Fylkir


Fylkir - 01.12.2022, Side 5

Fylkir - 01.12.2022, Side 5
FYLKIR - jólin 2022 ° ° 5 Þegar aðventan gengur í garð þá er okkur hjónum gjarnan hugsað til Vestmanneyja og að- ventunnar og jólanna okkar þar árið 1973. Okkur finnst sem þá hafi okkur fyrst orðið ljós merking aðventunnar. Við vorum aðkomu- fólk í Eyjum, höfðum flutt þangað snemma hausts inn í framandi aðstæður og umhverfi. Dagarnir voru drungalegir þar sem allt var á kafi í kolsvartri ösku. Hvar sem litið var mátti sjá hvernig heljarhramm- ur tortímingar hafði slegið byggð- ina, mannlaus hús með neglt fyrir gluggana, einn og einn ljósastaur á stangli, eyðilegging alls staðar og megn brennisteinsfnykur lagð- ist yfir þegar vindátt stóð af hraun- inu. Á kvöldin stóðum við oft á tröppunum á prestshúsinu að Sól- eyjargötu 2 og horfðum yfir bæinn og glöddumst yfir hverju nýju ljósi í glugga. Sérhvert ljós var tákn og vísbending: Þarna er fólk að koma heim! Lífið snýr aftur, eyðing og dauði hopa. Það var líka áhrifaríkt að sjá að skærustu ljósin voru í Friðarhöfn. Friðarhöfn. Hvert nýtt ljós í bænum var eins og áskorun á hendur myrkrinu, þessu allt um- lykjandi myrkri eyðingar. Þetta er aðventan í okkar huga. Ég hafði í byrjun þorra verið send- ur til prestsþjónustu meðal safn- aðar sem var landflótta undan ægilegum hamförum, flóttafólk í sínu eigin landi. Ég var kallaður til að boða því trú og von, blessun Guðs í öllum sporum þess, þegar heimabyggð þess logaði og fjöllin skulfu og húsin hurfu undir hraun og ösku. Starfsstöð okkar prest- anna var í Hafnarbúðum í Reykja- vík, guðsþjónustur voru í Kirkju Óháða safnaðarins, húsvitjanir í allskyns bráðabirgðahúsnæði um alla borg og í nágrannasveitar- félögum, samverustundir með fermingarbörnum, umsjón með leikskóla fyrir Eyjabörn sem Hjálp- arstarf kirkjunnar hélt úti í kjallara Neskirkju. Og fara daglega með bænarorð í Eyjapistli sem var mikilvægur samfélagsvettvang- ur Eyjamanna í Ríkisútvarpinu. Ekki leyndu sér áhyggjurnar og kvíðinn hjá ungum sem öldnum. Í Hafnarbúðum var kaffistofa þar sem hægt var að horfa á beint sjónarvarp frá Eyjum sem sýndi eldstöðvarnar. Fólk sat og horfði harmi lostið á byggðina fara í kaf, jafnvel á hús sín og heimili brenna og hverfa undir hraun. Þetta var óraunverulegt og ægi- legt. Óvissan var yfirþyrmandi en samt von, þrákelknisleg, þrjósku- full vonin um að unnt yrði að snúa aftur heim. Allan tímann meðan eldurinn var uppi stóð Landakirkja uppljómuð á baksviði eldhafsins. Þeir feðgar, Friðfinnur Finnsson og Jóhann Friðfinnsson, trúfastir hollvin- ir kirkjunnar, létu það verða sitt síðasta verk áður en þeir yfirgáfu heimabyggð sína örlaganóttina miklu að kveikja ljósin í kirkjunni. Þau skyldu lýsa við þeim sem neyddust til að flýja og lýsa þeim sem þar yrðu eftir við hættuleg björgunarstörf. Þau skyldu varpa birtu vonar inn í huga og hjörtu, tjá með sínum hætti það sem letr- að var á sáluhliðið að kórbaki, orð frelsarans: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Ljós Landakirkju slokknuðu ekki. Miskunn Guðs og náð hélt hlífisskildi yfir þeim sem stefndu út í nóttina burt frá Eyjum þessa dimmustu nótt lífs síns. Þvílík mannbjörg og mildi hefur ekki áður sést í sögu þjóðarinnar. Það var mikið beðið þá nótt og daga og nætur sem í hönd fóru. Bæn og trú, von og kærleikur varð leiðar- ljós ótal mörgum. Goslokum í Heimaey var formlega lýst 3. júlí og var þá efnt til guðs- þjónustu í Landakirkju. Það er ógleymanleg stund. Barn var bor- ið til skírnar, Hrönn Róbertsdóttir, og svo var gengið til altaris. Hvort tveggja vonarmerki andspæn- is óvissunni. Veðrið var hið feg- ursta, sól og blíða, fjöll og eyjar í tiginni ró. En allt var