Ský - 01.04.2000, Síða 56

Ský - 01.04.2000, Síða 56
SVETT „En það er svo mikilvægt að hlusta á hjartað,“ segir Nonni blíðum rómi. „Uti í lífinu eru flestir með hugann við eitt- hvað allt annað en innri líðan og þarfir. Það á eftir að breytast. Þúsundir hafa komið í svett til okkar og skynjað lífið og sjálf sig upp á nýtt með áður óþekktu næmi á eftir.“ Við eldinn hefur annarleg ró færst yfir mannskapinn. Svipur andlitanna minnir á andlit barna sem svamla um í móðurkviði. Vellíðan, öryggi, innri ró. „Svetthofið er kúpt eins og skjald- baka eða móðurkviður og inni í því finnum við að líkamann höfum við að- eins að láni frá jörðinni. Við finnum upprunann og hinn órjúfanlega nafla- streng við Móður Jörð,“ upplýsir Nonni. Hann tilkynnir að samkvæmt talnaspeki sé silfurdagur og að svett næturinnar sé tileinkað blíðu og kær- leika. í kalda lófa blíðra og kærleiks- ríkra sáir Heiðar tóbaksjurt til að gleðja andana. Undir hans forystu reisa við- staddir upp hnefann til höfuðáttanna, leggja hann við brjóst sér, en kasta svo tóbakinu í eldinn. Árugleraugun ómissandi Enginn svettaranna sér leikvang kvöldsins sömu augum. Allir bera mis- munandi lituð gleraugu sem segja til um lit áru þeirra. Samkvæmt talnaspeki skiptist ævin í níu ára tímabil sem end- urtaka sig út lífið. Litur árunnar segir til um á hvaða ári hver svettari er og hann er fundinn út við snarkandi bálið. „Eftir að Damon Albarn kom hingað í svett hefur hann ekki viljað taka árugleraug- un niður. Takið eftir því þegar hann er í viðtölum að hann er alltaf með litað gler. Sama má segja um Bono og fleiri fræga.“ Fræga fólkið hefur komið óra- langt að og flykkst að heitum logunum sem sýna skuggamyndir á Hrafnhólum. Það var reyndar móðir Bjarkar Guð- mundsdóttur sem tengdi indíánann við þá Nonna og Heiðar. Síðan hefur Björk verið svettari og kynnt það fyrir mörgu fyrirmenninu. Síðast vermdi sér við náttúruna franska leikkonan Catherine Deneuve og fannst dásamlegt. Er eldglæðurnar taka að kulna hefur tælandi angan tekið sér bólfestu á hör- undi og hári og rafmögnuð spenna hlaðist upp meðal fólksins. Eitt af öðru reynir það að rata um húsið, fækkar föt- um og flissar. í litríkum salarkynnum hringa mjaðmir sig hægt en ákveðið. I loftinu hanga jólaskraut, óróar, diskó- kúlur, salvía og ferómón. Undir takt- föstum trumbuslætti og kraftmiklum rauðskinnaöskrum missa menn sig í trylltum dansi, með lukt augu og ákefð þess sem vill upplifa andartakið til fullnustu. „Kynlíf er ofmetið, dansinn vanmet- inn,“ hvíslar Nonni og dansar guðdóm- legan gjörning með blævængi titrandi af fjöri. „Það er mikilvægt að verða dansinn, en ekki dansarinn. Finnið dansinn koma til ykkar,“ miðlar Nonni til dansaranna. „Dansinn er svo mikil- vægur og gefandi. Fólk á að slökkva á sjónvarpinu og dansa. Og það má alls ekki hlæja að litlum krökkum þegar þau dansa þótt þau séu krúttleg. Þá líð- ur þeim eins og trúðum í sýningu. Það á að dansa með þeim og gera dansinn að eðlilegu formi útrásar.“ í alsælu bogar svitinn af mann- skapnum þegar ómur danssalarins þagnar. Glóð í augum. Hiti í vöngum. Fiðrildi í hárinu. Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir. „Geggjað að deyja f svetti“ Heit spor í snjónum vísa leiðina inn í móðurkvið svitahofsins. Þar inni er niðamyrkur fyrir utan fjörmiklar stjöm- ur sem dansa á glóandi steinunum sem hlaðist hafa upp í nafla hofsins. Feg- urðin vekur upp andköf og furðu. Framandi jurtum er kastað á steinana og sumir eru við það að falla í ómegin af angan og vellíðan. Stunur og kæfð óp berast um í myrkrinu. Heiðar skvett- ir frostlögðu vatni með stómm fjöðrum á brennandi steinana og minnir á að þar mætast jörð, eldur og vatn, frumkraftar jarðar. Notalegur hiti streymir frá guf- unni sem myndast en þá er kominn tími til að loka sig inni í svettinu. Fyrir lukt- um dyrum birtast andar liðinna tíma og látnir ættingjar sem senda bænir og blessun yfir viðstadda. Hitinn stig- magnast og þeim alvönustu finnst kalt, meðan reynsluminni menn komast ekki hjá því að hugleiða hvort svona sé stemmningin í víti. Rauðglóandi, fölum bjarma slær á nakin brjóst, hitinn er kæfandi, engin undankomuleið, myrk- ur og háværir kanúkar kyrja stighækk- andi sálma frá framliðnum dýrategund- um úr heimi indíánna, eins og þeir væru andsetnir. Andar vísundarins og kólibrífuglins eru meðal þeirra sem koma og senda bænir fjarstöddum sem og nærstöddum vinum til handa. At- höfnin skiptist í nokkrar lotur og er opnað út í nóttina milli lota. Það er öll- um kærkomin stund, en löngunin í meiri hita og meiri blessun er súrefninu yfirsterkari. Fleiri steinum er bætt inn í hitakófið og bjóða svettarar þá söngl- andi velkomna í hofið. í fyrstu lotunum fer fram hreinsun, ætlunin er að losna við óhreinindi og ára úr skrokknum og sálartetrinu. Indíánalög og bænir eru sungnar hástöfum og inn á milli hreins- ar Heiðar orkusvæði svettara með blaut- um fjaðravendi. „Fólk endurfæðist í svettinu," útskýrir Nonni fyrir óreynd- um. „Það er ekki óalgengt að fólk fari að gráta af geðshræringu og margir deyja inni í hofinu. Og ólíkt því sem margir hræðast dauðann, þá fagnar fólk dauðanum hér. Því finnst geggjað að deyja í svetti.“ Og dauðahrygla hrýtur af vörum sumra í hofinu. Dauðinn er velkominn. Hápunkturinn er að sameinast jörðinni og skila slitnum líkamanum til moldar. Síðan kemur upprisan. Og nýtt líf. „Kona sem kom í fyrsta sinn í svett, fór að gráta inni í svettinu. Hún grét mikið en síðan breyttist gráturinn í slæmar fæðingarhríðir. A eftir fannst henni hún sem nýfædd. Enda verður fólk ótrúlega fallegt og geislandi eftir svett og það bregst ekki að einhver spyr það hvernig standi á þessu fagra útliti. Fólk glóir nefnilega." Gleði, tóm hamingja og skemmtun A rúmum tveimur tímum runnu rúmir tveir lítrar af hverjum þeim sem sat í svettinu. Tíminn var lygilega fljótur að líða og kominn nýr dagur þegar stigið var með pólriðu út í mjúka fönnina. Ólýsanleg þreyta og sælukuldahrollur fór um nærstadda þegar þeir klæddust og brostu skilningsríku brosi hver til annars. Fæstir voru málglaðir. Vildu og þurftu innra með sér að þegja. Ilmandi matarlykt var á ferð um völ- undarhúsið. Nú var bara að rata réttu leiðina að svöngum maga. Við hring- borð situr fullnægt fólk. Sumir búnir að fara sjötíu sinnum í svett. Aðrir einu sinni o^ bíða þess næsta með óþolin- mæði. A veggjunum hanga handgerðar trébrúður, þekktir einstaklingar sem skornir hafa verið út af húsráðendum. í félagsskap Röggu Gísla, Vigdísar for- seta og fegurðardrottningar í gegnsæj- um kjól er borin fram kærleikskokkuð tofusúpa, brauð og salöt. Yfir borðhald- inu flögrar Pétur Pan með viðkomu hjá hverjum og einum svettara. Þeir reynd- ari segja hinum óreyndu að svettið verði að lífsstíl. Að svettarar eigi það flestir sameiginlegt að hugsa vel um líkamann, vera meðvitaðir um sjálfa sig og hafa mikla þörf fyrir að kynnast sjálfum sér til fullnustu. Flestir sögðust vera orðnir ofurnæmir á sjálfa sig og umhverfið. Og fullir af óbilandi orku. Örkubúnt. Svo er
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.