Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 10
10
SÚGANDI 2019
Sandra Steinunn Fawcett
Á SKOTHÓLNUM
Hverra manna ertu?
Er dóttir K. Unnar Sigurvinsdóttur og Paul
Fawcett. Móðurfjölskylda mín er úr Bæ í Staðardal
og föðurfjölskyldan frá Englandi. Amma mín
er Guðný heitin Guðmundsdóttir, dóttir Unnar
Kristjánsdóttur og Guðmundar Þorleifssonar.
Afi minn er Sigurvin Magnússon frá Veiðileysu á
ströndum og býr hann enn á Suðureyri.
Fjölskylduhagir?
Er í sambandi.
Starf?
Er í námi við Háskóla Íslands og vinn á sambýli og
veitingastað.
Hvar býrðu?
Ég bý í Kópavogi.
Áhugamál?
Fara á hestbak og lesa
Fallegustu staðirnir í Súgandafirði?
Útsýnið frá Skothóli og Skollasandur, svo er
Vatnadalur mjög fallegur. Svo má ekki gleyma
þegar maður kemur úr göngunum og horfir út
fjörðinn, skiptir ekki máli hvaða árstíð er, það er
alltaf jafn flott.
Hvenær fórstu síðast til Suðureyrar?
Seinasta haust fór ég yfir langa helgi.
Uppáhaldsstaðurinn?
Heima í stofunni hjá afa, ég á margar góðar
minningar þaðan.
Uppáhaldsmaturinn?
Lambalæri og meðlæti.
Uppáhaldstónlist?
Get ekki valið, hlusta á allar tegundir tónlistar.
Uppáhalds leikari/leikkona?
Jennifer Aniston
Viltu deila með okkur góðum minningum frá
Suðureyri?
Fannst sæluhelgarnar og sjómannadagurinn
alltaf svo skemmtilegir þegar ég var yngri. Ég
vann eitt skipti minnsta marhnútinn. Þegar ég bjó
á Suðureyri fór ég oft eftir skóla til ömmu og fékk
köku og mjólk. Mér fannst það algjört æði, og svo
hljóp ég niður á bryggju til að taka á móti pabba
af sjónum. Fyrir mér er alveg nauðsynlegt að fara
vestur allavega einu sinni á ári, njóta kyrrðarinnar
og endurhlaða sig.