Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna - 11.02.1932, Page 17
13
að til fulls er sambandið var stofnað,.
þó það tæki þátt í stofnun þess. Síðan
hafi það komizt á fastan fót og gengið
formlega í sambandið undir nafninu
„Baldur‘‘. Væri það hið merkilegasta
félag. Væru félagar þess, rúmir 60 að
tölu, dreifðir víðs vegar um Vestur-
Húnavatnssýslu.
Hin félögin öll hafi verið full-mynd-
uð, er sambandið var stofnað. Væru þau
öll í sambandinu enn, að undanteknu fé-
laginu í Bolungarvík, og hafi eflzt bæði
að þrótti og mannfjölda.
Síðan sambandið var stofnað hafi ver-
ið stofnuð 4 ný félög ungra Sjálfstæðis-
manna, og væru þau þessi:
Félag ungra Sjálfstæðismanna á Eyr-
arbakka, er stofnað var haustið 1930.
Væri það mjög starfsamt félag og vax-
andi.
Félag ungra Sjálfstæðismanna á
Seyðisfirði, er stofnað var síðast lið-
inn vetur. í því væru milli 50 og 60
meðlimir og félagið hið blómlegasta.
Félag ungra Sjálfstæðismanna á
Akranesi, er stofnað var fyrir forgöngu
sambandsstjórnarinnar síðari hluta
vetrar í fyrra. Væri það nú þriðja
stærsta félagið í sambandinu.
Félag ungra Sjálfstæðismanna í