Fylkir


Fylkir - 01.12.2022, Side 16

Fylkir - 01.12.2022, Side 16
16 FYLKIR - jólin 2022 ° ° Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyj- um fögnuðu þeim merka áfanga í byrjun desember að nú eru liðin 90 ár frá stofnun Sjálfstæðisfé- lags Vestmannaeyja. Félagið var stofnað 6. desember árið 1932 og var Jóhann Þ. Jósefsson þingmað- ur Eyjanna helsti hvatamaður að stofnun félagsins. Frá upphafi hefur starfsemi fé- lagsins snúið að því að auka veg og vanda Sjálfstæðisflokksins og berjast fyrir stefnumálum okkar Vestmannaeyinga í nafni frelsi einstaklingsins, minni ríkisaf- skipta, lægri skatta og ábyrgrar efnahagsstjórnar. Stofnfundur í Nýja bíói Sjálfstæðisfélag var stofnað í samkomu- og bíósalnum í Nýja Bíói við Vestmannabraut, þar sem nú er Hótel Vestmannaeyjar. Fyrsti formaður félagsins var Símon Guðmundsson, þá verkamaður en síðar útvegsbóndi á Eyri við Vesturveg. Síðan þá hafa 31 gegnt embætti formanns félagsins. Félagslífið , Samkomuhúsið og Ásgarður Samkvæmislífið hefur alla tíð verið Sjálfstæðismönnum í Vestmanna- eyjum í blóð borið og mörg góð samkvæmin verið haldin. Sjálf- stæðisfólk úr Eyjum hefur í gegn- um tíðina verið duglegt að sækja samkomur flokksins víðsvegar um land og kjördæmi í stórum hópum svo eftir hefur verið tekið ásamt því að reka öflugar og fjörugar kosningabaráttu. Það er því ekki furða að eitt helsta skemmtana- hús Eyjanna fyrr og síðar hafi ver- ið byggt fyrir hvata Sjálfstæðis- manna í Vestmannaeyjum en árið 1936, í miðri heimskreppu, var grunnur lagður að Samkomuhúsi Vestmannaeyja. Tókst að fullgera húsið á u.þ.b. einu og hálfu ári og má það þakka fjölda félagasam- taka og einstaklinga innan bæjar sem utan. Með tíð og tíma þróaðist rekstur samkomuhússins frá því en það féll ekki að starfsemi félaganna að stunda veitinga- og bíórekstur. Árið 1986 var Samkomuhúsið selt og nokkrum árum síðar keyptu sjálfstæðisfélögin jarðhæð Heima- götu 35-37 og hluta kjallara, og var félagsheimilið gefið nafnið Ásgarður. Öflugt félagstarf í 90 ár Orkan í félaginu í kringum kosn- ingar hefur verið eftirtektarverð. Til forystu í Sjálf- stæðisflokknum í Vestmannaeyjum hafa valist fram- sýnir og duglegir einstaklingar sem hafa veitt málefn- um Vestmanna- eyja framgöngu umfram það sem þekkist í öðrum öflum og af því erum við stolt. Er það að miklu leyti að þakka öflugu félagsstarfi jafnt í Sjálfstæðisfé- lagi Vestmanna- eyja, Sjálfstæð- iskvennafélagsins Eyglóar og Eyverja, félagi ungra sjálfstæðis-manna í Vestmannaeyjum. Eygló sem var stofnað 1937 og Sjálfstæðisfé- lag Vm. sameinuðust undir nafni þess síðarnefnda árið 2007 og var liður í því að kjósa konu sem for- mann hins sameinaða félags. Íris Róbertsdóttir var fyrsti formaður sameinaðs félags og síðan hafa fjórar aðrar konur gengt emb- ættinu og þrír karlar. Þess má geta að Eyverjar eru öldungarnir í hópnum þrátt fyrir að vera félag ungra, en félagið var stofnað í desember 1929, þremur árum á undan afmælisbarninu. Í janúar 1934 var Fulltrúaráð Sjálf- stæðisfélagana stofnað en það er samráðsvettvangur Sjálfstæðisfé- laganna í Vestmannaeyjum. Fyrsti formaður þess var Haraldur Viggó Björnsson en hann gegndi stöðu bankastjóra Útvegsbankans í Eyj- um á þeim tíma. Sýnileiki í blaðaútgáfu Þrátt fyrir að gildi pólitískra blaða sé annað og minna nú en það var þegar Fylkir hóf göngu sína árið 1949 hefur blaðið skipað sér fastan og reglulegan sess í blaða- útgáfu Vestmannaeyja. Í upphafi kom blaðið töluvert oftar út en nú en blaðið kemur þrisvar til fimm sinnum út á ári og er útgáfur reglulegri á kosningaárum. Jóla- blað Fylkis með fróðlegum grein- um um sögu Eyjanna og Eyjafólks í ritstjórn Arnars Sigurmundsson er ómissandi hluti af aðventu og jólum í hugum margra Eyjamanna. Skipar þar ríkan sess kaflinn, Látnir kvaddir sem fylgt hefur jólablað- inu frá 1975. Fylkir, sem er borinn út á hvert heimili í Eyjum og dreift víða um land heldur ágætlega velli í sam- anburði við önnur rit þrátt fyrir að ritmennskan hafi að mestu leiti fært sig yfir á netmiðla þar sem hraði í upplýsingagjöf