Súgandi - 01.06.2019, Side 12

Súgandi - 01.06.2019, Side 12
12 SÚGANDI 2019 Magnús Guðfinnsson Á SKOTHÓLNUM Hverra manna ertu? Ég er sonur Guðfinns Ingvarssonar og Önnu Magnúsdóttir. Fjölskylduhagir? Ég er giftur Hjördísi Ingvarsdóttur og á 4 börn. Starf? Ég starfa við sölumennsku hjá Fisherman á morgnana og svo er ég að selja fisk og franskar um miðjan daginn. Auk þess er ég liðsstjóri hjá meistaraflokki Fylkis. Hvar býrðu? Ég bý í Norðlingaholti í Reykjavík. Áhugamál? Skíði, golf, fótbolti og allt sem er skemmtilegt með vinum og fjölskyldu. Fallegustu staðirnir í Súgandafirði? Mér finnst alltaf mjög fallegt að koma út úr göngunum inni í botni og sjá út fjörðinn. Hvenær fórstu síðast til Suðureyrar? Ég fór síðast í maí 2019. Uppáhaldsstaðurinn? Höfnin. Uppáhaldsmaturinn? Þurrkaði steinbíturinn hans Valla. Uppáhaldstónlist? Ég er af gamla skólanum í tónlist, Queen, Rolling Stones og allt það og svo auðvitað Bubbi og Palli Rós og Bó Hall. Uppáhalds leikari/leikkona? Leikkona er klárlega Meryl Streep og leikari er Leonardo DiCaprio. Viltu deila með okkur góðum minningum frá Suðureyri? Það er svo ótal margt að minnast og ég held að hver einasti dagur hafi verið góð minning í firðinum góða. Það er ein saga sem ég segi stundum og það var þegar ég og Reynir Sturlu sprengdum gas- og súrsprengjur í bænum okkar og fengum að kenna á því. Þannig var að við Reynir vorum að heimsækja mikinn snilling uppi á verbúð en hann kom frá Keflavík og hafði heldur betur komist í hann krappan þegar hann var að leika sér að því að búa til þessar sprengjur hjá hernum uppi á velli. Þegar nóttin var að líða undir lok ákváðum við Reynir að prófa þetta og brutumst inn á verkstæðið niðri á höfn. Við fundum þar gamlan olíubrúsa sem var auðvelt að fylla af gasi og súr. Við höfðum ekki mikla trú á að þetta gæti verið mikið dæmi þannig að við byrjuðum á einum og fórum með hann upp við félagsheimilið. Við settum hann þar á jörðina, kveiktum í og hlupum svo fyrir hornið þar sem við biðum spenntir. Það er nú skemmst frá því að segja að það vöknuðu held ég allir í bænum nema Siggi lögga sem var svo ræstur út þegar við höfðum náðst eftir æsilegan eltingaleik við Ýtu Gauja sem fór með okkur beint inn á Lögreglustöð sem þá var í gamla húsinu hans Óla skólastjóra. Þegar Siggi mætti og sá mig þarna var það fyrsta sem hann spurði mig: „Ertu búinn að læra undir kristnifræðiprófið Magnús Guðfinnsson?“

x

Súgandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.