Ský - 01.04.2000, Síða 20

Ský - 01.04.2000, Síða 20
FYRST & FREMST VEISLA FYRIR ANDANK Listahátíð í Reykjavík hefst þann 20. maí, en í vor heldur hún upp á 30 ára afmæli sitt. Hátíðin verður að þessu sinni sérlega vegleg og eru mörg atriði hennar unnin í samstarfi við Reykjavík menningarborg Evrópu árið 2000. Anna Margrét Björnsson kynnti sér helstu dagskrárliði. Yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni er „Stefnumót við tímann“. Það verður litið um öxl til að sjá hvað hefur áunnist en einnig fram á við til að sjá hvað hin nýja öld ber í skauti sér. Listahátíð er að þessu sinni óvenju íslensk, þar sem frumsköpun er í sviðsljósinu. Opnunardagur Listahátíðar er lau- gardagurinn 20. maí og dagskráin hefst í Þjóðleikhúsinu með tónleikum undir yfirskriftinni „íslensk tónsköpun á 20. öld“. Sama dag verða veitt verðlaun í smásagnakeppni Listahátíðar. 21. maí verður svo opnuð í Hafnarhúsinu ljósmyn- dasýningin „Öndvegishús og merkileg mannvirki“. Á sýningunni verða ljósmyndir, sem sendar eru inn af al- menningi, af þeim mannvirkjum sem fólki fannst mest til koma á landinu. Sama kvöld mun tónlistarkonan Aziza Mustafa Sadeh halda tónleika í íslensku óperunni þar sem hún flytur sérstæða blöndu sína af klassískri tónlist, djassi og „mugam“ tónlistarhefðinni frá heimalandi sínu, Azerbadjan. Rokkkóngur Islands, Bubbi Morthens, syngur lög eftir hinn sænska Carl Michael Bellman mánudagskvöldið 22. maí. Áberandi á Listahátíð í þetta sinn er hversu mikið er í boði fyrir yngstu áhor- fendurna og er efnt til Leiklistarhátíðar barnanna í fyrsta sinn. Á hátíðinni frumsýnir Leikbrúðuland „Prinsessuna í hörpunni" þann 24. maí í Tjamarbíói. Stærsti viðburður Listahátíðar er án efa sýning San Francisco ballettsins á Svanavatninu eftir Tsjaikovský undir stjóm Helga Tómassonar. Að sýningunni standa í sameiningu Listahátíð og Reykjavík menningarborg Evrópu árið 2000. Þann 27. maí verður opnuð alþjóðlega arkitektasýningin Garðhúsabær á Kjarvalsstöðum. Þar gefur að líta teikningar eftir fræga arkitekta sem tóku þátt í samkeppni um að teikna garðhús. Hin berfætta „díva“ Cesaria Evora frá Grænhöfðaeyjum syngur angurværa og heillandi tónlist sína ásamt tíu hljóð- færaleikurum þann 29. maí á Broadway. Meðal helstu viðburða í byrjun júní er frumsýning leikgerðar frá Kaupmanna- höfn á skáldsögu Einars Más Guðmunds- sonar, Englum alheimsins. Á lokadegi listahátíðar verður efnt til hátíðartónleika í Laugardalshöll, þar sem fram koma einsöngvararnir Kristján Jóhannsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Kristinn Sigmundsson og Rannveig Fríða Bragadóttir ásamt Sinfóníuhljómsveit ís- lands. Flutt verður valin óperutónlist og hljómsveitarverk. Dagskrá Listahátíðar er aðfinna á www.artfest.is 8 ský 1. maí Opinn háskóli Háskóli íslands opnar dyr sínar og almenningi gefst kostur á að sækja námskeið sér að kostnaðarlausu. 6. maí Borg og náttúra Áhugaverð sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur um samspil borgar og náttúru í borginni. Verkefnisstjóri er Trausti Valsson arkitekt, höfundur samnefndrar bókar. 20. maí Listahátíð í Reykjavík Hátíðin heldur upp á 30 ára afmæli sitt í ár og að þessu sinni verður hún óvenju vegleg. 20. maí @ - Nýr heimur- Stafrænar sýnir Þegar list og hátækni er steypt saman verður til ný veröld: @. Menningarsamsteypan art.is og tölvufyrirtækið 0Z standa að þessu tilraunaverkefni sem verður á netinu og á Listasafni íslands. 26. maí San Francisco ballettinn Uppfærsla HelgaTómas- sonar á Svanavatni Tsjaikovskýs í Borgarleikhúsinu. 27. maí 2000 börn í Reykjavík Útihátíð sex ára barna úr leikskólum Reykjavíkur. Hljóðfæri verða smíðuð, búningar hannaðir.ljóð og sögur skrifaðar í tengslum við náttúruöflin og borgina. 27. maí Garðhúsabær Alþjóðleg arkitektasýning í samvinnu við Arkitektafélag íslands á Kjarvalsstöðum. Sýndar verða teikningar 17 arkitekta sem fengnir voru til að teikna garðhús. 1. júní Sögulegir dýrgripir Handritasýning íStofnun Árna Magnússonar á handritum þeim sem lýsa ferðum íslendinga til Vesturheims árið 1000. 3. júní Af listmálarafjölskyldu Sýning í Hafnarborg á verkum eftir Louisu Matthíasdóttur og einnig á verkum eiginmanns hennar, Leland Bell, og dóttur hennar, Temmu Bell. 3. júní List í orkustöðvum Fyrri sýning Félags fslenskra myndlistarmanna af tveim á sér stað í virkjun Landsvirkjunar að Ljósafossi. Síðari sýningin er við Laxá í Aðaldal. 17. júní Baðströndin í Nauthólsvík vígð Á þjóðhátíðar- daginn verður ylströndin í Nauthólsvík vigð með því að Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, stingur sér tilsunds. 17. júní Sigling íslendings Vikingaskipið íslendingur hefur siglingu sína vestur um haf í tilefni af landafundum íslenskra manna árið 1000. 25.júní lceland Skippers Kappsigling frá Bretagneskaga í Frakklandi til Reykjavfkur til minningar um það tfmabil þegar hundruð franskra sjómanna sigldu á opnum skútum yfir Atlantshafið til fiskveiða við ísland. Sigurvegaranna bíða glæsilegar móttökur við Reykjavíkurhöfn þann 25. júní. Dagskrá menningarársins 2000 er að finna á www.reykjavik2000.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.