Ský - 01.10.2001, Side 59

Ský - 01.10.2001, Side 59
STEFÁN BALDURSSON Þjóðleikhússtjóri og eiginmaður Þórunnar Sigurðardóttur, list- ræns stjórnanda Listahátíðar. „Stefán er ákaflega kurteis og kemur vel fyrir, en er svo- lítill pukrari I sér, finnst gaman aö eiga leyndarmál. Til dæmis segir hann sjaldn- ast leikurum í hvaða stykkj- um þeir eiga aö leika þenn- an eöa hinn veturinn fyrr en rétt áður en æfingar hefjast. Þetta pirrar marga, en það er eins og honum finnist hann hafa meiri stjórn á hlutunum fyrir vikiö, meiri völd. En hann erfarsæll og vinsæll samt sem áður.“ „Einhver ítök hefur hann, fyrst hann gat fengið menntamálaráðherra til að breyta lögum svo hann gæti setið áfram í Þjóðleikhús- stjórastólnum fram yfir ár- þúsundaskiptin." „Hann er mikill leikhúsmað- ur, en búinn að vera of lengi. Búinn að sjanghæja Björn Bjarna í að æviráða sig, sem er slæmt mál, hann lýsti því yfir sjálfur á sínum tíma að það væri slæmtfyrir bæði leikhúsið og mennina sjálfa að vera of lengi í stöðu sem þessari og ég hef tilhneigingu til að vera sammála honum um það.“ „Hann ræður öllu í stærsta leikhúsi landsins. Hefur bein áhrif á það hver fær hlutverk yfirleitt og hver fær góð hlut- verk sér í lagi, er yfirleitt löngu búinn að ráða t allar rullur þegar leikstjórinn kem- ur inn - og hann ræður auð- vitað líka hver leikstýrir og hefur síðasta orðið um hvaða verk verða sýnd að auki.“ „Gjörsamlega staðnaður og ætti að vera löngu farinn." „Hann kann að búa til stjörnur. Það er bæði hans styrkur og hans akkilesar- hæll - honum hættir nefni- lega til að keyra of mikið á sömu leikurunum enda- laust.“ „Baktjaldamakkari afguðs náð.“ ÞORFINNUR ÓMARSSON framkvæmdastjóri Kvikmynda- sjóðs íslands. „Hann hefur staðið sig vel í heildina tekið, þessi fimm ár sem hann hefur verið þarna. Tekist að fá inn meiri peninga, miklu meiri, með góðra manna hjálp.“ „Hann er yfirvegaður, kemur vel fyrir, góður PR-maður sem kann að búa til stemmningu í kringum bransann.“ „Þegar Þorfinnur er að tala um kvikmyndir minnir það mig stundum óþægilega á útvarp Umferðarráðs. Veit ekki af hverju." „Er kannski ekki svo mikill örlagavaldur núna, en þegar frumvarp að nýjum kvik- myndalögum verður að lög- um, sem gerist líklega strax í haust, þá er Þorfinnur langlíklegastur til að verða fyrir valinu sem forstöðu- maður hinnar nýju Kvik- myndamiðstöðvar Islands. Þá fyrst verður hann alvöru mógúll og í raun valdamesti maðurinn í íslenska kvik- myndaheiminum - að Frikka meðtöldum. Samkvæmt nýju lögunum verður það nefni- lega sá maður sem sker endanlega úr um hver fær styrk og hver ekki, en ekki einhver úthlutunarnefnd." „Guð hjálpi okkur ef Þorfinn- ur verður gerður að yfirgúrú þegar nýju lögin taka gildi - hann er nógu andskoti mikill gúrú nú þegar, að eigin mati t það minnsta. En hann er duglegur svo sem.“ ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR listrænn stjórnandi Lista- hátíðar, framkvæmdastjóri Menningarborgar og eiginkona Stefáns Baldurssonar, Þjóð- leikhússtjóra. „Greind og grimm." „Hún er miklu meira en ein- hver listrænn stjórnandi Listahátíðar, hún ræður því sem hún vill ráða í menning- arlífi borgarinnar og reyndar langt út fyrir borgarmörkin." „Ég segi svo sem ekki að menn þurfi að koma sér sérlega vel við hana til að eiga séns á að koma sér á framfæri, en það verður metnaðarfullum listamönn- um seint til framdráttar að komast upp á kant við hana.