Feykir - 11.05.2022, Qupperneq 10
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Guðmundur Arnfinnsson sem er
höfundur að fyrstu limru þessa þáttar.
Hún Kamilla flott er og fín
og fallega hugsar til mín
hún svarar í símann
sæt allan tímann
og kurteis við karlrembu svín.
Eins og flestir vísnavinir vita féll nú
frá fyrir stuttu síðan einn af snjöllustu
vísnagerðamönnum síðustu áratuga,
Sigmundur Benediktsson á Akranesi.
Gott í minningu hans að rifja næst upp
þessar úrvals hringhendur þessa snjalla
vísnagerðamanns.
Hugans krímar hyggjuraus
hopar skíma bragsins.
Andinn hímir aflalaus
óskatíma dagsins.
Ofan hallar auðnuflá
yfir sallar trega.
Braga falla bliknuð strá
brotin alla vega.
Stirðri hriktir óðkvörn í
erjar gigtarfjandi.
Allar lyktir eru því
aðeins fikt að strandi.
Eins og lesendur vita hefur verið
smávegis um tímamót nú í vetur hjá
þættinum okkar vegna tugafmæla.
Gaman er að hafa lifað það og í tilefni
þess rifjast upp vísa sem gerð var þegar
aðeins 100 þættir höfðu birst. Höfundur
einn af góðum vinum þáttarins á þeim
tíma, Einar Sigtryggsson á Sauðárkróki.
Margslunginn er maðurinn
mátti blómvönd hirða.
Hundraðasta þáttinn þinn
þakka ber og virða.
Það er Jón bóndi í Víðimýrarseli sem
raðar orðum svo laglega í næstu
hringhendu:
Síst má yndi sundur tætt
sorg í lyndi baka.
Unaðs myndir getur glætt
góð og fyndin staka.
Næst rifjum við upp góðar fréttir héðan
úr Húnaþingi, vel skiljanleg limra án þess
að ég geti nú birt nafn höfundar.
Sagði mér Sigga frá Hofi
frá sambúðarslitum og rofi,
hjá Brynju og Óla
sem byrjaði að spóla,
í húnvetnsku kvenmanns klofi.
Illa hefur Covid veirudjöfullinn leikið
margt félagsstarf víða um land. Mun hún
hafa komið í Hveragerði eftir næstu vísu
að dæma, sem Hjörtur Benediktsson
mun hafa ort til félaga síns í kór þar, sem
því miður ég veit ekki hvað heitir.
Bara ef þú vinur vissir
að Viskí hressir, líka gin.
Bagalegt ef bassinn missir
bragð- og lyktarskyn.
Vísnaþáttur 807
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is
Kannski er undirritaður að fara með
fleipur en sagt er að Jón Gunnarsson,
nú ráðherra, hafi hér áður fyrr stundað
búskap á Barkarstöðum í Miðfirði. Veit
því miður ekki sönnur þar á en eftir
að sá umdeildi ráðherra hafði ráðið
sér, að dómi undirritaðs, tvo afburða
aðstoðarmenn komst eftirfarandi vísa á
kreik, veit því miður ekki um höfund.
Fyrrum bóndi á Barkarstöðum
býsna klár og ötull sveinn.
Hjálpa til að blaða í blöðum
Brynjar Níelsson og Hreinn.
Þrátt fyrir Kóvid, yrkja bændur góðar
vísur, Indriði á Skjaldfönn mun eiga
þessa:
Út um byggðir enn á ný
illan slóða setur.
Covidið er komið í
hvern sem betur getur.
Mun þessi vonda spá hafa borist alla
leið á Selfoss og okkar góði félagi
Magnús Halldórsson ort svo og hugsað
vestur:
Ólánsveiran ekkert flýr
aldrei nær þó vestur.
Til Indriða sem ennþá býr
enginn sést þar brestur.
Á þeim tíma sem Guðmundur Bjarnason
var ráðherra talaði hann eitt sinn á
bændafundi og taldi upp ótal möguleika
til tekjuöflunar fyrir bændur. Mun
jafnvel hafa ýjað að ánamaðkarækt.
Eftir að hafa hlýtt á alla þá speki mun
bóndinn og góði hagyrðingurinn Georg
Jón Jónsson á Kjörseyri hafa ort svo:
Ráðherra af miklum móði
mælti fyrir ráðum.
Þetta var Guðmundur góði
Guð hjálpi okkur báðum.
