Fylkir


Fylkir - 01.12.2022, Side 19

Fylkir - 01.12.2022, Side 19
19FYLKIR - jólin 2022 ° ° Guðlaug K. Runólfsdóttir fæddist og ólst upp í Vestmannaeyjum. Hún er nú 91 árs gömul, hraust, minnug, lífsglöð og glæsileg kona. Hún hefur búið í Reykjavík í 70 ár, lengst af á sama stað, fimm barna móðir, ekkja í 12 ár. Eyjarn- ar og Eyjamenn standa henni nær hjarta. Um það vitna myndir og málverk á veggjum hjá henni. Hún er fróð og forvitin um fólk. Margir vinir og ættingjar sækja til henn- ar fróðleik um menn og málefni í Eyjum. „Spyrjum Laugu frænku“ segir skyldfólkið hennar oft. „Um að gera“ segir Lauga, „bráðum verður það orðið of seint!“ Rómantík á Heklunni. „Ég er fædd í Vestmannaeyjum, átti yndislega æsku á góðu heimili og ætlaði mér aldrei að fara þaðan. Það hvarflaði bara aldrei að mér. En örlögin vildu ekki haga málum þannig. Æskuvinkona mín, Hrafn- hildur Helgadóttir, sem átti heima í næsta nágrenni við okkur á Hrafna- gili við Vestmannabraut, hvatti mig eindregið til þess sumarið 1951 þegar við vorum 19 ára gaml- ar að koma með sér í skemmtiferð til Skotlands með Heklunni. Það varð úr og við vinkonurnar sigld- um á léttabáti út á Víkina þar sem Heklan lá; hún gat ekki komið inn á höfnina eins og hún var í þá daga, grunn og lítið bryggjupláss. Við vorum hífðar upp og um borð í skipið um miðja nótt. Það má eig- inlega segja að úr stroffunni hafi ég hoppað inn í hjónabandið. Við lunninguna stóð ungur maður, bráðmyndarlegur með gullfallegt hár, svolítið feimnislegur. Ég tók strax eftir honum og átti eftir að kynnast honum betur í ferðinni. Þetta var Ólafur Frímannsson sem seinna varð maðurinn minn. Hann var þá orðinn starfsmaður í Útvegsbankanum og hafði lokið prófi frá Verslunarskólanum. Með honum var strákur frá Stafholti í Eyjum, Hafsteinn Júlíusson. Þessi reisa varð líka örlagarík fyr- ir Hrafnhildi. Hún kom stundum með okkur Óla á Borgina og þar kynntist hún sínum manni, Guð- birni Guðjónssyni. Hann var lengi bryti á Vatnajökli. Svona glettin geta örlögin verið. Þetta var annars skemmtileg ferð, 10 dagar, 10 rómantískir dagar! Það voru fleiri Vestmanneyingar í reisunni en við, t.d. Guðni Gríms- son skipstjóri, hann var Stokks- eyringur, giftur Lovísu (Lúllu) frá Skuld. Guðni var svo hressilegur, hann kom til okkar Hrafnhildar í klefann þar sem við lágum og dreif okk- ur upp í sal. „Strák- arnir bíða eftir ykk- ur!“ Og þar var Óli minn auðvitað með öðrum piltum sem gjarnan vildu hitta ungar Vestmanna- eyjameyjar. Við Hrafnhildur höfðum ekki efni á meira en öðru far- rými en svo vel vildi til að stýrimaðurinn var skyldur pabba sem bað mig fyr- ir kveðjur til hans. Hann setti okkur á 1. farrými og þar var betri matur, kalt borð með ýmsu sem við höfðum ekki áður séð.“ Fædd á Hilmisgötu 7 Guðlaug Kristín, kölluð Lauga, fæddist árið 1931, 6. september, á Hilmisgötu 7, þangað sem foreldr- ar hennar voru þá nýfluttir. „Ég var sem sagt fyrsta barnið sem fæddist í þessu fallega húsi.“ Það stendur reisulegt norðan við Stakkagerð- istún. Það var stórt á þess tíma mælikvarða, 160 m2, með falleg- um blóma- og jurtagarði, byggt rétt áður en heimskreppan skall á af fullum krafti. Húsið var kallað Ólafsvík en það nafn festist ekki við það. Í götunni voru góðir grannar, Árni gamli Johnsen og Margrét frá Suðurgarði í næsta húsi norðan við, svo Engilbert málari og loks Gvendur skóari. En hinum megin, austan við, var Arnardrangur þar sem þau voru Ólafur Lárusson læknir og Sylvía, kona hans með barnaskarann sinn. Hún var mikil blómakona og ræktaði ýmislegt í garðinum, hafði líka hænsn. „Þau voru yndisleg hjón og góðir ná- grannar. Ég kom þangað oft, pass- aði Ólaf Örn, barnabarn þeirra, hann varð seinna læknir eins og afinn. Ég man enn alla húsaskipan í Arnardrangi. Sylvía var dugleg húsmóðir á stóru heimili og hafði vinnukonur. Allir garðarnir voru stórir með trjám og blómum.“ Þarna ólst Lauga upp, í mið- bænum miðjum, með ólgandi líf í kringum sig, aðeins steinsn- ar að fara niður á bryggju og að pallakrónum og ofan í fjöru. „Við vorum sem krakkar oft að þvælast á bryggjunum og fylgjast með körlum og kerlingum í atinu þar, við löndun og aðgerð, og líka á stakkstæðum þar sem saltfisk- urinn var þurrkaður í sólinni. Hann var breiddur út á morgnana og tekinn saman síðdegis. Það var jú alltaf sól í þá daga!