Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna - 11.02.1932, Síða 16
12
Sjáifstæðismanna sem víðast á land-
inu, og félögin síðan mynda ramband
sín á milli á fulltrúafundi, er haldinn
yrði á Þingvelli við Öxará í sambandi
við alþingishátíðina.
Kafi 7 félög ungra Sjálfstæðismanna
verið stofnuð þá um vorið, en sex hafi
verið til áður. Þessi 13 félög hafi sent
samtals 44 fulltrúa á stofnþing sam-
bandsins. 25 félagar hafi átt að vera
á bak við hvern fulltrúa, svo að þeir
ungu Sjálfstæðismenn, sem stóðu að
stofnun sambandsins, hafi alls verið
um 1100.
Eitt þessara 13 félaga er sambandið
stofnuðu, félagið í Bolungarvík, hafi
reynzt félag fullorðinna manna aðailega.
Hafi það verið ætlun þeirra manna, er
að stofnun þess félags stóðu, að stofna
ungra manna deild í félaginu sumarið
1930. Af því hafi ekki orðið. Hafi því
það orðið að samkomulagi milli sam-
bandsstjórnarinnar og formanns félags-
ins, Steins Emilssonar, jarðfræðings, að
félagið skyldi tekið út af félagaskrá
sambandsins. Félagið væri í blóma, og
góður styrkur Sjálfstæðisflokknum í
sínu byggðarlagi.
Félag ungra Sjálfstæðismanna í Vest-
ur-Húnavatnssýslu hafi ekki verið stofn-