Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Side 5
4 Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
5
Staða framkvæmda
Þótt nú sé hávetur er ekki slegið slöku við og unnið
er að áfanga tvö. „Verið er að vinna að vegagerð frá
Helluskarði, sem er við gatnamót Bíldudalsvegar,
eða frá Norðdalsá, og niður að Vatnahvilft. Þrátt fyrir
vetrartíð er góður gangur í verkinu, því það hefur
ekki verið snjóasamt þarna uppi á háheiðinni,“ segir
Sigurþór, sem þekkir þetta verkefni eins og lófann á
sér.
Hann segir að ekki hafi verið ákveðið hvaða leið
verði fyrir valinu frá Pennuá, sem er Vatnsfjarðarmegin,
og niður að Flókalundi. „Þrátt fyrir það hefur
Vegagerðin ákveðið að ráðast í lagfæringar á þessum
vegspotta og leggja bundið slitlag á hann, sem verður
gert í sumar. Það er gert til að engir malarvegir verði
eftir á þessari leið,“ segir hann.
Undirbúningur fyrir þriðja áfanga er í fullum
gangi. Um er að ræða 8 km kafla niður í Dynjandisvog.
Þótt leiðin um heiðina styttist ekki við þessar
nýframkvæmdir segir Sigurþór að nýi vegurinn verði af
allt öðrum gæðum en núverandi vegur.
Á vef Vegagerðarinnar er hægt að sjá
þrívíddarmyndir af leiðarvali fyrir áfanga þrjú, fyrir þá
sem hafa áhuga á að skoða þær.
↑
Betri vegur um Dynjandisheiði hefur verið
draumur margra Vestfirðinga um langt skeið.
↖
Bjarki Laxdal, verkstjóri hjá ÍAV, segir að um sé
að ræða alvöru vegagerð en sjón er sögu ríkari.
←
Kort af framkvæmdum á Dynjandisheiði.
↓
Unnið er í um fimm hundruð metra hæð.
Framkvæmdir hafa gengið vel í vetur og veður
verið skaplegt.
Dynjandisvogur
Skarðanúpur
1. áfangi
2. áfangi
3. áfangi
1. áfangi
Suðurfirðir
Borgarfjörður
↑
Sigurþór Guðmundsson,
verkefnastjóri hjá
Vegagerðinni, segir að kapp
verði lagt á að framkvæmdum
ljúki á tilætluðum tíma.
↓
Eggert Stefánsson er
sannfærður um að nýr vegur
breyti miklu í samskiptum
fólks á Vestfjörðum.