Ský - 01.10.2001, Síða 19
FYRJ
REM5T = HEINEKEN
b |l
HEINEKEN í HUNDRAÐ OG EITT ÁR
Nú eru bráöum þrettán ár síðan löglegum bjór var fyrst dælt í glös íslenskra
bjórdrykkjumanna. Viðtökurnar voru vitaskuld hálfvillimannslegar í byrjun en
landsmenn hafa fyrir margt löngu byggt upp heimsborgaralega umgengni við ölið.
Á gólfum ÁTVR standa til boða hvorki meira né minna 145 bjórtegundir. Af inn-
flytjendum hefur Heineken fallið best t kramið, er langsöluhæstur erlendra bjór-
tegunda og þriðja mest selda bjórtegundin í Ríkinu. Þar af er söluhlutfallið 65%
dósir og 35% flöskur og ætti sú staðreynd að slá á þá bábilju að flösku-bjór sé
bestur. Utan ÁTVR fæst Heineken á 160 stöðum víðs vegar um landið. Um þessar
mundir fagnar Rolf Johansen ehf. 25 ára samstarfi við Heineken á íslandi.
Viðförull sopi
Heineken er frægasti og víðförulasti bjórframleiðandi í heiminum og hægt að
svala sér á ísköldum Heineken í meira en 170 löndum. Fæstir ferðast nokkurn
tíma svo víða. Hinn hollenski Heineken er bruggaður á fósturjörðinni fyrir allan
heimsmarkað, en fyrirtækið bruggar einnig einar áttatíu undirtegundir bjórs í
fimmtíu löndum. Frægastar þeirra eru Amstel og Murphy’s. Árið 2000 voru alls
bruggaðir 98 milljónir hektólítra af bjór, sem er önnur hæsta talan á heims-
vísu. Auk íslendinga velja Evrópubúarnir Hollendingar, írar, Spánverjar, Frakkar,
Pólverjar, ítalir, Grikkir, Slóvenar, Búlgarar og Makedóníumenn sér einn kaldan
Heinken fram yfir aðrar bjórtegundir. Heineken var fyrsta útlenda bjórtegundin
sem fékk náð fyrir ameríska tollinum eftir
bannárin vestra 1933. Stðan þá hafa Kanar
hampað hinum svalandi sopa og hefur
Heineken um margra ára skeið verið
vinsælasti bjórinn í Bandaríkjunum. Árið
1930 stofnaði Heineken bruggfyrirtækið
Asia Pacific Breweries. Fyrirtækið óx hratt
og nú er bruggað í Indónesíu, Singapore,
Malasíu, Nýja-Sjálandi, Kína, Kambódtu,
Vtetnam og Taílandi. Ölkælar Afrtku hafa t
fleiri áratugi geymt grænar Heineken-flöskur,
enda tegundin önnur sú vinsælasta t heim-
sálfunni. Aðrar undirtegundir Heineken eru
einnig vinsælar í Afriku, eins og Primus,
Gulder og Star.
Háleit markmið
Hvort sem það er háleitum markmiðum
Heineken-fjölskyldunnar, bragðinu eða áhrif-
unum að þakka að flestir velja Heineken, þá
16 SKÝ Ljósm. PÁLL STEFÁNSSON
skemmir að minnsta kosti ekki fyrir að hluti
af ágóða bjórsölunnar fer t fern alþjóðleg
verðlaun á sviði lækninga, umhverfisvts-
inda, lífefnafræða og lífeðlisfræða. Auk
þess er Heineken styrktaraðili að stærstu
íþróttaviðburðum heims. Má þar nefna
Meistaradeild Evrópu (Amstel), US Open t
tennis, Evrópukeppni t rugby (Heineken
Cup), golfmót, siglingakeppnir og fleira.
Fyrirtækið starfar einnig með umhverfis-
vernd að leiðarljósi og notar einungis hreint
vatn í sínar bjórtegundir og endurvinnur
allar umbúðir.
Bjórbrugg er náttúruframleiðsla alla leið,
búinn til úr vatni, humli, maltbyggi og geri.
Uppskrift Heineken er á þann veg að malt-
bygg og vatn er hitað þangað til byggið
breytist í sykur. Sykurinn breytist stðan í
alkóhól og kolvetni. Því næst er vökvinn
hitaður upp í suðumark og humlinum bætt
út í. Humallinn gefur bjórnum bragð og karakter, auk þess að auka
geymsluþol. Nú er vökvinn kældur niður í átta gráður og gerinu bætt við. Þannig
gerjast bjórinn I sérstökum tönkum í viku-tíma. Útkoman er ungur bjór, skarpur
og hreinn með einstöku bragði.
Rauða stjarnan
Rauða stjarnan á Heineken-miðanum hefur ekkert með Rússland að gera.
Stjarnan er tákn sem Heineken hefur notað frá þvt herra Gerard Adrian
Heineken keypti De Hooiberg-brugghúsið í Amsterdam árið 1863 og stofnaði
Heineken-bjórveldið. Meðan á kalda strtðinu stóð á sjöunda áratugnum tengdi
almenningur stjörnuna við kommúnisma. Af þeim sökum var stjarnan höfð hvít
með rauðri útltnu þangað til heimsmyndin breyttist aftur, en varð þá rauð á ný.
Stjarnan er upphaflega tákn bruggara í Evrópu á miðöldum og var sögð hafa
dularfullan kraft til að vernda gæði bruggsins.
Hið 130 ára gamla Heineken-brugghús við Stadhouderskade stendur t hjarta
Amsterdam. Þangað eru allir velkomnir sem vilja ganga um brugghúsið, sjá
hvernig uppáhaldsbjórnum er tappað á flöskur og fá að bragða á ferskum bjór
beint úr tönkunum. Þá uppgötva líka flestir að Heineken er ekki bara gæðabjór,
heldur brugghús sem ber virðingu fyrir fólki, samfélagi þjóðanna og umhverfinu.