Feykir - 11.05.2022, Page 9
en að fara tvisvar eða þrisvar er
best. Svo er ég afar hrifin af
fornbókaverslunum og æði í
þær hvar sem ég finn þær.“
Hversu margar bækur heldurðu
að þú eignist árlega og lestu
þær allar? „Ég vil einungis eiga
bækur sem ég get hugsað mér
að lesa oftar en einu sinni. Þess
vegna fara ekki allar bækur sem
ég fæ sendar eða kaupi upp í
hillu hjá mér. Ef mér líkar þær
ekki þá læt ég þær frá mér.
Auðvitað er dálítið svekkjandi
að losa sig við bækur sem
maður hefur borgað fyrir, en
það verður bara svo að vera.
Bókasafnið stækkar á hverju
ári, sennilega um 60-80 bækur.“
Ertu fastagestur á einhverju
bókasafni? „Þar sem ég fæ svo
mikið af bókum og kaupi
heilmikið þá þarf ég ekki að
nota bókasöfn og fer þangað
varla oftar en tvisvar á ári. En
fyrst ég hef tækifæri til þá vil ég
hrósa bókasafninu í Vest-
mannaeyjum, mér fannst það
alveg sérlega skenmmtilegt og
aðlaðandi þegar ég kom
þangað, reyndar fyrir ansi
mörgum árum.“
Hvaða bók heldurðu að þú hafir
lesið oftast eða er einhver bók
sem þér finnst þú ættir að lesa
árlega? „Á hverju ári les ég
nokkrar bækur eftir P.G.
Wodehouse af því hann er svo
skemmtilegur. Bækur hans um
Blandings kastala og Jeeves og
Wooster koma mér alltaf í gott
skap.“
Hefur þú heimsótt staði sér-
staklega vegna þess að þeir
tengjast bókum sem þú hefur
lesið? „Já, ég hef heimsótt hús
Charles Dickens í London,
farið með blóm að gröf Oscars
Wilde í París og að gröf
Dostojevskís í Pétursborg. Fyrir
mörgum árum heimsótti ég
heimili Bronte systranna og
það var mikil upplifun. Ég man
hversu lítil herbergin voru í
húsinu.“
Hver er eftirminnilegasta bókin
sem þú hefur fengið að gjöf?
„Fólk gefur mér ekki bækur!“
Hvað er best með bóklestri?
„Einvera.“
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
„Ég held að ég myndi gefa
fallega útgáfu af ljóðasafni
Jónasar Hallgrímssonar. Hann
er skáldið mitt.“
18/2022 9
Niðurstaða aðalvalkosta
kemur fram í merkingum
A1 – B1b til og með C2.
Mjög fagleg var og skipuleg
uppsetning á verkefninu
með teikningum og
myndum af 220 kw raflínu
milli Blöndustöðvar og
Akureyrar. Athygli vakti hve
fáir sveitarstjórnarmenn
úr Skagafirði voru mættir,
jafnstórt verkefni og
línulögnin er um þveran
fjörðinn og tenging
við spennivirki vestan
Varmahlíðar. Allmargir gestir
komu til kynningarinnar og
veitingar voru veglegar.
Blöndustöð-
Kiðaskarðsleið
Aðalvalkostur er A1 Kiða-
skarðsleið sem er 25 km
loftlína frá Blöndustöð að
nýju tengivirki í Mælifellsdal. Þar með
er Vatnsskarðsleið úr sögunni sem var
um margt afleitur kostur. Á leið A1 frá
Blöndustöð um Kiðaskarð eru rúmlega
20 jarðir flestar í einkaeign. Jarðrask
á Kiðaskarðsleið er um 38 hektarar.
Möstrin 93.
Frá tengivirki á Mælifellsdal er áform-
aður jarðstrengur 132 kw norður um
Efribyggð 15 km langur að tengivirki
við Varmahlíð sem er ágæt
lausn í stað loftlínu. Frá
tengivirki í Mælifellsdal um
Eggjar yfir Skagafjörð og inn
í Norðurárdal er alls um 13,7
km leið. Línan fer um tíu jarðir
sem allar eru í einkaeign og er
jarðraskið sem nemur um 9,5
hekturum og möstrin eru 42.
Hamraheiðin og
Hnjúkurinn
Ásýndin þegar horft er til
suðurs í átt að Mælifellshnjúk
nokkru ofan við bæinn Horn-
hvamm sýnir að línan fellur
vel inn í landið. Nálægðin við
línuna er meiri þegar kemur
í land Starrastaða sem síðan
þverar á milli Hafgrímsstaða
og Brúnastaða yfir Eggjar.
Alvarlegar athugasemdir hafa
komið frá bóndanum Maríu
Reykdal, Starrastöðum, en þar
hefur greinilega skort á samráð
og kynningu. Það á ef til vill um
fleiri jarðir. Þegar komið er í
mynni Norðurárdals við Egilsá
er línan norður um 62 km að
lengd að núverandi tengivirki
AÐSENT | Hörður Ingimarsson skrifar
Byggðalína, Blöndulína 3
Kynning á Blöndulínu 3, umhverfismatsskýrslu
í Miðgarði fimmtudaginn 31. mars 2022
Myndir frá kynningarfundi á Blöndulínu 3.
MYNDIR: HING
á Rangárvöllum á Akureyri. Heildar jarð-
rask á Öxnadalsleið mun nema um 52
hekturum, möstrin 207.
Mikil flutningsgeta
Heildarlengd Blöndulínu 3 frá Blöndustöð
til Akureyrar er skv. tillögum 102,6 km
með 220 kw spennu á 342 möstrum.
Flutningsgetan 550 MVA. Vandséð er
að betri tillögur komi um Blöndulínu 3
en skoðanaskiptum um línulögnina er
tæpast lokið. Gamla byggðalínan verður
fjarlægð þrem árum eftir að Blöndulína 3
kemst í notkun. Hún hverfur frá Miðsitju
um þvert skagfirska undirlendið. Það
er til bóta sem og víðar verður gamla
byggðalínan fjarlægð þar sem hún liggur
nú. Hlutverki hennar lokið.
Ávinningur sveitanna
Nýir vegslóðar sem leiðir
af línustæðinu eru um A1
Kiðaskarðsleið 21,7 km.
Um B1b leiðina norðan í
Mælifellshnjúk um Eggjar
til Norðurárdals 10,1 km. Þá
C2 Norðurárdalur - Akureyri
53,7 km. Allir þessir vegslóðar
munu bæta aðgengi og
umferð um margar bújarðir og
jarðarparta. Fylliefni í slóðir,
mastraplön og strengjalagnir
verða með allri Blöndulínu
3 386 þúsund rúmmetrar.
Efnistökustöðum eru gerð
sérstök skil.
Niðurlagsorð
Það er óskandi að stórauk-
inn orkuflutningur rafmagns
verði þjóðinni til gagns við
úrvinnslu þjóðargæða í sjávar-
útvegi og víðar. Myntslátta
á gervimynt tröllríði ekki
raforkukerfinu. Almenningur
fái notið gæða raforkunnar,
auðlindar íslenskrar þjóðar.
Hörður Ingimarsson