lilja Dögg
Alfreðsdóttir, ferðamála, menn-
ingar- og viðskiptaráðherra.
Eins og að framan greinir fá
sex verkefni á Norðurlandi
vestra styrk og fer sá hæsti, 31
milljón, til að koma fyrir salerni
við Þrístapa en alls fær Húna-
vatnshreppur úthlutað þremur
styrkjum.
Verkefnið við Þrístapa er á
áfangastaðaáætlun og tónar
það vel við áherslur sjóðsins
varðandi innviðauppbyggingu,
náttúruvernd og fleiri atriði.
Vatnsdæluverkefni fær tólf
milljóna króna styrk til að
halda áfram þeirri uppbygg-
Sækjum íslenska áfangastaði heim í sumar!
90 milljónir til ferðamannastaða
á Norðurlandi vestra
Hér sést hvernig hönnun við Ketubjörg er hugsuð. MYND: SKAGAFJORDUR.IS
ingu sem hefur verið á sögu-
sviði Vatnsdæla, vegna fjölda
ferðamanna sem sækja sögu-
sviðið heim ár hvert. Skilti
verða uppfærð og gönguleiðir
endurnýjaðar að áningarstöð-
um. Verkefnið er hluti af stærri
samhangandi heild í upplifun
ferðamanna, bætir hana, eykur
aðdráttarafl staðarins og er á
áfangastaðaáætlun svæðisins.
Loks er verkefnið sem snýr
að Hvammsfossi og er styrk-
urinn kr. 7,7 milljónir og felst í
bættu öryggi við fossinn,
bílastæði, göngustíg og lýsingu.
Til stendur að koma fyrir
göngustíg, bifreiðastæði og
lýsingu á gönguleið og við foss.
Verkefnið tónar því ágætlega
við áherslur sjóðsins. Tveir
síðastnefndu styrkirnir eru
veittir með fyrirvara um
samþykki landeiganda.
Sveitarfélagið Skagafjörður
fær tæpar 24 milljónir til að
hefja framkvæmdir við að
stórbæta aðgengi og aðstöðu
fyrir ferðamenn við Ketubjörg.
Búið er hanna tvö bílastæði við
tvo útsýnisstaði og fer styrk-
urinn í að skipuleggja og hanna
merkingar á svæðinu, hanna
göngustíga og öryggisráðstaf-
anir við björgin.
Rúmar 15 milljónir renna
til Sveitarfélagsins Skaga-
strandar til að bæta aðgengi og
vernda fugla- og plöntulíf á
Spákonufellshöfða með því að
stýra ferðamönnum um
ákveðin svæði og hvetja þá til
að fara ekki af göngustígum.
Verkefnið felur í sér úrbætur
á göngustígum, frágangi á
bílastæði sem og hönnun og
byggingu á fuglaskoðunar-
húsi sem vöntun er á. Fugla-
lífið einkennist af sjófuglum
og mófuglum og má finna
fræðsluskilti um fugla og
plöntur á göngu um svæðið.
Þá fær Húnaþing vestra
styrk til að gera örugga göngu-
leið með pollum og köðlum
frá viðlegukanti selaskoð-
unarbáts og áleiðis að Sela-
setrinu til að tryggja öryggi
ferðamanna og bæta upplifun,
alls 3,8 milljónir krónur.
Einnig er ætlunin að hanna
dvalarsvæði í fjöruborðinu
við Selasetrið til að bæta
aðgengi þangað, gera aðlað-
andi og tengja við náttúru- og
dýralífsskoðun en þaðan má
oft sjá seli, hvali og fjöl-
skrúðugt fuglalíf. /PF
18/2022 11
Húnaþing vestra er gott
samfélag til dvalar og búsetu.
Þjónustustig er hátt og
álögur lægri en víða annars
staðar. Pólitískur stöðugleiki
hefur einkennt líðandi
kjörtímabil og þar hafa allir
sveitarstjórnarfulltrúar, hvar
svo sem í flokki þeir standa,
lagt drjúgt lóð á vogarskál.
Með þennan pólitíska
stöðugleika í farteskinu hafa
mörg mikilvæg framfaramál
náð fram að ganga. D–
listinn leggur áherslu á
áframhaldandi pólitískan
stöðugleika og býður fram
krafta sína með blöndu
af reyndu og nýju fólki til
að standa vörð um gott og
dýrmætt samfélag og nýta enn
frekar tækifærin sem eru til
staðar í okkar héraði.