að mestu hulið kolsvartri ösku. Þá þegar var hreinsunarstarf hafið og við hjónin fórum að undirbúa flutning til Eyja. Ákveðið var að hafa reglu- legt kirkjustarf í Landakirkju allt frá goslokum, messur og barnasam- verur hvern helgan dag. Kirkju- starfið var fyrsta félags- og sam- félagsstarf sem komst á laggirnar í Eyjum eftir gos. Um haustið flutt- um við svo með Ingu Rut, dóttur okkar á þriðja ári, í prestsbústaðinn undir rjúkandi eldfellinu. Ég á alveg einstaka konu sem hefur fylgt mér út í hvað sem er. Stundum þegar veðurhamurinn var sem mestur og húsið hristist í hryðjun- um þá varð manni ekki svefnsamt. Löngu síðar sagði Kristín mér að hún hefði alltaf verið með föt og það nauðsynlegasta í seilingarfjar- lægð við rúmið ef gos hæfist að nýju. Það var grunnt á öryggisleysinu hjá ungum sem öldnum. Sorgin var líka sár og margs að sakna. Allt var breytt. Stór hluti byggðar- innar var horfinn undir hraun og ösku og yrði ekki endurheimtur. Hreinsunarstarfið í Vestmanna- eyjum er sannarlega kraftaverki líkast, þar komu margir að verki og unnu þrekvirki. Mér er hugstætt fólkið sem vann við að hreinsa kirkjugarðinn af svo mikilli vand- virkni og virðingu, eitt af öðru komu minningarmörkin upp úr öskunni. Okkur hjónum er líka minnistætt þegar ókunnugt fólk kallaði í okkur inn af götunni til að sjá heimili sitt sem það var að ljúka við að gera í stand eftir margra mánaða fjarveru í útlegðinni. Það var oft ekki orðað en við fundum að það vænti þess að við sam- gleddumst og blessuðum heim- komu þess. En svo margt varð ekki endurheimt. Margur hafði orð á því að fegursti hluti eyjarinnar hafi horfið, „gamla gatan mín“ var farin og samfélagsvefurinn rof- inn. Góðkunningjar, ættingjar og vinir sneru ekki aftur, kunnugleg og kær kennileiti voru endanlega horfin. En Heimaklettur var á sín- um stað og Helgafell, þó það væri hulið svörtum öskukufli og hefði fengið kolsvart, rjúkandi Eldfellið sér við hlið. Landakirkja var líka á sínum stað og sáluhliðið með huggunar- og fyrirheitisorðin. Hugtakið áfallahjálp var ekki til, sorgarvinna og sorgarferli var ekki heldur til í orðabókinni. En það var augljóst þá, eins og nú, hvert fólk sækir styrk og huggun: Í nærveru, samfélag og orð og tákn og hefð- ir trúarinnar, umfram allt bænina. Klukknahljómurinn og guðsþjón- usturnar og aðrar helgar athafnir voru samfélagsuppbygging og sorgarvinna, mikilvægari en við getum ímyndað okkur. Landakirkja er sannarlega ein- hver fegursta kirkja landsins. Hinn forni helgidómur umfaðmar þann sem inn kemur traustum, þykkum, öldnum veggjum. Altaristaflan gamla er jólamynd sem sýnir vitringana lúta Jesúbarninu í lotn- ingu. Okkur hjónum finnst hún fallegasta altaristafla landsins, svo hrífandi, mild og dulúðug. Konurnar á Vallargötunni tóku höndum saman um að skúra og þrífa kirkjuna fyrir jól. Heil hersing kvenna mætti kvöld eitt með skúr- ingarfötur, skrúbba og tuskur og þrifu allt hátt og lágt. Ég reyndi að gera mitt besta að vera ekki fyrir. Ég sé þær fyrir mér og hugsa, þær voru að gera fallegt fyrir Guð, já, og náungann, samfélagið, greiða fegurðinni veg. Guð blessi þessar konur og allt það fólk sem, eins þær heldur vörð um helgi kirkj- unnar, sóma hennar og prýði. Kirkjusilfrið og koparinn var kol- svart allt eftir eitrað gasið frá gosinu. Það var sár áminning um eyðingaröflin og mikil áhersla var lögð á að allt yrði fært til fyrra horfs fyrir jólin. Við Eiríkur Guðnason, yf- irkennari og sóknarnefndarmað- ur, fengum ráð hjá sérfróðu fólki hvernig ná skyldi spanskgrænunni af koparnum. Skyldi baða hann upp úr saltsýru. Apótekarinn út- vegaði okkur mikið magn af sýru og gaf ströng fyrirmæli um það hvernig