Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Side 9

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Side 9
8 Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. 9 Fyrstu umferðarlögin Í lögreglusamþykkt 1939 segir: „Umferðarmerki (28. gr.): Gert er ráð fyrir að komið verði upp umferðarmerkjum (eins og þegar hefur verið gert að nokkru). Ber lögreglustjóra að ákveða gerð þeirra og þýðingu og auglýsa fyrir almenningi. Frá þessu hefur ekki verið gengið enn þá og mun verða beðið með það, uns sett hefur verið almenn umferðarlöggjöf, sem væntanlega verður lögð fyrir yfirstandandi þing.“ Það hafa þá verið uppi einhver spjöld með áletruðum texta en óljóst hvernig útlitið hefur verið. Gerð spjaldanna hefur væntanlega verið í höndum skiltagerðarmanna sem þá voru helst málarameistarar en skiltagerð var hluti af námi þeirra. Þeir gerðu auglýsingaspjöld fyrir verslanir og nafnaspjöld fyrirtækja og hafa umferðarmerkin sjálfsagt verið þeim lík í stafagerð og efnisvali. Í ágúst 1939 birtist auglýsing um takmörkun umferðar og umferðarmerki í Reykjavík. Þar segir meðal annars: „Á Suðurlandsbraut innan við Tungu, og Hafnarfjarðarveg sunnan Laufásvegar eru sett merki með áletruninni 25 km öðrum megin gegnt umferð í bæinn, og 45 km hinum megin (gegnt umferð úr bænum), og er þýðing þessara merkja sú, að á nefndum vegum gilda reglur lögreglusamþykktarinnar um hámarkshraða innan merkjanna, en utan þeirra (fjær bænum) gilda reglur bifreiðalaganna um hámarkshraða.“ Það eru þá ekki komin út umferðarlög fyrir allt landið en vorið 1940 eru þau loksins orðin til og áttu að gilda frá 1. janúar 1941. Mesta athyglina vekur breyting í hægri umferð sem náðist í gegn þrátt fyrir mikla andstöðu. Í viðtali við Morgunblaðið 27. mars 1940 segir Geir G. Zoëga vegamálastjóri þegar hann mælir með því að hægri umferð verði tekin upp hér á landi: „Eins og kunnugt er, var umferðareglan að víkja til vinstri lögleidd hér á Alþingi 1907. Voru nokkrar deilur um þetta í þinginu þá. Samgöngumálanefnd neðri deildar vildi, að hér yrði lögleitt að víkja til hægri. En það var fellt. Hermann Jónasson frá Þingeyrum mælti með „hægri umferð‘‘. Sagði hann m.a., að enda þótt engin ákvæði væru um þetta, þá hefðu margir gert sér það að reglu að víkja til hægri á vegum úti. En það væru, eins og menn vita, fótafjalir kvensöðlanna, sem réðu úrslitum um það, að vinstri umferð var lögleidd. Sú ástæða er nú löngu úr sögunni.“ En næst gerist það að landið var hernumið af Bretum 10. maí 1940 og eftir áramótin 1941 birtist þessi frétt: „Umferðarlögin og hin nýju bifreiðalög áttu að koma til framkvæmda 1. janúar 1941, en af sérstökum ástæðum voru þau felld úr gildi með bráðabirgðalögum, sem ríkisstjórnin gaf út nokkru fyrir áramótin.“ Ástæðan hefur líklega verið sú að bresku hermennirnir voru vanir að víkja til vinstri og hefur þótt illframkvæmanlegt að breyta yfir í hægri umferð á meðan á hernáminu stóð. Það beið því til ársins 1968. Síðar árið 1941 voru umferðarlögin og hin nýju bifreiðalög aftur samþykkt á Alþingi með þeirri breytingu einni að vinstri umferð átti að gilda áfram. ↓ Mynd 6. Að sögn Geirs G. Zoëga var ástæðan fyrir því að vinstri umferð var lögleidd á Alþingi 1907 sú að þá var auðveldara fyrir konur í söðli að mætast í götu. Mynd: Sarpur, Byggðasafnið á Skógum.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.