Súgandi - 01.06.2019, Side 36

Súgandi - 01.06.2019, Side 36
36 SÚGANDI 2019 Skollasandur, Dalurinn, Sæluhelgin, hlíðin, Inga Jónasar og Popplingarnir. En ég man að mér fannst alltaf notalegt að kíkja í heimsókn til ömmu Svövu. Ég fékk oft hjá henni sykur í poka til að dýfa rabbara ofan í og mér fannst ekki leiðinlegt að fara út í búð fyrir hana og fá einn krabbapening fyrir. Henni fannst Ópal / Tópas mjög gott og það var ekki ósjaldan sem maður fann „hálfsogna“ töflu einhvers staðar liggjandi á borði hjá henni inn í eldhúsi. Eitt sumarið sem ég var að vinna hjá Grétari frænda vorum við amma eftir vinnu í sólbaði bakvið hús hjá Völu og Grétari. Þá áttum við dýrmæta stund saman þar sem hún sagði mér frá því hvernig hún kynntist afa þegar þau fóru á dansiball saman og fleira. Mér þótti roslega vænt um ömmu, og á margar skemmtilegar og fyndnar minningar um hana og Súganda. Ég er mjög þakklát foreldrum mínum fyrir að hafa alið mig upp á Suðureyri. Ég upplifði hluti sem ekki er hægt að upplifa annars staðar en í litlu sjávarþorpi eins og Suðureyri. Að kynnast náttúrunni og frelsinu er einstakt og ég held að það geti mótað fólk til æviloka. Ég er ekkert viss um að ég væri á þeim stað sem ég er á í dag ef ég hefði ekki upplifað æsku mína eins og ég gerði.

x

Súgandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.