skyldi blanda og um- gangast þetta. Stóðum við í því langt fram undir morgun í forkirkj- unni við stórar plasttunnur og böðuðum níðþunga, aldagamla koparstakana og skírnarfontinn upp úr saltsýrunni, burstuðum, skoluðum, aftur og aftur, þurrk- uðum og fægðum síðan. Þetta var óþrifalegt verk og mikið erf- iði. En það var gott að vinna með Eiríki, þeim öðlingi, og þessi nótt líður ekki úr minni. Þegar verkinu var lokið settumst við inn í kirkju, örþreyttir eftir átökin, og horfð- um á koparinn glitra. Altaristaflan var óhreinsuð enn og dökk af sóti, en af ásjónu Guðsmóður og Jesúbarnsins stafaði yfirjarðneskri birtu. Svo gengu blessuð jólin í garð, yndisleg og ógleymanleg en auð- vitað gerólík öðrum jólum sem maður hefur lifað. Mín fyrstu jól sem prestur. Ég hef átt þau mörg síðan, en engin eins og þessi. Landakirkja troðfull við aftan- söng og miðnæturmessu. Ferm- ingarbörnin tóku virkan þátt, þau gegndu hlutverki meðhjálpara og hringjara og stóðu með kerta- ljós í hendi og lýstu upp kirkjuna. Á jóladag voru sjö börn skírð í messunni og annan dag jóla voru þau þrjú. Tíu börn helguð Kristi og voninni eilífu. Þetta var fögur og ógleymanleg jólahátíð, þrungin þakklæti, von og gleði við þungan undirtón trega og sorgar: „Í myrkrum ljómar lífsins sól. Þér, Guð, sé lof fyrir gleðileg jól.“ Aldrei hafa þau orð jólasálmsins verið sterkari og sannari en þá. Vestmannaeyjar risu úr öskunni. Sárin greru þótt örin sætu eftir. Hvað þarf til að endurreisa sam- félag úr rústum? Þekkingu, vit og fjármagn sannarlega. En ekki síst trú og von og kærleika hinna mörgu. Og því er miðlað og það er ræktað með hefðum, orðum og athöfn sem ber fegurðinni vitni og vitnar um friðinn og dýrðina ei- lífu sem blasir við augum trúar og vonar, fegurð himinsins þar sem sálin á heima. Trúin og vonin er eitt mesta undur mannlegrar tilveru. Trúin, traustið á hið góða upphaf og takmark lífs og heims og vonin sem stefnir eftir því. Þar er uppspretta kær- leikans og afl friðarins í heimin- um. Allt virðist það á undanhaldi í okkar ráðvilltu, friðvana samtíð. Vörðurnar og leiðarmerkin, hefð- ir og siðir, söngur og bænamál er svo oft og víða lítilsvirt. En þegar við stöndum frammi fyrir því stóra, djúpa tilverunnar, áföllum, sorg og synd og dauða, þá varðar mestu að hafa fast undir fótum og traust viðmið að fylgja og orð til að orða hið ósegjanlega. Það er mynd og saga Jesú, bænin og trúin. Ef það er að hverfa úr vitund samfélags og menningar og hylst undir ösku og grómi gleymskunnar þá verður að sporna við því og endurheimta það! Að spenna greipar og lúta höfði og fara með Faðir vor hefur reynst ótal mörgum fyrr og síðar hjálp og huggun, já líflína til lands. Við þurfum á því að halda, og ber skylda til að leggja þeim ungu það á varir og mynd Jesú á hjörtu. Við hjónin stóðum þarna á tröpp- unum fyrir 49 árum og horfðum yfir bæinn og glöddumst yfir sér- hverju ljósi sem vitnaði um von og framtíð. Þau voru okkur að- ventuljós og bænaljós. Það kemur í lífi allra að slík ljós verða meira virði en nokkuð annað. Leiðarljós og merki sem vísa leiðina heim, til þeirrar fegurðar og gleði sem engan skugga ber á. Guð gefi þér það að sjá og reyna. Guð gefi bjarta og blessaða aðventu og gleðileg jól! Aðventuljós í sorta SR. KARL SIGURBJÖRNSSON Trúin og vonin er eitt mesta undur mannlegrar tilveru. Trúin, traustið á hið góða upphaf og takmark lífs og heims og vonin sem stefnir eftir því. Þar er uppspretta kærleikans og afl friðarins í heiminum. Fjölskyldan að Sóleyjargötu. Hjónin Karl og Kristín Þórdís ásamt dótturinni Ingu Rut. Sr. Karl við messu í Landakirkju að loknu gosi 1973.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.