Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Page 17
kvaðst viss um að erfiðleikar íslenskrar verkalýðshreyfingar myndu efla
hana. Hann nefndi ástandið í Suður-Afríku, Chile og Póllandi þar sem verka-
lýðssamtökin eru fótum troðin. Hann sagði lýðræði forsendu þess að verka-
lýðshreyfing gæti starfað. Hann sagði efnahagskreppuna hafa komið niður á
atvinnuöryggi og kjörum launafólks. Merkustu og mikilvægustu samtökin
eru verkalýðsfélög í frjálsu samfélagi.
Þá bárust þinginu svohljóðandi skeyti:
Frá Hannibal Valdimarssyni, fyrrv. forseta ASI: „Þakka boð um að sitja
þingið og harma að geta ekki komið því við að þiggja það. Þinginu sendi
ég einlægar óskir um farsæld í störfum."
Frá Alþjóðasambandi frjálsra verkalýðsfélaga: „Fyrir hönd 82 milljóna fé-
lagsmanna flytur Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga fulltrúum á 35.
þingi ASÍ bestu óskir um árangur í starfi sínu."
Frá Danska alþýðusambandinu: „Kæri Asmundur Stefánsson. Okkur þykir
leitt að þurfa að tilkynna að Danska alþýðusambandið hefur ekki aðstöðu til
þess að senda fulltrúa til þings ykkar. Ástæðan er að nú stendur yfir undir-
búningur að samningaviðræðum og forföll urðu með stuttum fyrirvara hjá
þeim sem við höfðum ákveðið að færi. Við óskum Alþýðusambandi íslands
árangursríks þings og erum sannfærð um að það muni vera til gagns fyrir
íslenska verkalýðshreyfingu og okkar norræna samstarf."
Þessu næst skýrði forseti frá skipan sinni í nefndir til undirbúnings þing-
starfinu. í kjörbréfanefnd: Þórir Daníelsson, Magnús L. Sveinsson og Guð-
ríður Elíasdóttir. í nefndanefnd: Baldur Óskarsson, Grétar Þorsteinsson, Sig-
rún Clausen, Guðrún Ólafsdóttir, Jón Helgason, Sigurður Óskarsson, Bjarni
Jakobsson, Þóra Hjaltadóttir og Þórður Ólafsson.
Þá fól hann Hansínu Á. Stefánsdóttur og Kristjáni Jóhannssyni að annast
ritarastörf uns starfsmenn þingsins hefðu verið kosnir.
15