Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna - 11.02.1932, Page 7
5
menn hafa ekki mátt um frjálst höfuð
strjúka, ef þeir eru annarar skoðun-
ar í stjórnmálum en henni þykir gott.
Andstæðinga sína hefir hún hrakið frá
opinberum störfum. Ákæruvaldið hef-
ir hún notað til pólitískra ofsókna.
Vaid sitt yfir peningastofnunum lands-
ins hefir hún notað til skuldakúgun-
ar. Á fylgismenn sína hefir stjórnin
hins vegar borið fé og bitlinga. Hún
hefir keypt sér fylgi og pólitískt
brautargengi fyrir opinbert fé.
Eg þarf ekki að lýsa frekar fyrir
yður þeim ódrengskap eða þeirri sið-
spillingu, sem núverandi valdhafar,
hafa eitrað með íslenzkt þjóðlíf. Eg
þarf ekki að lýsa frekar kúgun þeirra,
ofstæki og óheilindum. Eg þarf ekki að
lýsa frekar sóun þeirra á verðmætum
eða öðrum þeim vandræðum, er þeir
hafa skapað íslenzkri nútíð. Og eg ætla
ekki að lýsa frekar fyrir yður þeim
hindrunum, er þeir hafa beint og ó-
beint lagt á veg íslenzkra framfara á
komandi árum.
Eg vil aðeins minnast þess, að þó nú.
séu vandræði fyrir höndum og blikur
í lofti, þá er þó ekki allur drengskapur,
dáð eða frelsisþrá dregin úr íslending-