Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Qupperneq 16

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Qupperneq 16
16 Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. 17 „Við hófumst handa hér í september en höfðum rúmu ári áður rekið niður staura. Við höfum steypt sökkla beggja megin árinnar. Þann fyrri steyptum við 30. september og í hann fóru 49 rúmmetrar af steypu. Seinni sökkullinn var steyptur 24. október. Þessu fylgdi mikil járnavinna en það fóru um sex tonn af járni í hvorn sökkul,“ lýsir Vilhjálmur. Í lok nóvember var búið að steypa stöpul að austanverðu og byrjað var að setja upp mót fyrir stöpul að vestanverðu í byrjun desember. „Síðan gerði mikið frost og við höfum í raun verið að bíða eftir því að geta steypt síðan þá.“ Enn er nokkuð í land en eftir er að steypa seinni stöpulinn, koma upp undirslætti undir gólfið og smíða mót ofan á það og koma fyrir eftirspennukerfi. Næsta skref verður þá að steypa brúargólfið, spenna brúna, steypa sigplötur á hvorn enda brúarinnar og setja upp vegrið. Vilhjálmur vonast til að brúarsmíðinni verði lokið fyrir sumarbyrjun. Þessi nýi kafli á Vatnsnesvegi verður kærkominn fyrir íbúa á svæðinu, svo og ferðamenn sem aka veginn að hinum vinsæla Hvítserk. Langt er þó í land en Vatnsnesvegur er 70 kílómetra malarvegur frá Hvammstanga og út fyrir Vatnsnes. Vegurinn hefur verið til umfjöllunar síðustu ár enda ástand hans oft slæmt, ekki síst í vætutíð. Samkvæmt talningu árið 2019 aka 186 bílar veginn á sólarhring yfir árið (ÁDU) en meðalumferð á sumrin (SDU) er 343 bílar. Útboðskafli Va tn sn es fja ll Blönduós Ví ði da lu r Sí ða Húnaflói Húnafjörður Vesturhópsvatn Hóp Flóðið Húnavatn Sigríðar- staðarvatn ↗ Sökkull steyptur í lok október 2023. → Í byrjun desember kólnaði og því ekki hægt að halda áfram steypuvinnu. ↘ Vatn og klaki hamla framkvæmdum. ↓ Kort af framkvæmdasvæði.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.