Feykir - 11.05.2022, Page 13
Ég man það fólk sem íslenskt var í anda
þó oft það hefði liðið sára nauð.
Með sinni þjóð það vildi í veröld standa
og vera þar sem skyldan helst því bauð.
Ég mætti því á leiðum lífs og anna
og löngum fannst mér bjart á dögum þeim.
Það fólk var mitt – ég fann þar hugsun sanna
sem fyllti mig af trú á betri heim.
Ég man það fólk sem Davíðs kvæði kunni
og kaus að leggja þau við hjartastað.
Í dagsins önn það mælti þau af munni
og mér finnst sem ég ennþá heyri það.
Það elskaði þau kvæði af öllu hjarta
og af þeim sjóði fengið gat ei nóg.
Það sá í djúpi sálar geisla bjarta
er sindruðu um lífsins Fagraskóg.
Ég man það fólk og mun því aldrei gleyma
því minninganna sýn til þess er góð.
Það vissi hvar það átti að eiga heima
og ól þá tryggð sem frægði land og þjóð.
Það hafði í engu glatað gefnum rótum
en gekk sinn veg með sálar aukið pund.
Það var svo fjarri fölskum tíðarhótum,
það fólk var mitt og er það hverja stund.
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson
Ég man það fólk
Landnáma fræðir oss um
upprunann: „Eyvindr
auðkúla hjet maðr, hann
nam allan Svínadal ok bjó á
Auðkúlustöðum“ (Ldn. bls.
135). Skjal finst fyrir því, að
bæjarnafnið hefir haldist
óstytt til ársins 1489 (DI. VI.
648). En 1510 er það ritað
Auðkúla og allar götur úr
því, ýmist Kúla eða Auðkúla
(DI. IX. 55 og v. í því bindi).
Jafnvel er það ekki sett sem
eldra nafn -Auðkúlustaðir - í
F., svo djúp er gleymskan og
hafði þó dr. Finnur Jónsson
bent á rjetta nafnið (Safn IV. B.
bls. 509). Heimildirnar sýna, að
nafnið hefir styzt um aldamótin
1500, eins og svo mörg önnur
bæjanöfn sem breyzt hafa um
þær mundir.
Samnefni finst aðeins eitt
á landinu: Auðkúla í Hrafns-
eyrarkirkjusókn í Arnarfirði
(V.-Ísafj.s.). Má telja víst að
sá bær hafi einnig heitið
Auðkúlustaðir til forna -
kendir við auknefnið, en styzt
afarsnemma.
Af hverju Eyvindur hafi
fengið viðurnefnið auðkúla,
Auðkúla í Svínadal
TORSKILIN BÆJARNÖFN | palli@feykir.is
RANNSÓKNIR OG LEIÐRÉTTINGAR MARGEIRS JÓNSSONAR
verður ekki vitað með vissu.
Sennilega þó af auðlegð, og
táknar þá sama og „auðgi“,
sem ýmsir fengu að auknafni í
fornöld.
Fremur styðst þetta líka
en hitt við merkinguna í n.o.
auðkýfingur, sem líklega hefir
verið auðkúfur í fornmáli (kýfa
af kúfr þ.e. hrúga e-u upp). Þótt
hinsvegar „auðkýfingur“ sje
gamalt orð (frá 12. öld), sbr.
þennan glæsilega vísupart:
Þá er glæsimaðr
ok gullskati,
auðkýfingar
ok oflátar. 1)
Trúlegt þætti mjer, að forn-
menn hafi kallað auðuga upp-
gangsmenn „auðkúlur (enar
mestu)“, en það orð hafi aldrei
í bækur komist, nema sem
auknafn.
Hitt nafnið er: Striitgur í
Langadal
1) Kenningaþulir Sn. Edda bls. 274.
Auðkúla og hin fallega áttstrenda kirkja sem vígð var árið 1894.
Hún var svo friðuð 1. janúar 1990.
MYND: LJÓSMYNDASAFN HÉRAÐSSKJALASAFNS AUSTUR HÚNAVATNSSÝSLU.
Feykir fékk frá glöggum
lesanda ábendingu um að
villa hefði verið í vísu Ólínu
Jónasdóttur sem birtist í
greininni Einn dagur af
Sæluviku 3. hluta minninga
Kristrúnar Örnólfsdóttur
um Skagafjörð í 16. tbl.