ræður ríkj- um. Það er mat okkar sem störfum fyrir flokkinn að útgáfa Fylkis sé mikilvæg nú sem áður. Samstaða frá kreppu til hagvaxtar Sjálfstæðisfélögin í Vestmannaeyj- um voru stofnuð á kreppuárunum en á slíkum tímum fær samstaða fólks ríkara gildi. Samstaða Eyja- manna er vel þekkt innan Sjálf- stæðisflokksins á landsvísu og er saga félaganna frá stofnun sam- ofin sögu Vestmannaeyja sem er blómleg og lituð stígandi hag- vexti. Samstaða félagsmanna var áberandi á Landsfundi Sjálfstæð- isflokksins sem haldinn var í nóv- ember sl. en þar komu félagsmenn fjölda breytingatillagna í gegnum fundinn sem nú prýða ályktun fundarins. Þar má helst nefna hug- myndir að bættum samgöngum fyrir Vestmannaeyjar og landið allt, bætta heilbrigðisþjónustu á lands- byggðinni, klárað yrði að koma sjúkraþyrlu fyrir á Suðurlandi, bætt menntakerfi með áherslu á að bæta líðan og árangur nemenda og þá sérstaklega drengja og svo mætti lengi telja. 90 ára afmæli fagnað í Ásgarði á að- ventunni Þriðjudaginn 6. desember sl. fagn- aði félagið afmæli sínu í Ásgarði með aðventugleði sinni sem nefnist kjöt og kærleikur. Fé- lagsfólk gæddi sér á nýreyktu hangi- kjöti og tilheyrandi og nutu samvista hvert með öðru. Nýkjörinn ritari Vilhjálmur Árna- son, Guðrún Hafsteinsdóttir fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis og verðandi ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnað- ar- og nýsköpunarráðherra, Björg- vin Jóhannesson varaþingmað- ur og formaður kjördæmisráðs Suðurkjördæmis og Þórður Þórar- insson framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins komu fyrir hönd flokksins, héldu ræður, færðu kveðjur og gáfu gjafir. Undirritaður og Jarl lokuðu svo kvöldinu með ljúfum jólatónum. Í þetta skiptið höguðu örlög og veikindi þó því að Jarl gat ekki leitt sönginn en hann sló þó gítarinn á meðan að undirritaður leiddi sönginn með félagsmönnum. Formenn Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja 1932 - 2022 Símon Guðmundsson, verkamaður 1932-1933 Karl Jónasson, læknir 1933 -1934 Tómas M. Guðjónsson, skipaafgr.m. 1934-1936 Stefán Árnason, yftrlögregluþjónn 1936-1940 Jóhannes Sigfússon, lyfsali 1940-1941 Guðlaugur Gíslason, kaupm. 1941-1942 Einar Sigurðsson, útvegsbóndi og kaupm. 1942-1944 Tómas M. Guðjónsson, formaður á ný 1944-1947 Guðlaugur Gíslason, formaður á ný 1947-1951 Páll Scheving, vélstjóri 1951-1964 Jóhann Friðfinnsson, kaupmaður 1964-1968 Hörður Bjamason, símstöðvarstjórí 1968-1972 Markús Jónsson, umboðsmaður 1972-1975 Guðni Grímsson, vélstjóri 1975-1977 Steingrímur Arnar, flugvallarstjóri 1977-1978 Gísli Gíslason, stórkaupmaður 1978-1980 Helgi Magnússon, trésmíðameistari, okt/des1980 Stefán Runólfsson, framkvæmdastjóri 1980-1988 Georg Þór Kristjánsson, verkstjóri 1988-1991 Magnús Kristinsson, útvegsbóndi 1991-1993 Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri 1993-1995 Magnús Jónasson, framkv.stjóri 1995-2001 Arnar Sigurmundsson, framkv.stjóri 2001- 2003 Magnús Jónasson, forstöðumaður 2003-2007 Íris Róbertsdóttir, kennari 2007-2011 Sigurhanna Friðþórsdóttur, kennari 2011-2013 Margrét Rós Ingólfsdóttir, félagsráðgjafi 2013-2014 Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri 2014-2015 Jarl Sigurgeirsson, tónlistarkennari 2015-2017 Birna Vídó Þórsdóttir, snyrtifræðingur 2017-2018 Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri 2018-2020 Gísli Stefánsson, æskulýðsfulltrúi 2020- Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja 90 ára GÍSLI STEFÁNSSON FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFÉLAGS VESTMANNAEYJA Sjálfstæðisfélögin í Vestmannaeyjum voru stofnuð á kreppuárunum en á slíkum tímum fær samstaða fólks ríkara gildi. Samstaða Eyjamanna er vel þekkt innan Sjálfstæðisflokksins á landsvísu og er saga félaganna frá stofnun samofin sögu Vestmannaeyja sem er blómleg og lituð stígandi hagvexti. Það var fjölmennt í Ásgarði á 90 ára afmælisfagnaði félagsins nú í desember. Myndirnar hér á opnunni tók Óskar Pétur við það tækifæri.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.