Ský - 01.02.1999, Side 12
FYRST&FREMST
úr
Listasjóði
er ung listakona sem á dögunum hlotnaðist hæsti styrkur
Pennans. Hún sækir innblástur til Ástríks og Tinna og langar
að skoða stjörnurnar, sem er gott, því hún er í flugta
Hvernig var fyrsta myndin sem þú teiknaðir og
manst eftir!
„Hún var mikið krot, rosalega abstrakt. Ég man ekkert
frekar hvernig hún var, nema hvað mig minnir að hún hafi
verið svolítið í anda Kristjáns Davíðssonar. Ég krotaði fram
eftir öllum aldri, alveg þangað til ég komst í kynni við
Tinna, Sval og Val og þá félaga. Þá tóku við teikningar í
þeim dúr. Síðar teiknaði ég sælgæti, búðarborð í sjoppu og
nammið undir því og fólk í biðröð fyrir framan. Æskan
gengur svo mikið út á sælgæti."
Hvernig eru verkin þín!
„Þetta eru útsagaðir hlutir. Ég hugsa þá upphaflega tvívítt,
eins og teikningar, en svo set ég þá þannig saman að verkin
verða þrívíð. Ég sauma saman, smelli eða festi á annan hátt og
þannig næ ég þrívíddinni fram. Ég reyni líka að forðast „nátt-
úrulegan“ við. Ég vil fá hann sléttan, felldan og kvistlausan. Hitt
er fallegt í sjálfu sér en passar ekki við það sem ég er að gera.
Ég nota líka mikið lakk og svo auðvitað All sorts lakkrísinn
sem er svo flottur á litinn og girnilegur en hinsvegar vondur á
bragðið. Þessir lakkríslitir eru æpandi bleikir, brúnir og hvítir.
Núna nota ég mikið hvíta litinn. Það fer eftir stemningunni
hverju sinni hvaða litir eru ráðandi."
Og hvað verður um verkin þín þegar þau eru
kláruð!
„Sum verða nú bara að rusli. Önnur er hægt að taka í
sundur og nota aftur. Fæst seljast, þó ég sé nú frekar lukkuleg
með söluna hingað til. Sum lenda undir rúmi, á vegg eða þá að
ég gef þau. Þau fara svona hingað og þangað. Það er samt ekk-
ert að fyllast hjá mér. Ég er ennþá svo ung.“
innblástur, fyrir utan All sorts lakkrísinn, hvaðan
kemur hann og hvers vegna!
„Það er í fyrsta lagi ekkert fyrir mér sem heitir sjálfsprottin
list. Ég er ekki sköpuð af Guði full innblásturs og í startholun-
um til þess að búa eitthvað til. Þetta fjallar allt um annað fólk.
Þetta eru stefnumót við fólk, hluti, eða hvað sem vera skal.
Það ýtir á einhverja takka í þér. Ég nota litabækur og teikni-
myndasögur. Ef ég er í einhverri lægð þá tek ég bara fram Ást-
rík og líður strax betur."
Hvort hefur komið þér frekar að gagni, Ástríkur,
Tinni og allir hinir; eða MHÍ!
„Það er alveg tvennt ólíkt. MHÍ var staður þar sem ég
hafði allt til að gera það sem ég vildi og Ástríkur og þeir
voru bara með mér þar. Þar hafði ég aðstöðu, hitti fólk og
fékk hugmyndir. Ég þarf að umgangast aðra til að þrífast og
þróast. Ég vil ekki vera í friði, ég vil truflun og þá meina ég
mikið áreiti.
í»ú varst að fá styrk frá Listasjóði Pennans fyrir
vel unnin störf. Hvað getur þú sagt mér um
styrkinn!
„ Gunnar Dungal eigandi Pennans stofnaði til þessarar
styrkveitingar í minningu foreldra sinna. Hér er um að
ræða heilar 400 þúsund krónur sem árlega eru veittar ein-
hverjum ungum og efnilegum listamanni, en svo eru líka
aðrir minni styrkir í formi vöruúttekta. Mér hlotnaðist
þessi hæsti styrkur í ár, og er ég mjög þakklát fyrir það.“
Hvar verður þú eftir fimm árí
„Það er fyndið að þú skulir spyrja að þessu því að mitt
nýjársheit var einmitt það að gera fimm ára áætlun, svona
eins og í gamla Sovét. Ég er því enn við þetta nýja upphaf og
því ekki enn byrjuð á áætluninni. Ef allt gengur mér í haginn
þá ætti ég að geta komist alla leið á B-612, en það er lítil
pláneta einhvers staðar þarna úti í geimnum. Hún hefur
reyndar bara sést einu sinni.“
Hvar verður þú ekki eftir fimm ár!
„Ég verð til dæmis ekki á Astró, eða allavega tel ég það
mjög ólíklegt. Þaðan af síður verð ég stödd í þröngum
norskum firði. Ég vil vera á stað þar sem ég get séð allan
sjóndeildarhringinn. Til dæmis í eyðimörkum Alsírs eða
Marokkós."
Hvort eldar heima, þú eða unnustinn!
„Það fer eftir því hvort okkar hefur meira að gera.“
En hvort er betri kokkur!
„Ég er miklu betri."
Hvenær tekst þér best upp við eldamennskuna!
„Ég er best í því að elda þegar ísskápurinn er næstum
alveg tómur og áskorunin að galdra eitthvað fram úr engu
þannig að allir séu hissa á því hvað þetta sé gott. Þannig
finnst mér skemmtilegast að elda.“
Hvað er mikilvægast!
„Mikilvægast er að læra að umbera aðra og ná aga í því
hvernig maður kemur frá sér hlutunum en samt alltaf að
vera opinn. Og að muna það að hjartað er alltaf barn.
þetta sagði kúbverskur listamaður við Harald Jónsson,
listamann. Þetta er hreinn sannleikur."
fin
10 Sky