Góði vísnavinurinn úr Mývatnssveit Frið-
rik mun hafa dottið oní heitan pott og ort
þá svofellda staðarlýsingu.
Nú er úti vorblítt veður
vart þó hiti meira en stig,
skýjaslæður tunglið treður
til að geta lýst á mig.
Heyrum þá næst laglega hringhendu
frá okkar góða vini og gleðimanni hér
áður fyrr, Kristjáni Runólfssyni frá
Sauðárkróki.
Lifnar andinn lítt við glas
létt þó blandist skálin,
eykur fjandans argaþras
einnig vandamálin.
Gott að enda með þessum góða keim og
dásamlega bragði frá Kristjáni:
Er að spinna lífsins ljóð
létt í tímahraki,
mjög er gaman, mitt er blóð
mengað koníaki.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Heim í sýsluna fögru
ÁSKORANDAPENNINN | palli@feykir.is
Húnavatnssýslan hefur
alltaf átt hug minn og
hjarta. Þrátt fyrir að hafa
frá barnsaldri gengið í
skóla annars staðar er
ég svo heppin að eiga
yndislegar ömmur, afa
og frænkur sem tóku
sveitastelpuna inn við
hvert tækifæri sem gafst.
Eftir að hafa lokið námi í
búvísindum á Hvanneyri
ásamt dýralæknanámi
í Slóvakíu gat ég
svo loksins flutt
alfarið heim að Akri
og tekið fullan þátt í
sauðfjárbúskapnum. Ég
starfa nú sem dýralæknir
hjá Dýraspítalanum
í Glæsibæ, með
starfssvæði í Austur- og
Vestur-Húnavatnssýslu.
Ég tel það forréttindi,
fyrir nýútskrifað ungt fólk
að hefja sinn starfsferil í
samfélagi eins og okkar.
Mér hefur verið sýnd
mikil vinsemd, virðing
og skilningur og er ég
gríðarlega þakklát fyrir
það og hlakka til þess að
mæta til vinnu á hverjum
degi. Það er gaman að
fá að ferðast um svæðið,
kynnast íbúum þess,
búskapnum og að sjá alla
þá náttúru sem svæðið
hefur upp á að bjóða.
Nú er komið að
þeim tímamótum að
ákveðið hefur verið að
sameina Blönduós og
Húnavatnshrepp í eitt
sveitarfélag. Tvö flott
sveitarfélög sem unnið
hafa vel að sínum málum
en saman tel ég að hægt sé
að ná hlutunum enn lengra
og sameinuð séum við
sterkari.
Minn áhugi beinist að
landbúnaðinum, náttúrunni
og umhverfinu ásamt
því að viðhalda þeirri
menningu og sögu sem
finnst á svæðinu. Bæta
þarf kjör bænda, hækka
afurðaverð, leggja áherslu
á sjálfbæra landnýtingu
og nýta hana til frekari
markaðssetningar á
vörunum okkar. Einnig
þurfum við að nýta ullina,
auka vinnsluna á henni
og styðja við textíliðnað
á svæðinu ásamt því
að passa vel upp á
náttúruperlurnar okkar,
jafnt til heiða og í byggð.
Aðgengi að þeim þarf að
bæta ásamt því að laga
tengi- og héraðsvegi.
Einnig tel ég að með
eflingu gamla bæjarins
á Blönduósi gætum við
skapað skemmtilega
stemningu sem dregur
fólk að. Við höfum mörg
tækifæri í höndunum
til þess að kalla fólk til
okkar, fá ferðamenn, jafnt
innlenda sem erlenda, til
þess að stoppa og njóta
þess sem sveitarfélagið
hefur upp á að bjóða.
Bjartir sumardagar með
göngu í Hrútey, reiðtúr
yfir Húnavatnið svo ég
tali nú ekki um að keyra
hringinn í Vatnsdalnum
eða í kringum Svínavatn
á fallegu kvöldi, er til
eitthvað betra? Nú líður að sveitar-
stjórnarkosningum og
leggja Sjálfstæðismenn og
óháðir fram lista af sterku,
frambærilegu fólki sem er
annt um sveitarfélagið sitt
og framtíð þess. Ég býð
mig fram í 10. sæti listans
og hlakka til að leggja mitt
af mörkum í uppbyggingu
á nýju sameinuðu
sveitarfélagi.
- Ég skora á Freyju
Ólafsdóttur í Bólstaðarhlíð
að taka við pennanum.
Þuríður. MYND AÐSEND
Þuríður Hermannsdóttir á Akri
10 18/2022