Súgandi - 01.06.2019, Page 34
34
SÚGANDI 2019
Ég heiti Raquelita Aguilar og er dóttir Robba og
Báru, en Robbi er sonur Hallbjörns og Svövu. Ég
er einnig litla systir Nenítu og Tony’s. Við fluttum
til Suðureyrar þegar ég var að verða tveggja ára
og kláraði ég 6. bekk í Grunnskóla Suðureyrar. Við
fluttum svo til Hafnarfjarðar sem var mér erfitt
enda ekki besti aldurinn til að flytja á milli skóla
og landshluta, að mínu mati. Eftir að ég flutti
fannst mér ekkert betra en að fá að fara til Völu
frænku og Grétars frænda, en þau komu alla tíð
fram við mig eins og ég væri ein af dætrum þeirra.
Þau tóku mig með í allskyns ferðalög um landið
þrátt fyrir að ég ældi eins og múkki alltaf.
Ég er gift Birnu Guðmundsdóttur en hún er
rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu og er réttarsálfræðingur
að mennt. Við eigum saman þrjá yndislega
drengi, Natan 14 ára, Alex 3 ára og svo Nóa
okkar sem fæddist andvana árið 2015. Við búum
í Garðabænum í eldra rótgrónu hverfi og gæti
okkur ekki liðið betur þar.
Súgfirðingur á framabraut
Raquelita Aguilar