“ „Hún er í raun ótrúlega við- kvæm fyrir sér og sínu.“ „Það er eiginlega ekki hægt að skilja á milli þeirra hjóna, Þórunnar og Stefáns. Sam- an eru þau hálfgert menn- ingarstórveldi í smáríkinu ís- landi.“ „Hún kann að selja fólki list og listsköpun. Það eru ekki margir sem kunna það og svoleiðis fólk er alltaf eftir- sótt og áhrifamikið." „Þórunn setur náttúrlega að vissu leyti kúrsinn t þvt hvað telst viðurkennt, fínt og eftir- sóknarvert. Það er ekkert rokið til hennar eftir áliti eða ráðgjöf, en hún er í stöðu sem veitir henni mikil völd innan listaheimsins og hefur held ég næga greind til að valda henni ágætlega." sem losna. Og þar hafa persónulegar ástæð- ur oft vegið þyngra en listrænir hagsmunir og mörg dæmi um undarlegar ráðningar í gegn- um tíðina." MÓGÚLARNIR AÐ HVERFA Myndlistarmenn sem rætt var við eru sam- mála um að séu íslenskir samtímalistamenn háðir einhverju, þá séu það frekar tískusveifl- ur en tilteknir menn eða hópar fólks. „Á hinn bóginn er það náttúrlega fólk sem ýmist býr til eða ýtir undir tilteknar tískusveiflur og þess eru auðvitað ennþá dæmi að það sé ein- faldlega búin til tíska, eitthvert trend og ein- hver mýta í kringum einstaka listamenn af því þeir falla vel í kramið hjá einhverjum sem mikils má sín. En yfirleitt eru þessir straumar stjórnlausir, sprottnir af einhverju sem er að gerast í samfélaginu, úti í hinum stóra heimi, fjölmiðlunum, eða sem betur fer einfaldlega af verðleikum listamannsins sjálfs." Mógúlarnir í myndlistinni eru að hverfa og vægi stóru listasafnanna fer minnkandi, þótt vald safnstjóranna og áhrif séu ennþá næg til að koma þeim inn á lista yfir helstu áhrifa- menn í menningarheiminum. „Söfnin eru að breyta um hlutverk smám saman, eru að verða bara söfn, eins og þau eiga að vera, samtímalistin blómstrar annars staðar," sagði einn viðmælenda Skýja, og benti sér- staklega á Galleri i8, sem rekið er af Eddu Jónsdóttur í því sambandi, sem og á menn á borð við Hannes Sigurðsson og Jón Proppé. „Söfnin verða ekki mótandi í samtímalistinni næstu áratugina, heldur framtakssamir ein- staklingar og formleg og óformleg samtök ungra listamanna sem eru að gera spennandi hluti. En þeir sem stjórna stóru söfnunum koma auðvitað alltaf til með að hafa áhrif á það hver er stórkarl og hver ekki." AÐALL FREKAR EN MAFÍA Svipaða sögu er að segja úr öðrum greinum íslenska menningar- og listaheimsins. Nokkr- ir áhrifamiklir einstaklingar eru nefndir til sögunnar, en enginn vill kannast við raun- verulega menningarmafíu á íslandi í dag, hvorki almennt né í tilteknum geirum, og eru því fegnir. „Nei, það er engin mafía, miklu frekar að það sé hægt að tala um menningarelítu eða aðal, og það er í raun mjög sundurleit og ósam- stæð stétt hér heima," sagði menningarrýnir nokkur um þetta. Að hans sögn samanstendur þessi aðall af nokkrum „týpum" fólks. í fyrsta lagi eru það stjörnurnar: Leikarar sem dúkka upp í hverri ÍSLENSKUR MENNINGAR AÐALL SKV 57

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.