Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna - 11.02.1932, Side 55
51
iðnskólabyggingar í Reykjavík á
næstu þingum.
5. Að greitt verði fyrir lánum til iðn-
reksturs.
6. Að frumvarp til laga um breyting
á lögum um iðju og iðnað, sem fram
kom á síðasta þingi, og flutt var af
þeim Magnúsi Jónssyni, Einari Arn-
órssyni og Ásgeiri Ásgeirssyni,
verði tekið upp aftur á næsta Al-
þingi.
II. Samb. ungra Sjálfstæðismanna
skorar á iðnráð og viðkomandi yfir-
völd að þau sjái svo um, að lögum um
iðnaðarnám sé fullkomlega framfylgt
og iðnrekendur taki aldrei útlenda
iðnaðarmenn eða verkamenn í þjón-
ustu sína, þegar íslenzkir iðnaðarmenn
eru fáanlegir.
Menntamál.
1. Samband ungra Sjálfstæðismanna
telur nauðsynlegt, að kennd sé
leikfimi í öllum skólum landsins
og sund þar, sem því verður við
komið.
2, Sambandsþingið leggur áherzlu
á, að haft verði betra eftirlit með
kvöld- og unglingaskólum þeim,
er þiggja styrk úr ríkissjóði, en
hingað til hefir verið gert.