Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Qupperneq 20
20 Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
21
Vesturlandsvegur (1) í gegnum Mosfellsbæ var
vígður formlega eftir endurbætur og breikkun þann
8. desember á síðasta ári. Með framkvæmdinni
stóreykst umferðaröryggi í gegnum bæinn.
Vígðir voru tveir áfangar, tæpir 2 kílómetrar frá
Skarhólabraut að Reykjavegi, en framkvæmdirnar eru
hluti af verkefnum Samgöngusáttmála ríkisins og sex
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem gerður var í
september 2019.
Verkið gekk mjög vel. Framkvæmdir við fyrsta
áfanga hófust í lok maí 2020 og lauk í desember það
sama ár. Seinni áfangi fór af stað í febrúar 2022 og
lauk formlega við opnunina þann 8. desember.
Skref í átt að auknu
umferðaröryggi
Formleg opnun Vesturlandsvegar í
gegnum Mosfellsbæ
Í fyrri áfanga, sem náði frá Skarhólabraut að
Langatanga, var akreinum fjölgað úr þremur í fjórar
og þannig komið í veg fyrir umferðarteppur sem oft
mynduðust við Lágafellskirkju. Í seinni áfanganum,
sem náði frá Langatanga að Reykjavegi, voru fjórar
akreinar fyrir en þörf á endurbyggingu vegarins.
Stærsta breytingin er sú að akstursstefnur eru nú
aðskildar með vegriði á allri leiðinni sem stóreykur
umferðaröryggi á veginum.
Verktaki í báðum áföngum var Loftorka
Reykjavík ehf.
↑
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri
samgangna ohf., Regína Ásvaldsdóttir,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Bergþóra
Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar og
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðráðherra
klipptu í sameiningu á borðann við
hátíðlega athöfn.