Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 34

Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 34
34 SÚGANDI 2019 Ég heiti Raquelita Aguilar og er dóttir Robba og Báru, en Robbi er sonur Hallbjörns og Svövu. Ég er einnig litla systir Nenítu og Tony’s. Við fluttum til Suðureyrar þegar ég var að verða tveggja ára og kláraði ég 6. bekk í Grunnskóla Suðureyrar. Við fluttum svo til Hafnarfjarðar sem var mér erfitt enda ekki besti aldurinn til að flytja á milli skóla og landshluta, að mínu mati. Eftir að ég flutti fannst mér ekkert betra en að fá að fara til Völu frænku og Grétars frænda, en þau komu alla tíð fram við mig eins og ég væri ein af dætrum þeirra. Þau tóku mig með í allskyns ferðalög um landið þrátt fyrir að ég ældi eins og múkki alltaf. Ég er gift Birnu Guðmundsdóttur en hún er rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og er réttarsálfræðingur að mennt. Við eigum saman þrjá yndislega drengi, Natan 14 ára, Alex 3 ára og svo Nóa okkar sem fæddist andvana árið 2015. Við búum í Garðabænum í eldra rótgrónu hverfi og gæti okkur ekki liðið betur þar. Súgfirðingur á framabraut Raquelita Aguilar

x

Súgandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.