Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna - 11.02.1932, Page 54
50
ljós, að takast megi sem fyrst að
koma á reglubundnum flugferðum
hér á landi, án þess að af því leiði
ríkisrekstur eða veruleg ríkisút-
gjöld.
íðnaðarmál.
I. Þar sem iðnaðarmönnum hefir
fjölgað mjög á undanförnum árum og
það sýnt sig nú þegar, hversu mikla þýð-
ingu iðnaður hefir fyrir verzlunar-
jöfnuð landsins, þá ber að leggja allt
kapp á að koma iðnaðarmálum voi’-
um í sem bezt horf, svo að iðnaðurinn
verði lífvænlegur fyrir landsmenn og
samkeppnisfær við útiendan iðnað, þá
skorar sambandsþing ungra Sjálfstæð-
ismanna á þingm. Sjálfstæðisflokksins
að beita sér fyrir eftirfarandi:
1. Að tollalöggjöfin verði rannsökuð
og samrýmd á þann veg, að ekki
geti komið til greina, að hún íþyngi
innlendum iðnaði á nokkurn hátt.
2. Að kosin sé sérstök fastanefnd á
Alþingi, er fari með iðnaðarmálin.
3. Að aukinn verði styrkur til iðn-
skóla og utanfara ungra, efnilegra
iðnaðarmanna til að fullnuma sig
í iðn sinni, og að iðnráðið geri til-
lögur um úthlutun styrks þessa.
4. Að veittur sé ríflegur styrkur til