Vísan er rétt svona:
Ég í steini bundin bý,
bási meina þröngum,
geisla hreina á þó í
andans leynigöngum.
Leiðréttist þetta hér með.
/PF
Leiðrétting
„Ég í
steini
bundin bý“
18/2022 13
Undirbúningur kosninga
í okkar nýja sveitarfélagi
í Skagafirði, eftir
sameiningarkosningar
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
og Akrahrepps sem voru
samþykktar 19 febrúar sl.,
hefur verið stuttur og snarpur
en virkilega skemmtilegur
tími. Frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins hafa farið
um fjörðinn og hitt kjósendur
og rætt við þá um þeirra
áherslur og hvað má betur
fara.
Tækifæri í nýju sameinuðu
sveitarfélagi eru mikil, blóm-
legt líf, öflugt atvinnulíf og
eigum við Skagfirðingar mikla
möguleika sem við getum
nýtt til að efla enn frekar
samfélagið okkar, frábært fólk,
skólasamfélög, fyrirtæki og
félagasamtök til þess.
Við skiljum sátt við okkar
störf á líðandi kjörtímabili en
það voru margar áskoranir í
mörgum málum sem við höfum
klárað eða komið í farveg. Á
þessu kjörtímabili hefur meðal
annars mikið áunnist í fjölgun
leikskólaplássa, nýr leikskóli á
Hofsósi, viðbygging við Ársali
Sauðárkróki og undirbúningur
að framkvæmdum við leik- og
grunnskóla í Varmahlíð. Mikill
árangur náðist í að fjölga lóðum
og stuðla að uppbyggingu á
húsnæðismarkaðnum, sund-
laugarbygging á Sauðárkróki
hélt áfram, unnið var að
áframhaldandi hitaveituvæð-
ingu, auk þess sem lagning á
ljósleiðara í dreifbýli var kláruð.
En í ört stækkandi sveitarfélagi
þá verður ekki verkefnaskortur
og erum við spennt að fá að
takast á við þau. Við ætlum
að halda áfram uppbyggingu
með byggingu íþróttahúss og
grunnskóla á Hofsósi, leik-
og grunnskóla í Varmahlíð,
Menningarhús á Sauðárkróki
og hefja undirbúning á bygg-
ingu fjölnota íþróttahúss
á Sauðárkróki, stuðla að
ljósleiðarvæðingu á þéttbýlis-
stöðum svo eitthvað sé nefnt.
Styðja þarf við öflugt starf
eldri borgara með bættri
aðstöðu dagdvalar, uppbygg-
ingu nýs hjúkrunarheimilis,
tryggja áfram góða þjónustu
fyrir fatlað fólk og vera leið-
andi sveitarfélag í málefnum
fatlaðra á Norðurlandi vestra.
Mikilvægt er að halda áfram
aðgerðum til að bæta aðgengi að
mannvirkjum sveitarfélagsins
og jafnframt hvetja einkaaðila
til að gera hið sama.
X2022 | Gísli Sigurðsson D-lista Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði
Höldum áfram að gera þetta saman – Gerum gott betra
Þetta getum við gert með
áframhaldandi ábyrgð og
aðhaldi í rekstri sveitarfélagsins
og með metnaðarfulla stefnu-
skrá og framtíðarsýn með
orðunum Ábyrgð – Árangur
– Ánægja. Í stefnuskránni
eru mál sem snerta alla íbúa
Skagafjarðar á einhvern hátt.
Við leggjum áherslu á samtal
við íbúa og íbúalýðræði, opnari
stjórnsýslu og gagnsæi.
Sjálfstæðisflokkurinn býður
þér að kjósa hóp fólks til setu
í sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. Framboðslistinn
er skipaður kraftmiklu fólki
sem er tilbúið að takast á
við krefjandi verkefni við
stjórn sveitarfélagsins okkar.
Sjálfstæðisflokkurinn er sterkt
afl í okkar samfélagi og ætlar
sér að vera það áfram og til þess
þurfum við ykkar stuðning.
Gísli Sigurðsson
Oddviti Sjálfstæðisflokksins
í Skagafirði