Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 26.11.1984, Blaðsíða 74
hækkaður frá því sem nú er og ekki lægri en fjórfaldur núverandi barna-
lífeyrir.
—• Sömu reglur gildi um sambúðarfólk og hjón.
2. Löggjöf um eftiriaun til aldraðra
Hinn 1. janúar nk. falla úr gildi núgildandi lög um eftirlaun til aldraðra.
Á undanförnum mánuðum hefur af hálfu ASÍ verið unnið að því að fá lögin
framlengd og jafnframt að þau næðu til yngra fólks en nú er, þar sem
skammur réttindatími margra er eitt af því sem mikilli mismunun veldur
milli lífeyrisþega. Þar sem ekki hefur náðst samstaða um slíkt og kröfur ver-
ið uppi um að lögin verði ekki framlengd getur þingið eftir atvikum fallist á
að lögin verði í grundvallaratriðum framlengd í núverandi mynd til næstu
fimm ára, enda auki það ekki heildargreiðslubyrði lífeyrissjóðanna.
35. þing ASÍ mótmælir því mjög eindregið að tekjutrygging almanna-
trygginga skerðist vegna greiðslu úr lífeyrissjóði.
35. þing ASÍ leggur áherslu á að framlenging laagnna verði nú þegar stað-
fest á Alþingi, þannig að þeirri óvissu, sem margir lífeyrisþegar búa við í
dag verði eytt.
3. Lágmarksréttur
Sett verði sérstök lög er tryggi lágmarksrétt þeirra sem greitt hafa til líf-
eyrissjóða er standa fjárhagslega höllum fæti.
Alyktun um lífeyrismál sjómanna
í kjarasamningum sjómanna á árinu 1980 var samið um að sú breyting
yrði gerð á lögum um Lífeyrissjóð sjómanna að sjómenn ættu rétt á því að
taka lífeyri frá sjóðnum 60 ára, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Jafn-
framt fengu sjómenn rétt til að taka ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins
frá sama aldri.
Þegar almennu lífeyrissjóðir verkalýðsfélaganna voru stofnaðir 1970 voru
sjómenn í nokkrum þeirra og svo er enn.
Þessi lagabreyting nær ekki til þeirra sjóða og vegna þess mikla kostnaðar
sem af því hlytist fyrir sjóðina að færa lífeyrisaldur sjómanna í 60 ár, til
samræmis við Lífeyrissjóð sjómanna, hafa þeir ekki séð sér fært að gera það.
í þeim samningum um kjör sjómanna árið 1980, þar sem samið var um
þessa breytingu á lífeyrisaldri sjómanan, var það skilningur fulltrúa sjo-
72