Við höfum fólkið í sveitar-
félaginu í forgrunni og það
gerðum við t.a.m. í gegnum
heimsfaraldurinn þar sem við
lögðum áherslu á að verja störf
og um leið grunnþjónustu
samfélagsins. Einn mikilvæg-
asti þáttur grunnþjónustunnar
eru skólamálin en þar
hefur grettistaki verið lyft á
kjörtímabilinu með byggingu
grunn- og tónlistarskóla-
húsnæðis undir sama þaki.
Öll sú uppbygging miðar
að því að leggja megi enn
frekari áherslu á faglegt starf
sem skilar börnunum okkar
góðu veganesti út í lífið. Þá
er einnig afar mikilvægt að
skapa fjölskylduvænt samfélag
í sveitarfélaginu og að áfram
verði hlúð að eldri borgurum.
Við leggjum ríka áherslu á
að bæta samgöngur og efla
innviði og byggja ofan á þá
vinnu sem unnin hefur verið í
þeim málaflokki. Samgöngu-
og innviðaáætlun SSNV var
samþykkt vorið 2019 og síðan
var endurskoðuð áætlun sam-
þykkt vorið 2022. Í þessari
áætlun er tæpt á því helsta sem
brennur á okkar samfélagi í
samgöngu- og innviðamálum
s.s.; uppbygging og viðhald
tengivega og annarra vega með
Vatnsnesveg í sameiginlegum
forgangi á Norðurlandi vestra,
betra fjarskiptasamband um allt
héraðið og tryggt afhendingar-
öryggi raforku með styrkingu
dreifi- og flutningskerfis.
Mikið innviðaátak hefur verið
unnið af hálfu sveitarfélagsins
með endurnýjun hitaveitu
í þéttbýli og við lagningu
hitaveitu í dreifbýli árin þar
á undan. Áfram skal haldið
með endurnýjun í þéttbýli og
nýframkvæmdir í dreifbýli.
Við viljum stuðla að fjöl-
skylduvænu og heilsueflandi
samfélagi fyrir unga sem aldna.
Í því sambandi er ánægjulegt
að nefna að Húnaþing vestra
er orðið formlegur þátttakandi
í verkefninu heilsueflandi
samfélag þar sem heilsa og
líðan íbúa er höfð í fyrirrúmi og
áþreifanleg í allri stefnumótun.
X2022 | Magnús Magnússon D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Húnaþingi vestra
Stöðugleiki og stefnufesta – tækifærin framundan
Mikilvægt er að allir íbúar
sveitarfélagsins geti fundið
eitthvað við sitt hæfi þegar
kemur að íþrótta, tómstunda-
og menningarmálum í sveitar-
félaginu. Við viljum kanna
frekari möguleika á þessum
sviðum.
Umhverfismál eru okkur
hugleikin og viljum við halda
áfram með þá vinnu sem unnin
hefur verið undanfarin ár. Ný
lög um sorphirðu taka gildi
um næstu áramót og verða
innleidd í áföngum. Þau kalla
á nýja hugsun m.t.t. neyslu íbúa
og almennings og enn frekari
flokkun og endurnýtingu sem
aftur horfir til umhyggju fyrir
náttúrunni og móður jörð.
Atvinnumál með landbúnað
í öndvegi eru grundvallaratriði
í okkar héraði líkt og víðar.
Við leggjum áherslu á að
skapa umhverfi sem styður við
fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Fjölbreytt, framsækin og sístæð
verðmætasköpun er undirstaða
lífskjara í okkar samfélagi og
þjóðfélagi.
Við leggjum höfuðáherslu
á ábyrga fjármálastjórn en
sveitarsjóður þarf að ná
vopnum sínum að nýju
eftir stærstu framkvæmdir í
sögu sveitarfélagsins í formi
skólabyggingarinnar. Ábyrg
fjármálastjórn mun auðvelda
okkur að takast á við þau
verkefni sem framundan
eru í bráð og lengd eins og
stuðningur við byggingu
aðstöðuhúss í Kirkjuhvammi,
lagningu frekari hitaveitu í
Hrútafirði, klára endurnýjun
hitaveitulagna á Hvammstanga
og lagningu ljósleiðara þar
og á Laugarbakka, viðhald og
endurbætur á Félagsheimili
Hvammstanga, gatnagerð í
Túnahverfi og undirbúning að
stækkun leikskólans.
Tækifærin eru við hvert
fótmál í okkar ágæta sveitar-
félagi og þau viljum við nýta
sem best. Við erum á réttri
leið og biðjum um þitt umboð,
kjósandi góður, til að leiða
sveitarfélagið áfram veginn
næstu fjögur ár.
Magnús Magnússon
oddviti D-lista sjálfstæðismanna og
óháðra í Húnaþingi vestra