Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Page 8

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Page 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. 9 Þrátt fyrir þessa grein og fleiri áskoranir varð lítið um merkingar næsta áratuginn. Það kom mér á óvart þegar ég var að skoða heimildir á timarit.is að ekkert er um umferðarmerki fjallað í blöðunum. Þó leitaði ég að ýmsum orðmyndum sem gátu hafa verið notuð því ekki var farið að nota orðið „umferðarmerki“ fyrr en síðar. Engar myndir er heldur að finna af vegmerkingum í söfnum duglegustu ljósmyndara Vegagerðarinnar á fyrri hluta síðustu aldar, Geirs G. Zoëga vegamálastjóra, Árna Pálssonar verkfræðings og Jóns J. Víðis mælingamanns. Þeir létu sig þó flest varða þegar þeir voru á ferðinni með myndavélarnar. Loks varð mér ljóst að ástæðan var sú að það voru hreinlega engar merkingar. Í Vísi var þessi grein í júní 1930: „Vegvísarar. Ferðamenn kvarta mjög undan því að á vegamótum víðsvegar um landið séu engir vegvísarar. Erlendis er algengt að á vegamótum séu spjöld sem segi til hvert vegirnir liggi, og er ekki síður ástæða til að hafa slíkt hér. Þess eru dæmi, að ókunnugir menn sem ætluðu á Þingvöll hafa lent alla leið austur í Ölfus. Ferðamannafélagið og vegamálastjórinn þyrftu að athuga þetta. Því má bæta við, að hér í Reykjavík er mjög tilfinnanlegur skortur á götuspjöldum og húsnúmerum. Er slíkur sparnaður algjörlega óafsakanlegur“. Háskamerki Í mars 1931 lögðu þingmenn Alþýðuflokksins fram þingsályktunartillögu um vegamál. Þar segir í 6. lið: „Að viðvörunar- og hættumerki verði sett alls staðar með fram akvegum, þar sem slysahætta er fyrir bifreiðaakstur, svo sem í hæfilegri fjarlægð frá kröppum beygjum, bröttum brekkum, brúm, hliðum, vegamótum eða vegaköflum, sem eru í aðgerð.“ Og í 7. lið: „Að leiðarvísir verði festur upp við vegamót, er sýni vegalengd til helstu staða nærlendis.“ Fyrstu rituðu dæmin um notkun orðsins „umferðarmerki“ eiga við um merkjagjöf ökumanna, þ.e.a.s. merki sem gefin voru með höndum þegar beygt var eða stansað eða stefnuljós ef bíllinn var svo útbúinn. Ekki virðast hafa verið til umferðarlög eða reglugerð um merkingar en þess í stað hafa lögreglusamþykktir bæjarfélaga verið með ákvæði um umferðarreglur. Vegamálastjórnin gaf út bækling 1933 um helstu vegalengdir á Íslandi. Þar er á bls. 15 birt teikning af háskamerki og vegvísi og er það elsta myndin af íslenskum umferðarmerkjum sem ég fann. Með myndunum er þessi texti: „Vegvísar. Við vegamót á helstu alfaraleiðum eru vegvísar með áletruðum nöfnum nokkurra helstu staða, sem vegurinn liggur til, ásamt vegalengdum í km. Bendir hver vegvísir á áttina til þess staðar sem á hann er skráður. Háskamerki. Meðfram helstu akbrautum eru víða sett háskamerki, þar sem skarpar beygjur eru eða önnur hætta, og sérstaklega er þörf að aka varlega. Háskamerkið er með alþjóðagerð og er stór þríhyrningur og innan í honum stafurinn Z, en rautt „kattarauga“ í hverju horni. Merkið er fest á 2 metra háa stöng.“ Einhverjar merkingar munu hafa verið í þéttbýlinu og þá helst spjöld með áletruðum texta. Í lögreglusamþykkt Reykjavíkur sem birt var í Bæjarskrá Reykjavíkur 1934-1935 segir í 28. grein: „Vegfarendum er skylt að sýna fyllstu nærgætni gagnvart öðrum vegfarendum, einkum þegar farið er yfir þvera götu, við vegamót og þar sem viðvörunarmerki eru sett. Þeim er skylt að haga sér tafarlaust eftir þeim fyrirmælum, sem lögreglan setur um umferðina, hvort sem það er gert með uppfestum auglýsingum, með boðum eða bendingum.“ Ekkert er fjallað um gerð eða útlit merkja. ↑ Mynd 4. Teikningar af umferðarmerkjum í bæklingi vegamálastjórnarinnar 1933. → Mynd 5. Háskamerki í eigu minjasafns Vegagerðarinnar. Þetta var eina táknið og virðist það hafa verið notað við hverskonar varasama staði, ekki aðeins krappar beygjur. Í bréfi til norsks fyrirtækis Norsk Essenasfalt Co. A/S, vorið 1956 pantar Vegagerðin 250 stk. „varselsskilte“ skv. tilboði en ekkert kemur fram um táknið svo líklega hefur það verið Z merkið.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.