Ský - 01.04.2000, Side 10

Ský - 01.04.2000, Side 10
FYRST&FREMS Skemmtistaðurinn Astró heitir núna As.tr.o og er orðinn eiturgrænn að innan. Sökudólgurinn er Michael Young, einn frægasti hönnuður Breta um þessar mundir. Verk hans hafa mörgum sinnum prýtt síður biblíu hönnunarinnar, tíma- ritið Wallpaper. Hugmynd sína að hinum betrumbætta Astró fékk Michael úr sundlaugum Reykjavíkur, þar sem hann er orðinn fasta- gestur, en hann er búsettur hérlendis ásamt íslenskri konu sinni, Kötu. Steinsteypuveggirnir eru orðnir fallega grænir, og ilma af perum (eða kannski var það bara ný málningin). Á nokkrum stöðum eru rauð sæti í hring ofan í eins konar vatnslausum „heitum pottum". Rauð lína er máluð í kringum barinn „svona eins og í passaskoðun, vinsamlegast bíðið fyrir utan línuna," segir Michael. Uppi á lofti liggur VlP-her- bergi út frá barnum, sem minnir óneitanlega á sólbaðsstofu, enda streymir þar mikill hiti frá risastórum hreyfinæmum „ljósalömpum“. Hreyfinæmum? Jú, Ijósin verða ýmist sterk- ari eða veikari eftir því hve mikið er af fólki inni. Tónlist stað- arins er í færum höndum Herbs Legowitz (Magnúsar úr Gus Gus) sem gnæfir yfir dansgólfinu í sívölum turni eins og sundlaugarvörður. Og fer Michael Young mikið á flotta næturklúbba? „Nei, ég hef aldrei verið mikið fyrir það. Mér finnst eiginlega skemmtilegra að vera á „shabby" búllum.“ amb LEIKHÚS S t e f á n K a r I Draumur á Jónsmessunótt Baltasar Kormákur spreytir sig í annað sinn á stuttum tíma á því að setja upp Shakespeare í Þjóðleikhúsinu. Teknó uppfærsla hans á Hamlet var hressileg en féll ekki öllum í geð. Það er víst að Baltasar fer ekki hefðbundna leið í þetta skiptið heldur enda býður þessi mikli ærslaleikur Shakespeares upp á skraut- lega sviðsetningu. Flestar helstu stjörnur Þjóðleikhússins, ungar sem aldnar, eru saman komnar í verkinu: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Brynhildur Guðjónsdótt- ir, Stefán Karl Stefánsson, Bergur Þór Ingólfsson, Guðrún S. Gísladóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Hilmir Snær Guðna- son, Rúnar Freyr Gíslason, Gunnar Eyjólfsson, Bessi Bjarnason, Herdís Þorvaldsdóttir, Róbert Arnfinnsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson. Tónlistin er í höndum Skárra en ekkert og leik- mynd er eftir Vytautas Narbutas. Einhver í dyrunum Spánnýtt leikrit eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn eiginkonu hans Kristínar Jóhannesdóttur. Segir frá stórleikkonu sem hefur lokað sig af á heimili sínu og neitar að fara út á meðal fólks. Maður hennar vinnur í eftirlitsiðnaðinum. í dyrnar koma draugar fortíðarinnar. Með aðalhlutverk fer Kristbjörg Kjeld. Aðrir leikendur eru Björn Ingi Hilmars- son, Edda Björgvinsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Þorsteinn Gunn- arsson. Landkrabbinn Kjartan Guðjónsson leikur titilhlutverk- ið, málfræðing sem er munstraður í þriggja vikna túr á togara og þarf að ávinna sér virðingu durganna um borð. Höfundur er Ragnar Arnalds en leikritið fékk 1. verðlaun í leikritasam- keppni Þjóðleikhússins í tilefni hálfrar aldar afmælis hússins. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Meðal annarra leikenda eru Pálmi Gestsson, Jóhann Sigurðarson, Þórunn Lárusdóttir og Guðrún Þ. Stephensen. Kysstu mig Kata Songleikurinn vinsæli með lögum Cole Porters er lauslega byggður á verki Shakespeares Skassið tamið og fjallar um væringar innan leikhóps sem er einmitt að æfa tónlistarútfærslu á því verki. Aðalhlutverk leika Egill Ólafsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir en alls koma um tuttugu leikarar við sögu, auk dansara úr íslenska dansflokknum og hljómsveitar. Tónlistarstjóri er Óskar Einarsson og danshöfundur Michele Hardy frá Englandi. Leikstjóri er Þór- hildur Þorleifsdóttir og er þetta viða- mesta upfærsla Borgarleikhússins á leikárinu. Ský

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.