Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 5
5
SUMARBLAÐ
kallast Hljóðin úr eldhúsinu. Í bókinni má finna
má brot úr upptökum hennar í eldhúsinu heima
hjá sér á Suðureyri. Í þeirri ferð tókum við eftir
drifkraftinum og sköpunarkraftinum sem er
einkennandi í byggðunum hérna í vestrinu og
ákváðum að flytja í snarhasti og taka þátt. Það
kom á daginn, hér er gott svigrúm til að lifa og
skapa og nægur innblástur.
Ég hef ekki verið mjög lagin við framtíðarplön en
reyni eins og aðrir að koma ár minni vel fyrir borð
og að eiga fyrir mér og mínum. Ég er þakklát fyrir
hvern dag og hvert ár sem lífið færir mér og stefni
alltaf að því að skapa meira, dýpka sambönd og
fegra lífið.
Þegar ég lít í baksýnisspegilinn og rifja upp
minningar frá Suðureyri upplifi ég fyrst og
fremst þakklæti gagnvart öllum þeim sem héldu
samfélaginu uppi og unnu hörðum höndum
að því að halda uppi ýmiskonar æskulýðsstarfi,
menningarlífi og grósku. Það er alls ekki gefið.
Á Suðureyri lærði ég að framtak hvers og
eins og rödd skiptir máli. Mér er minnisstætt
þegar ég og jafnaldrar mínir örkuðum inn á
bæjarstjórnarskrifstofuna og kröfðumst þess að
fá smíðavelli eins og börnin í Reykjavík. Seinna
sama dag var okkur útvegað timbur og svæði til
að byggja á, eftirlitslaus, sem var enn betra en
í Reykjavík! Það er einmitt þetta frelsi í leik sem
samfélagið ýtti undir, að upplifa að allt svæðið
væri leiksvæði með óteljandi möguleikum sem
var á sama tíma öruggt vegna þess að ef eitthvað
kom upp á var alltaf einhver nálægt sem við
treystum.
Eins og svo oft festast falleg sumarkvöld betur
í minni en langir vetrardagar en mér finnst við
hæfi að rifja líka upp þau ófáu skipti þegar veðrið
var óskaplegt og rafmagnið fór. Þá gerðum
við systurnar það stundum að leik að rjúka út í
glugga og athuga hvort við gætum séð heimilin
í bænum lýsast upp þegar heimilisfólkið var
búið að finna til kerti og eldspýtur eða vasaljós.
Síðan fylgdumst við með bílljósunum hjá
orkubússtjóranum þræða sig í gegnum skaflana
og inn að orkubúinu. Rafmagnsleysið skapaði
bæði svo skemmtilega nánd og var samtímis svo
spennandi.