Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Side 4
4 Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
5
Nýr og betri vegur um Dynjandisheiði bætir samgöngur
á Vestfjörðum til muna og tengir saman byggðarlög.
Í myndbandi sem Vegagerðin hefur látið gera um
nýbyggingu Vestfjarðavegar (60) um Dynjandisheiði
kemur fram að framkvæmdir ganga vel. Verkinu er
skipt í þrjá áfanga. Fyrsta áfanga er lokið og vonast
er til að öðrum áfanga ljúki árið 2024. Undirbúningur
þriðja áfanga stendur yfir.
Í myndbandinu er m.a. rætt við Sigurþór
Guðmundsson, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni. Þar
kemur fram að nýi vegurinn eigi eftir að breyta miklu
í samskiptum milli sveitarfélaga á Suðurfjörðunum.
Framkvæmdum við um 14 kílómetra kafla á
Dynjandisheiði er lokið og vinna við 12,6 km kafla er
hafin.
„Þetta er stórt verkefni en ég hef trú á að
það skapi tekjur fyrir samfélagið að fá betri veg.
Draumurinn er að geta lokið þessu árið 2025,“ segir
Sigurþór og bætir við að Vegagerðin leggi mikla áherslu
á að koma verkefninu áfram svo því ljúki á áætluðum
tíma. Íslenskir aðalverktakar sáu um nýbyggingu
vegarins í fyrsta áfanga en Suðurverk sér um
nýbyggingu annars áfanga.
Góður gangur í vegagerð
á sunnanverðum
Vestfjörðum
Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði
Þægilegra að ferðast á góðum vegi
Í myndbandinu er einnig rætt við Eggert Stefánsson,
áhugamann um samgöngubætur. Hann segir að
nýr vegur muni breyta miklu í samskiptum fólks á
Vestfjörðum. „Um leið og samgöngubætur verða eykst
umferðin á milli staða, enda þægilegra að ferðast
á góðum vegi,“ segir Eggert en núverandi vegur var
opnaður 1959.
Þá er viðtal við Bjarka Laxdal, verkstjóra hjá ÍAV,
en þar kemur fram að betri vegur um Dynjandisheiði
sé búinn að vera draumur margra Vestfirðinga lengi.
„Það er gaman að sjá hann raungerast,“ segir Bjarki,
sem lýsir því að talsverð áskorun sé að vinna í um fimm
hundruð metra hæð. „Þetta er alvöru vegagerð“, segir
hann.
Myndbandið má sjá á Facebook Vegagerðarinnar,
á Youtube-rás Vegagerðarinnar og á vef
Vegagerðarinnar undir fréttum.
↑
Nýr vegur um Dynjandisheiði gjörbreytir
samgöngum á milli byggðarlaga á
sunnanverðum Vestfjörðum.