“ Á stakkstæð- um unnu einkum konur og svo krakkar. Þar unnu margir fyrir sín- um fyrstu vinnulaunum. Runólfur bátasmiður. Faðir Laugu, Runólfur Jóhannsson, var um tíma skipstjóri á bátum í Eyjum. Hann var frá Gamla-Hrauni við Eyrarbakka og reri þaðan með föður sínum sem unglingur en kom til Vestmannaeyja 1919, þegar hann var tvítugur, til að læra skipasmíðar. Hann missti móður sína aðeins 7 ára gamall og bar þann harm í brjósti sér alla ævi. Feður þeirra Runólfs og bræðr- anna Gunnars Marels á „Horninu“, Guðmundar á Háeyri, Lúðvíks bakara, Þórðar „sterka“ á Bergi og Magnúsar skipasmiðs á Bergi, sem allir fluttust til Eyja, voru bræður. Lauga átti því stóran frændgarð þeim megin frá þótt sambandið væri meira við móðurfólkið. Runólfur lærði fyrst skipasmíðar hjá Magnúsi á Bergi, frænda sín- um. Hann dó ungur, aðeins 28 ára, en hafði þá smíðað marga báta. Fór Runólfur þá til Ástgeirs Guð- mundssonar skipasmiðs í Litlabæ og vann hjá honum en stund- aði líka sjóinn á vertíðum. Þegar Runólfur hætti sjómennsku um 1940 og kom í land vann hann í Gamla slippnum með frænda sín- um, Gunnari Marel, en varð svo yfirsmiður í slippnum hjá Ársæli Sveinssyni. Hann var ákaflega hag- ur í höndum, sama við hvað hann fékkst, gerði t.d. listafín skipslíkön. „Og alltaf var hann að, aldrei setið auðum höndum“ segir Lauga. Runólfur varð skipaskoðunar- maður 1932 og skipaeftirlitsmaður ríkisins í Eyjum 1953 og sinnti því embætti allt þar til hann dó 1969, sjötugur. Hann hafði sérstakan kontór fyrir starfið á neðri hæðinni á Hilmisgötu 7. Þar var allt í röð og reglu. Rithöndin var óvenjufögur, og á skrifborðinu voru snyrtilega færðar skrár, skýrslur, virðingar og matsgerðir. Á veggjum og í hillum voru skipslíkönin sem hann hafði sjálfur smíð- að. Einar í Betel varð seinna samtarfsmað- ur Runólfs og sá um eftirlit með björgunar- bátum. Einar fer lof- samlegum orðum um yfirmann sinn og segir í minningum sínum: „Það var lærdómsríkt fyrir mig að eiga sam- starf við Runólf í fjórtán ár í skipaskoðuninni. Hann var nákvæmn- in sjálf og mátti aldrei vamm sitt vita … lék allt handverk í höndum hans, hvort heldur voru smíðar eða skriftir.“ Lauga segir að faðir sinn hafi aldrei sagt alveg skilið við sjóinn. „Hann átti alltaf trillu, Svan, sem hann smíðaði sjálfur, og fiskaði á hana á sumrin eða var í snatti á henni. Þannig var þetta í gamla daga, alltaf verið að puða eitthvað og þá ekki síður hjá húsmæðrum og vinnufólki. Lífsbaráttan var svo hörð, fátæktin mikil og hver varð að bjarga sér og sínum og treysta á sjálfan sig. Þetta er ólíkt því sem nú er, Guð minn góður! Hjá okkur var skúrinn fullur af mat á haustin, saltkjötstunnur, stíur með kartöfl- um og matjurtir, alltaf nóg af mat. En þetta skilur ungt fólk varla í dag þegar hver sem er getur skotist eftir daglegum nauðsynjum út í næstu búð.“ Runólfur Jóhannsson varð einn þekktasti skipasmiðurinn í Vest- mannaeyjum á sinni tíð, um miðja Með Heklunni í hamingjulandið Guðlaug Kristín Runólfsdóttir frá Hilmisgötu 7 rifjar upp æskuár í Vestmannaeyjum GREINARHÖFUNDUR: HELGI BERNÓDUSSON Við vorum sem krakkar oft að þvælast á bryggjunum og fylgjast með körlum og kerlingum í atinu þar, við löndun og aðgerð, og líka á stakkstæðum þar sem saltfiskurinn var þurrkaður í sólinni. Hann var breiddur út á morgnana og tekinn saman síðdegis. Það var jú alltaf sól í þá daga! Nýleg mynd af Laugu, 91 árs gamalli. Hilmisgata 1-7, fjögur sambyggð hús. Kristín Skaftadóttir og Runólfur Jóhannsson áttu austasta húsið, nr. 7, byggt 1930. Myndin er tekin upp úr 1960 þegar búið var að bæta tveimur hæðum ofan á Hilmis- götu 1 og 3. Vinstra megin er gamla Lögreglustöðin (horfin) og Kaupangur (horfinn) en þar á milli eru Vík við Bárugötu og Viðey við Vestmannabraut; og sér í gamla Hressingarskálann austan við. Hægra megin er Arnardrangur, Hilmisgata 11, þar sem Ólafur Lárusson læknir og Sylvía Guðmundsdóttir bjuggu en á 1. hæð þess var klínik Ólafs. Á milli sér í Vestmannabraut 25, hús Sigurmundar Runólfsson- ar og Íseyjar Skaftadóttur, og Verslun Georgs Gíslasonar (litla húsið), en handan götunnar er Símstöðin (íbúðarhús símstöðvarstjóra). Á Stakkagerðistúni í forgrunni er enn leikvöllur og búið að leggja „Guð- laugströppur“ yfir túnið (kenndar við Guðlaug Gíslason bæjarstjóra).

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.