Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1988, Page 162
148
G J ALD S KRÁRMÁL
Tillögur um nýjar gjaldskrár eða breytingar á þeim berast borgarráði
að jafnaði frá forstjórum hlutaðeigandi fyrirtækja eða stofnana, eða
stjórnum þeirra.
Með samhljóða afgreiðslu tekur borgarráð ákvörðun um gjaldskrá, en
verði ágreiningur fer málið til afgreiðslu i borgarstjórn við eina
umræðu. í sumum tilvikum þarf samkvæmt lagaákvæðum að leita
staðfestingar ráðherra.
Verður nú vikið stuttlega að einstökum fyrirtækjum og stofnunum
borgarinnar.
Vatnsveita Reykjavíkur hefur nokkra sérstöðu meðal veitustofnana i
gjaldskrármálum, þar sem gjaldskrá hennar miðast ekki við vatnsnotkun
nema að litlu leyti. Almennur vatnsskattur er árlega greiddur af
öllum fasteignum i lögsagnarumdæmi Reykjavikurborgar, sem liggja við
vegi eða opin svæði, þar sem vatnsæðar liggja. Hið sama gildir um
aðrar fasteignir, sem fá vatn úr veitukerfi Reykjavikur.
Hitaveita Reykiavikur. Heimilt er að hækka eða lækka hitaveitugjöld i
sama hlutfalli og visitala byggingarkostnaðar breytist. Þó skal
heildarkostnaður við hitun húsa með hitaveitu að meðaltali ekki fara
fram úr 80% af kostnaði við hitun húsa með oliukyndingu.
Reykj avikurhöfn. Gjaldskrá Reykjavikurhafnar er i meginatriðum byggð
á skipagjöldum, skipaþjónustugjöldum og vörugjöldum, auk þess sem
gjöld eru greidd fyrir ýmiss konar þjónustu, sem veitt er á vegum
hafnarinnar. Gjaldskráin er birt með hafnarreglugerð fyrir
Reykjavikurhöfn, sem staðfest er af samgönguráðherra.
Strætisvagnar Reykjavíkur. Gjaldskrá S.V.R. er miðuð við það, að
allur fjármagnskostnaður fyrirtækisins greiðist úr borgarsjóði. Mörg
undanfarin ár hefur borgarsjóður þó orðið að leggja fram fé til
reksturs, þar sem fargjaldatekjur S.V.R. hafa ekki hrokkið fyrir
rekstrarútgj öldum.
Rafmagnsveita. Gjaldskráin miðast við það, að tekjur Rafmagns-
veitunnar standi undir rekstargjöldum hennar svo og aukningu veitu-
kerfisins.
Húsatryggingar. Skylt er að hafa öll hús i lögsagnarumdæminu
brunatryggð hjá þeim aðila, sem tryggingarnar annast, samkvæmt
ákvörðun borgarstjórnar, og með þvi vátryggingarverði er dómkvaddir
menn meta.