Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Blaðsíða 68
þess verði farið á leit við MFA, að starfsmenn þess sinni störfum fyrir
deildina.
Frá vinnuverndarnefnd:
Ályktun um vinnuverndarmál
Með setningu laga nr. 46 frá 1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum, sem tóku gildi 1. janúar 1981, var sköpuð forsenda fyrir nýju
og öflugu átaki til að ná fram umbótum á vinnuumhverfi verkafólks. Fyrst
eftir setningu laganna kom upp verulegur áhugi og vakning fyrir því að fá
fram úrbætur á starfsumhverfi almennt og bundu menn miklar vonir við hin
nýju lög og framkvæmd þeirra.
Framkvæmd laganna byggist á tveim meginþáttum, þ. e. eftirliti og fræðslu
Vinnueftirlits ríkisins og að heilbrigðis- og öryggismál verði leyst með sam-
starfi innan vinnustaða og fyrirtækja.
Alþýðusamband íslands gerði árið 1982 að vinnuverndarári og stóð fyrir
fundarhöldum hjá verkalýðsfélögum og vinnustöðum um vinnuverndarmál
og útgáfu fræðslu- og upplýsingarita.
Vinnueftirlit ríkisins gekkst fyrir fjölmennri ráðstefnu 1982, þar sem fiutt
voru fræðsluerindi og fram fóru umræður um ýmsa þætti vinnuverndarmála.
Nú hefur hins vegar dregið mikið úr áhuga og starfi í þessum efnum. Or-
yggistrúnaðarmenn og öryggisnefndir eru ekki nægilega virkar og einkum
þar sem lítil fyrirtæki eiga í hlut og eigendur vinna einir eða við hlið fárra
starfsmanna eru öryggismál í mestu óreiðu. Astæða fyrir því, að svona er
komið málum er vegna minnkandi umræðu og áróðurs á vegum verkalýðs-
samtakanna og takmörkunar fjárveitingavaldsins á uppbyggingu og eflingu
Vinnueftirlitsins, þrátt fyrir að ríkissjóður fjármagni ekki starfsemi þess.
í skýrslu Vinnueftirlits ríkisins um starfsemi þess árin 1981, 1982 og 1983
kemur fram hversu verkefni í vinnuverndarmálum eru viðamikil og brýn
og að nauðsynlegt er að auka og efla starf Vinnueftirlitsins til að ná árangri
varðandi umbætur á starfsumhverfi og koma í framkvæmd reglulegri heilsu-
gæslu verkafólks. Jafnframt er forsvarsmönnum verkalýðsfélaga ljóst að að-
gerðir og starf í vinnuverndarmálum er aðeins á byrjunarstigi og þýðingar-
mikil verkefni framundan sem stöðugt og óslitið þarf að vinna að.
Ákvæði vinnuverndarlaganna nr. 46/1980, um hvíldartíma og frídaga
ásamt bráðabirgða samkomulagi ASÍ og VSÍ frá 13. apríl 1981 um fram-
kvæmd lagaákvæðanna eru þýðingarmikil til að takmarka óhóflega langan
vinnutíma.
66